Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Side 12
12 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006
Fréttir DV
Snarræði í
flugi
SAS-farþegaflugvél með
268 farþega var 40 sekúnd-
um ffá árekstri við hol-
lenska farþegaþotu frá KLM
á laugardag. Atvikið er talið
mjög alvarlegt þrátt fyrir að
enginn hafi slasast um borð
í vélunum tveimur. Það
voru árekstrarvarar flugvél-
anna sem vörnuðu árekstri
vélanna. Þeir gáfú flug-
mönnum SAS-vélarinnar
boð um að hækka flugið og
hollensku flugmönnunum
að lækka flugið.
Marglytta
drepur
í Norður-
Queensland í
Ástralíu lést
sjö ára stúlka
í gær eftir að
hafa verið
stungin af
marglyttu.
Hún hafði komið upp úr
sjónum og fallið í yfirlið hjá
foreldrum sínum. Hún var
flutt í skyndi á sjúkrahús en
lést eftir árangurslausar til-
raunir lækna til endur-
lífgunar. Jamie Seymour,
læknir á sjúkrahúsinu, segir
að þessar tegundir
marglyttna séu meðal eitr-
uðustu lífvera í heimi. Þær
lifa á fiskum og smádýrum.
Jesúsfyrir
rétti
ítalskur
dómstóll á
nú að skera
úr um ára-
tugalangt
rifrildi
tveggja
skólafélaga
sem hafa
deilt um
tilveru Jesú
Krists. Þeir
Enrico Righi og Luigi Casci-
oli eru á áttræðisaldri núna
og höfðu valið hvor sína
lífsleiðina, Righi sem prest-
ur og Cascioli sem guðleys-
ingi. Cascioli vill nú fá Righi
dæmdan fyrir að blekkja og
svindla á fólki og fyrir að
villa á sér heimildir. Casci-
oli viðurkennir þó að hann
eigi litla möguleika á sigri,
en telur mikið til unnið að
fá Righi til að sanna að
Jesús hafi verið lausnari
mannkyns.
Álfheiður Rut Ragnarsdóttir, Friðrik Halldór Kristjánsson, Hugrún Pálmey Pálma-
dóttir og Kristófer Örn Sigurðarson sviku fé út úr tveimur bönkum með fölsuðum
víxlum. Álfheiður Rut gerði einnig samkomulag við Lýsingu hf. um yfirtöku á bíla-
samningi á fölsuðu nafni að andvirði 1,3 milljónir. Samanlagt tókst hópnum að
svíkja út tæpar tvær milljónir.
Álfheiður Rut Ragnarsdóttir, Friðrik Halldór Kristjánsson, Hug-
rún Pálmey Pálmadóttir og Kristófer örn Sigurðarson
ákærð fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa svikið
út fé fyrir tæpa 1,8 milljónir með tveimur fölsuðum
víxlum og með samkomulagi um yfirtöku á bíla-
samningi á fölsuðu nafni haustið 2003 og í janú-
ar 2004. Ástæða svikanna er sú að Friðrik var svo
djúpt sokkinn í neyslu og skuldugur að hann fékk
félaga sína sem voru þá einnig í mikilli neyslu til þess
að aðstoða sig við svikin.
eru
„Ég kom bara nálægt einum
víxU," segir Kristófer en hann er
meðlimur í Vítisenglununum og vill
meina að þeir séu góðgerðafélag en
ekki glæpasamtök eins og almennt
er talið. Kristófer var í mikilli neyslu
þegar afbrotin voru framin en er
hættur í því í dag og segir sjálfur að
honum hafi aldrei liðið betur.
Ekkert mál að fá féð
„Það var einhver díler sem sann-
færði mig um að ef ég reddaði bíl
handa honum myndi ég fá fullt af
dópi," segir Kristófer en tekur fram
að hann muni ekki mikið eftir þessu
tímabili því hann var í mikilli neyslu
og þegar svikin áttu sér stað var hann
búinn að vera vakandi á amfetamíni
í ijóra daga og ekkert búinn að
borða.
Búnaðarbankinn
„Ég vi/di bara fá sjón-
varpið mittaftur.
„Það er eiginlega ótrúlegt að
gjaldkerinn í bankanum hafi ekki
sagt neitt þegar ég framvísaði víxlin-
um,“ segir Kristófer en víxillinn
hljóðaði upp á 155 þúsund krónur.
Kristófer fór ásamt Álfheiði Rut í
Búnaðarbanka íslands í Hverafold
og sveik út féð. Kristófer segir að það
hafi ekki verið mikið mál að fá pen-
ingana í hendumar.
Vildi sjónvarpið aftur
„Friðrik var búinn að taka sjón-
varpið mitt og setja það upp í
pant," segir Álfheiður Rut Ragn-
arsdóttir, ein hinna ákærðu, en
Friðrik bjó hjá henni þegar brotin
vom framin. Álfheiði er gefið að
sök af hafa svikið fé út úr spari-
sjóð upp á 250 þúsund
krónur með víxli og
einnig fyrir að hafa
gert samkomulag um
yfirtöku á bflasamn-
ingi á fölsuðu nafni
að upphæð 1,3
milljónir. Álfheið-
ur segir að hand-
rukkarar hafi komi
heim til hennar og
dregið Friðrik út
og lamið hann lítil-
lega, en hann hafi
slopp-
ið vel það
skiptið.
..Ég
vildi bara
fásjónvarp-
ið mitt aftur,"
segir Álfheiður
og áréttar að hún
hafi ekki vitað af fyrri
víxlinum en játar hin
brotin á sig.
Friðrik mætti ekki í fyr-
irtöku málsins og er að sögn
Kristófers í áfengismeðferð.
Sjálft bíður málið hins vegar
aðalmeðferðar í héraðs-
dómi.
valur@dvJs
'
wm
- i®*.- ■
Kristófer Örn Sigurðarson
Vítisengill og fjársvikari.
Sveitarstjóri segir stjórnarflokkana skeytingarlausa um sveitarfélög
' „Hér er átta stiga hiti, dálítiö
hvasst en allur snjór farinn,"
segir Guðný Sverrisdóttir,
sveitarstjóri í Grenivík.„Ég var
aö klára drög að þriggja ára
áætlun fyrir sveitarfélagiö og
á morgun erum viö að fara að
skoöa ________
Landsíminn
skipu-
leggja sumarahúsa- og frl-
stundabyggð sem áætlað er
að rlsi rétt ofan við Grenivlk. I
kvöld ætla ég svo að fara I bló
aðsjá A Little Trip to Heaven."
Hunsa neyðarkall frá Djúpavogi
„Á undanförnum árum hefur
íbúum í Djúpavogshreppi fækkað
verulega án þess að það hafi leitt til
sjáanlegs sparnaðar í rekstri á sama
tíma og sveitarfélagið hefur fengið
með einhliða valdboði ný verkefni
að gh'ma við, án samsvarandi tekju-
stofna," segir Björn Hafþór Guð-
mundsson, sveitarstjóri á Djúpa-
vogi, á vefsetri hreppsins.
Bjöm segist hafa sent tíu þing-
mönnum Norðausturkjördæmis
bókun sveitarstjórninnar um að hún
harmaði þær rekstraraðstæður sem
Alþingi búi fámennum landsbyggð-
arsveitarfélögum. Djúpavogshrepp-
ur verði gerður upp með 10 milljóna
króna tapi á þessu ári gangi áætlanir
eftir.
„Sveitarstjórnin telur nauðsyn-
legt að viðhalda tiltölulega háu
þjónustustigi í sveitarfélaginu og
neitar að láta ríkisvaldið knésetja sig
með því að halda niðri tekjustofhum
og þar með að senda íbúum þau
skilaboð að fara þangað, sem grasið
kynni að vera grænna," segir Bjöm
Hafþór og kvartar undan dræmum
viðbrögðum þingmanna. Aðeins
þrír stjórnarandstæðingar hafa svar-
að:
„Það vekur óneitanlega athygli að
enginn stjórnarþingmanna hefur
látið svo lítið að tjá sig við talsmenn
sveitarfélagsins um bókunina," segir
sveitarstjórinn og gagnrýnir stjórn-
málamenn fyrir að ræða vanda jað-
arbyggða aðeins á tyllidögum.
Þá segir Björn Hafþór það vera
umhugsunarefni hjá fjölmörgum
kjósendum víða um land hvort ekki
sé tímabært að skipta um „karlana í
brúnni" og ráða nýja háseta:
„Það er alla vega ljóst að ég mun
hugsa mig vel um, áður en ég legg
mitt litla lóð á þá vogarskál og
reyndar hefur mér tekizt að ganga
óbundinn til allra kosninga til þessa
og aldrei látið blindazt af trúnni á
hinn Eina Stóra Sannleik. Á þessu
stigi em íbúar Djúpavogshrepps
upplýstir um málið, en
þeir eða aðrir á eng-
an hátt hvattir til
að taka afstöðu
til þess, enda
ljóst að þeir
kunna að horfa
á málið í víðari
mynd en und-
irritaður, sem
blöskrar
skeytingar-
leysi hluta af
Valgerður Sverrisdótt
ir Svarar ekki sveitar-
stjóminni á Djúpavogi.
þingmönnum okkar vegna neyðar-
kalls um leiðréttingu
á tekjustofn-
um sveit-
arfélags-
ins.“ m
Bjorn Hafþór Guðmunds-
son Sveitarstjóra blöskrar
skeytingarleysi stjórnarþing-
manna.