Dagblaðið Vísir - DV - 05.01.2006, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 5. JANÚAR 2006
Ingvar E. Sigurðsson
leikari og danshöfund
ur Hann var einn þeirra
sem kepptu til sigurs á
Dansleikhússkeppninni i
fyrrasumar.
Menning DV
Systur sýna nyrðra
Krónikan At-
vinnurekandi á
fundi hjáOdd-
fellow-reglunni.
Sjónvarpsáhorfendur á Digital
island og Breiðbandi geta nú
um helgin svissað á DR1 og
horft á fýrsta þáttinn (nýrri
seríu af Krónikunni en fimm nýj-
ir þættir hefja göngu sína á
sunnudag kl. 20 að staðartíma.
Þar hefst sagan að nýju þegar
tvö ár eru liðin frá dauða sonar
sjónvarpsfabrikkueigandans,
þess sem nældi sér (jósku
prestsdótturina fyrir margt
löngu.
Reyndar veröur margt fínt í boði
á DR um helgina. Á sunnudag
kl. 12.10 á staðartíma hefst röð
heimildarmynda eftir Paul Mart-
insen: Krigerneer hún kölluð.
Þar er endurvakin gömul tilraun
frá 1971 þegar bandaríski sál-
fræðingurinn Philip Zimbardo
réði hóp stúdenta við Stanford
til að fara í leik. (gluggalausum
kjallara var komið upp fangelsi
og hópnum skipt í fanga og
fangaverði. Hver maður fékk
hlutverk og á sex sólarhringum
tókst að breyta dagfarsprúðu
fólki í kúgara. Hippar urðu hat-
ursfullir ofbeldissinnar sem
brutu félaga sína, fangana,
skipulega niður.
Martinsen endurtekur tilraun-
ina á sunnudag. Hvað er grunnt
á illskunni í okkur: úr hálfu þús-
undi sjálfboðaliða eru valdir
venjulegir menn í hóp sem fer í
leik fyrir framan tökuvélar. Þeim
er skipt í lið sem keppa í alvöru
„stríði". Skráning atburðanna
leiðir (Ijós að það er ekki til-
tökumál að umbreyta. Martin-
sen kallar rannsókn sína leit að
illskunni í okkur öllum.
Kynnlngar á ýmsum þeim evr-
ópsku rásum sem í boði eru á
stafrænu stöðvunum eru fá-
breyttar ((slenskum fjölmiðlum
en allar þessar stöðvar halda úti
vönduðum dagskrársiðum á
vefnum sem auðvelt er að elta
uppi gegnum leitarvélar. Á
mörgum þeirra eru líka tenglar
inn á útvarpsstöðvar þeim
tengdar sem bjóða uppá
streymi um vef. Áhugasamir
menn um heiminn handan
hafsins geta fylgst með stærri
miðlum en þeim sem hér eru í
boði.
limsjón: Páll Baldvin Baldvinsson pbb@dv.is
A laugardag þann 7. janúar kl. 16 opna Ingileíf og Aslaug Thorlacius sýningu i
Gallerí + á Akureyri. Áslaug sýnir Ijósmyndir og teikningar af islenskum blóm-
um en Ingileif sýnir myndbandsverk um hund sem fæddur er á Akureyri. Þess
má geta að þær systur eiga
sjálfar rætur að rekja til Eyja-
fjaröar og nærliggjandi sveita
og eru þannig komnar heim á
sinn hátt. Allir eru hjartanlega
velkomnir á opnun þeirra en
Galleri + er til húsa að Brekku-
götu 35. Það er opið laugar-
daga og sunnudaga milli kl.
14og 17 og eftir samkomu-
lagi þar til sýningunni lýkur
sunnudaginn 29. janúar.
Danskir iðnrekendur vilja auka hlut framleiðenda í einkarekstri í dagskrá
Danska Ríkisútvarpsins. íslenskir framleiðendur hafa lengi haft þá kröfu uppi
gagnvart Ríkisútvarpinu en talað fyrir daufum eyrum stjórnvalda.
Ríkisútvnpp skal vera drii-
kranur fvrir framleiðendur
Danska Ríkisútvarpinu ber að
láta sjálfstæða framleiðendur
vinna stærri hluta af dagskrárefnis
sínu, segja Samtök danskra iðn-
rekenda í nýrri stefnuskrá um fjöl-
miðla sem kynnt var á mánudag
samkvæmt fréttum Politiken.
Framkvæmdastjóri Samtaka
iðnrekenda, Paul Scheuer, orðar
það svo: „Danska ríkis-
útvarpið á að
vera drifið f
eiginleg-
um
dönskum
fjölmiöla-
iðnaði. Því
á stofnun-
in að
J son útvarps-
I stjóri Ókunnur
I er vilji hins nýja
I embættismanns
] til að færa verk-
I efni til einkaað-
| ila.
færa fleiri störf til einkaaðila en
hún gerir í dag. Það myndi leiða til
jákvæðrar þróunar í atvinnugrein
sem býr yfir verðmætri þekkingu
sem Danska ríldsútvarpið getur
nýtt sér." Samkvæmt frásögn
Politiken er í starfssamningi Dan-
marks Radio gert ráð fyrir að 12%
af dagskxá sé framleitt af einkafyr-
irtækjum. Samtök iðnaðarins vilja
að það hlutfall hækki í 25% á
næstu árum. Sömu reglur skuli
gilda um TV2.
í stefnuskrá iðnaðarins er full-
yrt að Ríkisútvarpið leggi of ríka
áherslu á eigin framleiðslu og
skekki þannig aðstæður á mark-
aði. Þá leggja iðnrekendur ríka
áherslu á að ríkisútvarpið haldi sig
frá dagskrárgerð sem einkastöðvar
ráðist helst í. Samkeppni sem
haldið sé uppi af afnotagjöldum
eigi ekki rétt á sér.
Umræða í Danmörku endur-
speglar deilur sem hafa ratað
inn í hvíta bók Verkamanna-
flokksins í Bretlandi, en þar
hafa stjómvöld neytt risann
á breskum fjölmiðlamark-
aði til að bjóða æ meira út
af dagskrárframleiðslu. Á
sínum tíma var einka-
stöðin Channel 4 sett á
stofn beinlínis til að
styrkja einkarekstur í
framleiðslugeiranum.
Hér á landi hefur það
verið ósk framleiðenda um árabil
að Ríkisútvarpið gerði meira af því
að kaupa framleitt efni frá einka-
fyrirtækjum. Það hefur verið yfir-
lýst skoðun ýmissa áhrifamanna í
innlendum framleiðsluiðnaði,
eins og Hrafns Gunnlaugssonar og
Hrafn Gunnlaugsson
kvikmyndagerðar-
maður Villað litið sé á
Rikisútvarp sem veitu
fyrir sjálfstæöa framleið-
endur.
Jón Þórs Hannessonar, að
Sjónvarpið ætti að leggja
áherslu á að kaupa eins
mikið inn og mögulegt er
frá innlendum framleiðend-
um.
íslenskir stjómmáiaflokk-
ar hafa myndað skjaldborg
um rekstur ríkisútvarps -
Sjónvarps og Hljóðvarps - og
ekki mátt heyra að á stofnun-
ina yrðu lagðar þær kvaðir
að tiltekið hlutfall dag-
skrár væri framleitt utan
Efstaleitis. Ekki er tekið
á þessu forna álitamáli í
nýju fmmvarpi
menntamálaráðherra
um Ríkisútvarpið hf.
Þorgerður Katrfn ráð-
herra Nýtt frumvarp um Rik- I
isútvarp tekur ekki á skyldum ,
þess gagnvart framleiðslu-
iðnaðisem stendurá brauð-
fótum.
Dansleikhúskeppni haldin í fjórða sinn
Fyrir þremur ámm tóku Leikfé-
lag Reykjavíkur og íslenski dans-
flokkurinn höndum saman og
kölluðu eftir hugmyndum um ný
verk þar sem leikurinn og dans-
inn, orð og æði, rynnu saman í
eina slóð: nýtt fyrirbæri, dansleik-
húsið, kallaði eftir nýjum hug-
myndasmiðum og höfundum. Nú
er kallað í tómið í fjórða sinn: Leik-
félag Reykjavíkur og íslenski dans-
flokkurinn óska eftir hugmyndum
að dansleikverkum fýrir blandað-
an hóp leikara og dansara.
Tilgangurinn er að styðja undir
dansleikhúsformið og kanna
möguleika þess. Hug-
myndin í ár er að taka
enn eitt skrefi í átt að
öflugu íslensku
dansleikhúsi þar
sem eitt verk
verður valið til
frekari þróunar
að keppni lokinni.
Keppnin fer fram í fjór-
um skrefum: „Fáðu hug-
mynd að verki sem sameinar
leikhús og dans og sendu
hugmyndina og upplýsingar
um þig til Borgarleikhússins
fýrir 27. janúar 2006" segir í
fréttatilkynningu LR og fd.
Tólf til fjórtán hugmynd-
ir verða valdar til frek-
ari þróunar. Af þeim
verða síðan sex til
hugmyndir
valdar til útfærslu
með þátttöku lista-
manna íd og LR.
Boðið er upp á að-
stöðu í Borgar-
leikhúsi til
vinnslu verksins. Síðasta skrefið er
svo hið árlega keppniskvöld
haldið á Stóra sviði Borgarleik-
hússins í júní. Skipuð dómnefnd
veitir þrenn verðlaun og áhorf-
endur þau fjórðu. Aðstandendur,
íd og LR, velja síðan eitt verk til
frekari þróunar.
• Útlistun á hugmynd ásamt
upplýsingum um höfund/höf-
unda skal merkja „dansleik-
húskeppni" og senda með tölvu-
pósti til borgarleik-
hus@borgarleikhus.is fýrir 27.
janúar 2006.