Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Side 14
14 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 Fréttir DV • f kjölfar kaupa Baugs, FL Group og fleiri aðila á þriðjungi hluta- fjár í íslands- banka af Straumi- Burðarás gera menn því skóna að dagar Bjama Ármannssonar sem bankastjóra séu senn á enda. Er rætt um að Ei- ríkur Jóhannesson, fyrrverandi forstjóri Og Vodafone og Dags- brúnar, sem sinnir nú sérverkefn- um fyrir Baug, sé líklegur til að- setjast í stól Bjarna þar sem ekki er mikill vin- skapur á milli bankastjórans og eiganda Baugs, þá sérstaklega JónsÁsgeirs Jó- hannessonar... • Stjórn Hesta- mannafélagsins Gusts hefur loks- ins gripið í taumana og ákveðið að nýta sér forkaupsrétt sinn á hesthúsum félagsmanna í Kópavogi en nokkrir einstaklingar, með athafnamanninn Engilbert Runólfeson í farabroddi, hafa ver- ið duglegir við að kaupa hesthús af félagsmönnum á uppsprengdu okurverði. Áædanir Engilberts og félaga ku hafa miðast að því að kaupa öll hesthúsin og rífa þau síðan til að rýma fyrir gríðarlegu stórhýsi. Sá draumur virðist á enda nú þegar hestamenn hafa sjálfir spyrnt við fótum... ■■pPjMH • Þingmaðurinn Kristinn H. Gunn- arsson heldur áfram að skapa H sér vinsældir inn- an þingflokks B A Framsóknar- tlokksins. Kristinn j-[ hefur verið upp á kant við forystu flokksins í langan tíma en haft hljótt um sig að undanfömu. Hann sýndi hins vegar klærnar í síðustu viku þegar hann gekk til liðs við minnihlutann í umhverfisneíhd sem er allt í einu kominn í kjörstöðu gagnvart Norð- lingaölduveitu og verndun Þjórsár- vera. Hætt er við að Kristinn sé með þessu kominn út í hom í flokknum og verði vart á lista hans í næstu kosningum... # Mikil pressa er á Viggó Sigurðs- syni, þjálfara ís- lenska landsliðs- ins, að ná toppár- angri á Evrópu- meistaramótinu í Sviss sem hefst síðar í þessum mánuði. Ef íslenska liðið nær ekki einu af sex efstu sætunum gæti bailið verið búið hjá Viggó. Forráða- menn HSÍ hafa líka fengið þetta fi'na eftirmannsefni fyrir Viggó en Alfreð Gíslason er atvinnulaus næsta eina og hálfa árið eftir að honum var sagt upp hjá Mag- deburg. Alfreð þykir vera einn af bestu þjálfumm heims og því harla góður kostur fyrir ungt og efnilegt landslið íslands... Eftir heilsubrest Ariels Sharon, forsætisráöherra ísraels, í síðustu viku hafa stjórn- málaskýrendur velt vöngum yfir hvernig stjórnmálaflóra landsins muni líta út að Sharon gengnum. Stóru spurningunni er ósvarað, en margir eru nefndir. Hver fetar í íótspor Sharons? Það er ljóst að Sharon skilur eftir sig stjórnmálalegt tómarúm í ísrael. Hann sagði sig úr Iikúdbandalagmu fyrir skemmstu og stofnaði nýjan stjórnmálaflokk, Kadima. Það er allsendis óvíst hvemig fari með flokkinn nýja, þótt kannanir sýni að hann ttiyndi fá allt að þriðjung þingsæta á Knesset, þingi ísraels. Pólitísk ítök Ariels Sharon vom og em gífurleg. Sjaldan hefúr einn maður valdið eins miklum taugatitr- ingi í ísrael, enda hefur hann bæði verið hataður og dáður fyrir ákvarð- anir sem teknar hafa verið í hans stjórnartíð. Ein sú umdeildasta var að færa landsvæðin á Gaza-svæðinu og Vesturbakkanum undir yfirráð Palestínumanna. Það varð til þess að þáverandi flokkur hans, Lík- ' údbandalagið, splundraðist í af- stöðu sinni til ákvörðunarinnar. Honum þótti því heillavænlegast að segja sig úr flokknum og stofna nýj- an ásamt Simon Peres, fyrrverandi forsætisráðherra. Binyamin Netanyahu Einn hinna mest hægrisinnuðu stjómmálamanna í sögu ísraels sett- ist í forsætisráðherrastólinn árið 1996. Netanyahu er sá yngsti sem hefur setið í því sæti í ísrael. Þremur árum síðar tapaði hann sæti sínu til Verkamannaflokksins og í kjölfarið leiðtogasæti Líkúdbandalagsins til Ariels Sharon. Netanyahu hefur á undanförn- um mánuðum aukið vinsældir sínar í landinu, en er talinn ólíklegur eftir- maður Sharons þar sem fylgi Ehuds Olmert er töluvert meira. Ehud Olmert Olmert er starfandi forsætisráð- herra ísraels og er reyndur stjórn- málamaður. Hann skortir þó þann sannfæringarkraft sem einkennir Sharon og hefur ekki unnið sér inn eins mikla hylli og hann. Hann er sextugur að aldri - tiltölulega ungur miðað við aðra í stjómmálum lands- ins. Olmert var áður borgarstjóri í Jerúsalem og hefur verið einn helsti stuðningsmaður Sharons í embætti. Þrátt fýrir að hafa áður stutt land- nemabyggðir gyðinga á Gaza og Vesturbakkanum hefur hann lýst því yfir að eina ieiðin til að tryggja til- vem ísraels sé að gefa landsvæðin eftir. Hann hefur löngirm biðlað til Simons Peres til að halda honum innanbúðar í ríkisstjóminni, en Per- es gekk til liðs við Sharon við stofn- un Kadima-flokksins í síðasta mán- uði. Tzipi Livni Næst eftir Ehud Olmert er hin 47 ára Tzipi Livni talin líklegust til að taka við stjórn Kadima-flokksins eft- ir fráhvarf Sharons. Hún var áður lögmaður leyniþjónustu ísraels, Mossad. Livni varð dómsmáiaráð- herra árið 2003 og hefur náð að afla sér mikilla vinsælda í ísrael. Hún fylgdi Sharon að málum og gekk úr Líkúd til að stofna Kadima. Barátta Livni við Olmert um áhrifastöður innan flokksins hefur gefið ísraels- mönnum forsmekk af þeirri baráttu- konu sem Livni hefur að geyma. Gagnrýnendur segja þó að Livni skorti öflugan pólitískan bakgmnn. Augu heimsins fylgjast með Fráhvarf Sharons úr stjómmál- um á hátindi ferilsins hefur skilið eftir sig skarð í ísraelskum stjóm- málum. Oft hefur verið sagt að land- inu sé fjarstýrt af Bandaríkjamönn- um en í Sharon fundu þeir sér góðan félaga. Stjórnmálaskýrendur telja að áhrif Bandaríkjastjórnar verði tölu- verð þegar að kosningum kemur, en til þeirra hefur verið boðað 28. mars. haraldur@dv.is Binyamin Netanyahu Var áður forsætisráðherra og vill afturþangað. Oft hefur verið sagt að landinu sé fjarstýrt af Bandaríkjamönn- um en í Sharon fundu þeir sér góðan féjaga. ^ Hátíðarræða páfa í Vatíkaninu Sjálfsmorðssprengjuberi skilur vel við Páfinn skírir og fordæmir Benedikt XVI páfi tók virkan þátt í hátíðahöldum kaþólsku kirkjunnar um helgina þegar skírnar Jesú Krists var minnst. Við það tækifæri skírði hann 10 börn - fimm drengi ög fimm stúlkur. í tali sínu mælti hann gegn því sem hann kallaði „menn- ingu dauðans" og hvatti fólk til að vakna til meðvitundar um lífið. „Á þessum dögum verðum við að segja nei við hinni ráðandi menn- ingu dauðans," sagði páfi í Sixtínsku kapellunni. „Einhvers konar and- menning hefur komið upp á yfir- borðið sem einkennist af flótta til fíkniefna og frá raunveruleikanum." Páfi sagði menningu dauðans ein- kennast af skynvillum og falskri hamingju sem kristallast í kynlífi og öllu því sem því tengist. „Kynlíf er orðið að eintómri ánægju án ábyrgðar." Benedikt páfi notaði ekki mörg orð til að lýsa hvað hann átti við með „menningu dauðans," en forveri hans, Jóhannes Páll páfi II, hafði oft notað orðasamhengið í sambandi við fóstureyðingar og getnaðarvarnir. „Þetta er þitt já við Kristi og nei við forsprökkum dauðans," sagði páfi við ungbörnin sem skírðust tii kaþólsku við tækifærið. Lætur milljónir eftir sig Shehszad Tanweer, einn hinna fjögurra sjálfsmorðssprengjumanna sem drápu 52 í neðanjarðarlestar- stöðvum í London þann 7. júlí, lét eftir sig fúlgur fjár. Lögreglan í London rannsakar nú hvemig hinn ungi Tanweer gat komið sér upp slíkri upphæð, en útilokar ekki að hún sé tilkomin vegna ólöglegrar starfsemi. Scodand Yard hefur rann- sakað bakgmnn mannanna fjögurra en hefur ekki komist að niðurstöðu um hvort þeir hafi haft einhverja yf- irmenn sem samstilltu árásina. Tanweer fór til Pakistans árið 2004 og gekk þar í skóla sem ís- lamskir öfgatrúarmenn reka. Leyni- þjónustan MI5 hafði áður haft Tanweer undir smásjá sinni, en komist að þeirri niðurstöðu að ekki stafaði veruleg ógn af honum. Það má leiða að því líkur að sú niður- staða hafi verið röng. Fórnarlamba minnst Þann 7.júlílét- ust 52 saklausir borgarar í árás fjórmenninga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.