Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006
Sport DV
Di Canio hættir
fasistakveðjum
Paolo Di Canio hefur
ákveðið að hætta að heilsa
stuðnings-
mönnum Lazio
að sið fasista
eins og hann
hefur gert und-
anfamar vikur
og mánuði.
Hlaut hann gíf-
urlega mikla
gagnrýni fyrir
víða að og á
meðan jólafríi ítölsku deildar-
innar stóð fékk hann tækifæri
til að hugsa sinn gang. Hann
ákvað að sitja á sínum skoðun-
um hvað þetta varðar og hlífa
félaginu við þeirri umræðu
sem hefur hlotist af uppátækj-
um hans.
Roberttil
Benfica
Franski miðvallarleikmað-
urinn Laurent Robert var í
gær seldur frá Newcastle til
portúgölsku meistaranna í
Benflca. Robert er búinn að
vera í láni hjá Portsmouth í
haust en þegar hann neitaði
að sitja á varamannabekk
liðsins í leik í október þar sem
hann var ekki valinn í byrjun-
arliðið stimplaði hann sig úr
liðinu. Robert lenti líka oft
upp á kant við Graeme Sou-
ness, knattspymustjóra
Newcastle, sem er væntaniega
feginn að losna við kauða.
Parkerfráí
fimmvikur
Scott Parker, leikmaður
Newcastie, verður frá næstu
fimm vikumar vegna hné-
meiðsla sem hann hlaut í leik
þann 17. desember. Nú hefur
komið í ljós að Parker þarf að
gangast undir aðgerð á
hnénu. Fyrir skömmu braut
Michael Owen bein í fæti og
þá er Shola Ameobi einnig frá,
sem og Emre, Kieron Dyer,
Steven Taylor og Stephen
Carr. Þá verður Lee Bowyer í
banni næstu tvo leikina.
■wíwjk r-.-n."..
Keaneverður
samurvið sig
Brian Kerr, fyrmm lands-
liðsþjálfari íra og maðurinn
sem sannfærði Roy Keane að
gefa aftur á sér kost í landslið-
ið árið 2004, segir að menn
þurfi ekki að óttast að Keane
verði eitthvað „linur" í leikj-
um Celtic í vetur. „Þrátt fyrir
öU þau meiðsli sem hann hef-
ur orðið fyrir á sínum ferli
mun Roy gefa sig allan í leik-
ina. Hann mun ekki breyta
þeim leUcstfl sem hann er svo
þekktur fyrir."
Guðjón Skúlason hefur heldur betur komið sér inn í hringiðu íslenska körfubolt-
ans að nýju á síðustu vikum. Fyrst tók hann við þjálfun islenska kvennalandsliðs-
ins og á föstudaginn var tók hann skóna ofan af hillunni og spilaði sinn fyrsta úr-
valsdeildarleik í tvö og hálft ár.
399. leikur Guðjóns Skílasonar
Aðems sex leikir i metið hans Teits
Teitur Örlygsson á leikjametið í úrvalsdeild karla í körfubolta en
hann lék 405 leiki fyrir Njarðvík á árunum 1983-2003. Valur Ingi-
mundarson, núverandi þjálfari Skallagríms, á að baki 400 leiki
en Guðjón átti aðeins tvo leiki í 400. leikinn þegar hann spilaði
sinn síðasta deildarleik „í bili“ gegn Snæfelli 6. mars 2003. Guð-
jón átti síðan eftir að lyfta fslandsbikarnum í fjórða sinn 35 dög-
um seinna eftir 3-0 sigur Keflavíkur á Grindavík í lokaúrslitunum
um titilinn.
„Auðvitað er stefnan á að slá það
met fyrst að maður er nú byrjaður
aftur. Það eru einhverjir fimm leikir
á næstunni þannig að þetta gæti
dottið fljótlega," segir Guðjón Skúla-
son þegar hann fékk að vita að
aðeins standi sex leikir á milli hans
og leikjametsins í úrvalsdeild karla
en það er í eigu Njarðvíkingsins
Teits örlygssonar en þeir félagar
hafa háð margar frábærar rimmur í
gegnum tíðina.
Spilaði í 2. deildinni í vetur
Guðjón Skúlason hóf tímabilið
með Létti í 2. deildinni en skipti
aftur yfir í Keflavík í lok nóvember.
„Ég er búinn að vera að spila aðeins
í 2. deildinni í vetur. Síðan vantaði
bara menn á æfingar í Keflavík og ég
fór að mæta. Það voru meiðsli og
hitt og þetta sem orsökuðu það en
sfðan vorum við bara tólf sem
vorum að æfa og þá var bara ákveð-
ið að ég myndi fylla upp í leik-
mannahópinn á meðan. Ég var
sáttur þegar ég hætti vorið 2003 og
var þá líka orðinn mjög þreyttur í
skrokknum. Ég er hins vegar endur-
nærður eftir þessi tvö ár og skrokk-
urinn er í fínu lagi í dag. Eg var þó
ekkert búinn að plana þetta því
þetta datt eiginlega bara í fangið á
mér,“ segir Guðjón en framundan
eru margir leikir í janúar en
Keflavíkurliðið gæti alls
leikið níu leiki í þessum
mánuði, sjö í deildinni og
tvo í bikarkeppninni.
Guðjón á listunum í sögu
úrvalsdeildar karla:
LEKIR: 3. sæti með 399 leiki, 6 leikjum á
eftir Teiti Örlygssyni.
SJIG: 2. sæti með 6625 stig, 730 stigum á
eftir Val Ingimundarsyni.
ÞRIGGJA STIGA KÖRFUR: 1. sæti með
959þrista, 217 fleiri en Teitur örlygsson.
í
Heldur mönnum
við efnið
„Ég sé til hvert fram-
haldið verður. Það væri
allt í lagi að klára tíma-
bilið en þetta verður
örugglega út janúar
því þá ætti okkar
Bosman-maður að
vera orðinn löglegur.
Það er fínt að hafa svona
tólfta, þrettánda mann sem getur
haldið mönnum við efnið," segir
Guðjón en hann hefur verið aðstoð-
arþjálfari Sigurðar Ingimundarsonar
í vetur.
„Ég ætla mér ekki neinar rósir inn
á vellinum, ég ætla að leyfa mönn-
um að fá það sem þeir hafa verið að
vinna fyrir í allan vetur. Ég ætía að
veita þeim ákveðið aðhald á æfing-
um og bæta aðeins í reynslubank-
ann hjá liðinu," segir Guðjón sem
ætíar sér þó að spila eitthvað. „Það
hlýtur að vera að maður fái að kom-
ast eitthvað inn á völlinn. Þegar ég
verð kominn í gang þá fær maður
einhverjar
mínútur. Ég
vissi alltaf af
því að ég
ætti 40
þriggja stiga
körfur í þá
þúsundustu
en ég þarf
að vera hel-
víti dugleg-
ur ef ég ætla að
ná því," segir Guðjón í léttum tón en
hann hefur skorað 959 þriggja stiga
körfur í þeim 399 leikjum sem hann
hefur spilað í úrvalsdeild eða 2,4 að
meðaltali í leik.
Tvö stig án þess að
spila eina sekúndu
Byrjun Guðjóns var
skemmtileg því hann var
búinn að skora tvö stíg
áður en hann lék sína
fyrstu sekúndu. Guðjón
kom inná þegar ein mín-
úta og 32 sekúndur voru
eftir af leiknum og setti
niður tvö vítaskot vegna
tæknivillu sem dæmd
var á Njarðvíkinginn Jeb
Ivey. Þrátt fyrir að vera
ískaldur setti hann
bæði vítin með
sannfærandi hætti í
körfunni en náði hins vegar
4 ekki að setja niður þau tvö
skot sem hann tók síðan á
þessum lokasekúndum
leiksins.
Ekkert smeykur
um framhaldið
„Ég er alls ekkert
smeykur um fram-
haldið þó að við
höfum tapað
illa í síð
asta leik
gegn
Njarðvík. Ef
við vinnum
þessa tvo leiki
sem við eigum
inni þá er liðið
við toppinn og ef
við höldum okkur
þar fram að úrslita- ,
keppni þá þekki ég
mitt lið það vel að
menn koma með allt
sem þarf til inn í úr-
slitakeppnina. Við
þekkjum þá baráttu
mjög vel og vitum
alveg hvaða leiki við
þurfum að vinna
I Tók við fslandsbikarn-
I um í fjórða sinn
Guðjón Skúlason kvaddi
Keflavlkurliðið á slnum
tíma með þvíað taka við
\ Islandsbikarnum eftirsig-
ur á Grindavík 10. april
2003. Þetta var í fjórða
sinn sem hann lyfti bik-
arnum en enginn hefur
lyft honum oftarsem fyrir■
liði Islandsmeistara.
400. leikur Guðjóns í úr-
valsdeild I kvöld Guðjón
Skúlason hefur tekið fram
LahC skóna á nýjan leik og spilar
sinn 400. leik gegn lR á Sunnu-
brautmni I kvöld.
þegar þar að kemur, segir
Guðjón að lokum. Það fer
fram heil umferð í Iceland
Express-deild karla í
kvöld því auk leiks
Keflavíkur og ÍR mæt- h
ast Skallagrímur og
Njarðvík, Hamar/Sel-
foss og Snæfell, Hauk-
ar og Grindavík, Þór
^ Akureyri og Hött-
ur og KR og
I Fjölnir.
ooj@dv.is
1. TeiturÖrlygsson 2. Valur Ingimundarson Njarðvík 405 leikir Njarðvík,Tindastóll, Skallagrlmur 400 leikir
3. Guðjón Skúlason Keflavik, Grindavík 399 leikir
4. Marel Guðlaugsson Grindavík, KR, Haukar 379 leikir
5. Guðmundur L. Bragason Grindavík, Haukar 348 leikir
6. Jón Arnar Ingvarsson Haukar, Breiðablik 339 leikir
7. Pétur Ingvarsson Haukar, Hamar 335 leikir
8. Friðrik Ragnarsson Njarðvík, KR 327 leikir
9.Tómas Holton Valur, Skallagrímur 319 leikir
10. Kristinn Geir Friðriksson Keflavík, Þór Akureyri,
Skallagrímur,Tindastóll,Grindavík 317 leikir
10. Pétur R. Guðmundsson Grindavfk, Tindastóll 317 leikir
Hvenær bætir Guðjón metiö hans Teits?
Fim. 5. jan. 2006 Keflavík 19.15 keflavtk - 1R
Þri. 10. jan. 2006 Lgilsstaðir 19.15 Höttur - Kefiavík
Fim. 12. jan. 2006 Keflavík 19.15 Kefiavík- Hamar/Self.
Þri. 17. jan. 2006 Egilsstáðiv 19.15 Höttur- Hamar/Self
Fim. 19. jan. 2006 Borgarnes 19.15 Skallagrímui - Keflavík
Fim 26. ian 2006 Kefiavik 19.15 Kefiavík Snæfell (nietið jafnað!
Suu. 29. jan. 2006 DHl Uofiin 19.15 KR Kefiavík (metið fellur
F'im. 9. feb. 2006 Kefiauk 19 15 Keflavík - Höttur