Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Qupperneq 27
FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006 27 DV Fréttir Lesendur 1968—Vorið Alexander Dubcek tók við völd- um í Tékkóslóvakíu af stalíníska einræðisherranum Antonin No- votny þennan dag árið 1968. Dubcek hóf að innleiða það sem varð kallað Vorið í Prag, byltingu í átt til frelsis b.yggða á hugmynda- fræði sem Dubcek kallaði „komm- únismi með mannlega ásjónu.“ í henni fólst málfrelsi og frelsi til handa pólitískum andstæðingum. Mikil ánægja var meðal lands- manna vegna þessara breytinga Dubcek. Þann 20. ágúst sama ár svöruðu Sovétríkin þessari um- bótastefnu Dubcek með því að ráðast inn . í Tékkóslóvakíu með 600.000 manna herliði. íbúar Prag gáfu ekki auðveld- lega eftir en óskipuleg mót- mæli stúdenta máttu sín lítils gegn ofurafli sovéska hersins. Næstu 20 ár var landinu stjórnað af lepp Sov- étríkjanna, Gustav Husak, sem endurskipaði kommúníska stjórn og afnám allar umbætur Dubcek. Við fall kommúnismans í desem- ber 1989 hrökklaðist Husák frá í dag eru Z5 ár síðan fyrsta barnið fæddist á Land- spítalanum, en hann hafði verið tekinn í gagnið tveimur vikum áður. völdum og við tók Dubcek sjálfur, í hlutverki forseta þingsins. Eitt af fyrstu verkum hans var að skipa leikskáldið Vaclav Havel forseta landsins. Hann varð frægur á tíma vorsins í Prag, en eftir innrásina voru leikrit hans bönnuð og vega- bréf hans afturkallað af stjórnvöld- um. Ur bloggheimum Hvaðerað því? „Fjölkvæni er víst furðulegt, eiginlega ósiðlegt efég skil fólk rétt. En hvað er eigin- lega athugavert við fjöl- kvæni?Fleiri en ein fullorðin manneskja ákveða að gera með sérsamning um að búa saman, reka heimili og jafnvel fæða og ala upp börn. Ég sé bara ekkert athugavert við það, svo lengi sem fólki langar til þess og allir eru sáttir." Matthías Ásgeirsson - orvitinn.com Gling gló i Boston „Ég fór I French Connection búðina á Newburyá laugardaginn... varbara eitt- hvað að kíkja uppá gannið... ég var búin að vera innl búðinni I svona hálfa mínútu, og þá heyrði ég allt I einu 'Gling gló, klukk- an stóJég vissi ekkert hvernig ég átti að haga mér, þau voru að spila lag á íslensku I búðinni... ég var bara ein þannigað ég gat ekkert sagt neitt við neitt, og varþá bara eitthvað ein brosandi og hlæjandi og horfandi eitt- hvaðá hátalarana.. ég vissi ekkert hvernig ég átti að vera... kellingin sem var að vinna var farin að stara á mig og ég eitthvaþ 'lt's in lcelandicll' ..henni gat ekki verið meira sama og hélt bara afram að gjóa augun- um að mér eins og ég værí einhver algjör vírdó." Kristín - blog.central.is/kristiniboston Afeinni sjónvarpsstöðinni „Þáttastjórnandinn.sem ermeð eindæm- um lélegur og leiðinlegur var á flakki um höfuðborgina og tók enn leiðinlegra og lélegra fólk tali, en sá viðmælandi sem var hvað daprastur var sölumaður Ifatabúðí Hafnarfirði. Þessi sölumaður varð þess valdandi aðéger ALDREI aftur í þessa búð, það lá við að ég kastaði upp kvöld- matnum við að horfa og hlusta á þetta viðrini. Tökum dæmi um það sem fíflið sagði þegar harín var aðtala um skyrtur I búðinni:„Þessar skyrtur t.d. eru alveg glænýjar og nýjasta nýtt og nýkomnar I búðina okkar, annað eins hefur bara aldrei sést, hver vill ekki ganga I svona skyrtu, svona teinóttarmeð flottum hnöpp- um". Ok, þetta ersvo sem I lagi ef hann hefði ekki endað sölumennskuna á eftirfarandi orðum,, HVER MAN EKKIEFTIR ÞESSU LOOKI". Fáviti, er töffað hanna ný föt, I eldgömlum stll og segja svo að ann- að eins fyrirfinnist ekki á jörðinni og hafí aldrei gert - FÁVITI." Hjalti -hgret.blogspot.com Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og táta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Hundrað tonn af flugeldum í bílskúrnum heima Katrín skrifar: Það sló mig nú ekkert sérstaklega að horfa á fréttir þess efnis að flug- Lesendur eldageymsla í Hveragerði hafi sprungið í loft upp. Þetta er farið að gerast á ári hverju. Síðast „sprakk" hús í Njarðvík sem geymdi flugelda. Næst verður það eflaust einn sölu- staður. Ég skil bara ekkert í þessu. Af hveiju eru ekki settar neinar reglur hvað varðar meðhöndlun og geymslu þessara flugelda? Er öllum leyft að vappa um þetta með eldspýt- ur í efrmi hendinni og zippo-kveikjara í hinni? Ég hef heyrt af ýmsum flug- eldageymslum. Til að mynda einni í Garðabæ sem er við hliðina á leik- skóla, ein í stóru timburhúsi við íbúa- byggð í Keflavík og önnur á Akureyri. Björgunarsveitimar reyna eflaust eftir fremsta megni að verja sína flugelda en hvar geyma einkaaðilamir sínar bombur? Ég veit um einn sem býr í götunni minni sem er flugeldaóður og hann kaupir oftast hálfan fjömtíu feta gám fullan af flugeldum. Daginn fyrir ára- mót þá hleður hann þessu inn í bíl- skúrinn heima hjá sér. Og hver fylgist með því? Ekki neinn. Hvemig væri nú ef þeir sem hafa yfimmsjón með flug- eldainnflutningi hingað til lands sæt- ust niður og ákveddu reglur hvað þetta varðar hið snarasta? Áður en nágranni minn sprengir mig og hina íbúana í loft upp. Bruni i Hveragerði Flugelda- geymsla sprakk nánast i loft upp I Hveragerði á dögunum. Lesandinn vill reglur um geymslu flugelda. Geir skrifar: Ég starfa á sjoppu í Reykjavík og er bara hreyk- inn af því. Er reyndar enn í skóla enda er menntun af hinu góðu en ég vinn við að afgreiða pulsur með tómat, sinnep og steiktum inn á milli lærdóms og svefns. Fyrir að afgreiða fæ ég um 50 þúsund krón- ur á mánuði sem er ágætur vasapeningur fýrir mig. Ég hef unnið þama í rúma sex mánuði sem er mánuði lengur en Ragnhildur Geirsdóttir starfaði sem forstjóri FL Group. Hún fékk 130 milljónir frá ■IHMBnM fyrirtækinu þegar hún lét af störfum. Hún vann þar í fimm mánuði. Ég get rétt svo ímyndað mér það að í svona starfi tekur það eflaust meira en háíft ár að komast í gang - svo stórt er fyrirtækið. En Ijóshærða stelp- an fékk 130 milljónir. Eflaust meira en ég mun þéna yfir alla ævina. Peningamálin á fslandi em mgl. En af allri þessari geðveiki fékk ég ágæta hug- mynd. Þegar ég hætti á sjoppunni þá ætla ég að fara fram á starfslokasamning. Ég vill alla vega tvær milljónir fýrir mína sex mánuði. Það er bara skiptimyntin hjá henni Ragnhildi. Ég meina, ekki gemr bilið á milli manna verið svo mikið á íslandi. GeirÁgústson ræðir um markmið stjórnsýslunnar. Kosningar framundan Nú er greinilegt að kosningar em framundan í sveitarfélögum ' landsins. Þetta veldur mismunandi viðbrögðum hjá sveitarstjórnum landsins. Sumar gefa eftir fjárþörf sína með því að lækka útsvar eða ýmis gjöld á íbúa sína. Aðrar henda pening í átt að hávæmstu þrýsti- hópunum og vona að þeir og aðrir þegi. Ljóst er að fyrri aðferðin er mun betri þegar til lengri tíma er litið. Þeir sem beita þeirri aðferð að borga fyrir þögn em ekki að lækna nein mein eða eyða deilumálum heldur plástra gmnd- vallargalla á opin- berri stjórnsýslu. Hann er sá að hið opinbera er hvorki neyt- enda- né mark- aðsknúið fyrir- bæri heldur aga- tæki og samfélags- mótari. Leikskólakennarar í Reykjavík þegja kannski ef þeir fá stærri hluta af launum annarra í sína vasa rétt fyrir kosningar. Framtíðarlausn á launamálum leikskólakennara er hins vegar sú sama og í öðmm at- vinnugreinum í harðri samkeppni um vinnuafl, það er að gera leik- skóla háða ánægju viðskiptavina sinna en ekki aðgangi að biðstofu borgarstjóra. Meira að segja sósí- alistarnir f Danmörku hafa áttað sig á því að einstaklingsmiðuð launa- kjör em leiðin til árangurs þótt rekstrarforminu sé að öðm leyti haldið í gíslingu hins opinbera. ís- lendingar hafa engu ástæðu til að vera kaþólskari en páfinn þegar kemur að tröllatrú á stjómmála- mönnum og vantrú á stjómendum frjálsra fyrirtækja. Tai chi - Kung Fu - Hugræn teygjuleikfimi Opið hús frá 3.-7. janúar §l|fc fiiíivfiisb íieilstíiifid Kynning á heilsutei Fjölbreytt tilboð í gangi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.