Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Qupperneq 15
DV Fréttir MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 15 Nemó smíðaður í Þýskalandi Hagleiksmenn á kafbáti Reinhard Kiister og félagi hans voru ánægðir eftir jómfrúrferð kaf- báts sem hann sjálfur smíðaði. Ferðin var farin í Helene-see ná- lægt Frankfurt í Þýskalandi og gekk mjög vel að sögn Ktisters. Kafbáturinn heitir í höfuð sögu- hetju kvikmyndarinnar Finding Nemo og er 3,4 metrar á lengd og 1,75 á breidd. Hann rúmar tvær manneskjur og getur náð allt að 30 metra dýpi. Kúster segir þetta einungis vera áhugamál og stefnir ekki á frekari landvinninga á sviði kafbátasmíðar þar sem smíði Nemó hefur tekið bróðurpartinn af tíma hans undan- farin ár og kostað skildinginn. Skref aftur á bak í friði á Haítí Yfirmaður friðargæslu fremur sjálfsmorð Yfirmaður friðargæslusveita Sam- einuðu þjóðanna á Haítí fannst látinn á hótelherbergi sínu um helgina. Svo virðist sem hann hafi skotið sjálfan sig í höfuðið. Yfirmaðurinn Urano Teixeira Da Matta Bacellar hafði starfað sem yf- irmaður sveitanna í fjóra mánuði. Friðarsveitum SÞ er falið það erfiða verkefni að halda uppi friði á þeim lúuta eyjunnar Hispaniola sem Haítí er á, en hefur lítið orðið ágengt. 3,5 milljónir manna búa á Haítí við slæm- ar aðstæður þar sem skæruhernaður er daglegt brauð og skothríðir eru al- gengar. Talið er víst að dauði Bacellar verði til þess að kosningar í landinu frestist enn frekar. Þær áttu að fara fram í gær en var frestað ótímabundið í síðustu viku. Urano Teixeira Da Matta Bacellar Fannst látinn á hótelherbergi á MYNDLISTASKÓLINN i R E Y K J A v íkI NÁMSKEIÐ VORÖNN 2006 www. my nd listaskol i n n. is OPIÐ HÚS, laugardaginn 14. janúar kl.14-17 í Myndlistaskólanum í Reykjavík, Hringbraut 121 (JL-húsinu) Jarðskjálfti í Aþenu Jarðskjálfti upp á 6,7 á Richter skók stóran hluta Grikklands í gær. Hann átti upptök sfn á sjávarbotni um 200 kílómetra suður af höfuðborginni Aþenu. Áhrifa hans gætti allt til Miðausturlanda. Eignatjón hefur verið nokkuð en ekki hafa borist fréttir af mann- tjóni. Grikkland er mjög virkt jarðskjálftasvæði. Árið 1999 misstu 143 lífið í jarð- skjálfta upp á 5,9 og 60 þúsund manns urðu heim- ilislaus. Heinrich Harrer allur Austurríski fjallgöngu- maðurinn Heinrich Harrer er látinn, 93 ára að aldri. Hann varð frægur fyrir að vera sá fyrsti til að klífa norðurhlið Eiger í svissnesku Ölp- unum og fór í klifurferð til Ind- lands. Hann var hnepptur í varð- hald Breta, en flúði upp í fjöll Tíbet og komst til forboðnu borgarinnar Lhasa. Þar kenndi hann hinum unga Dalai Lama um nokkurra ára skeið. Kvikmyndin Sjö ár í Tíbet var gerð eftir sögu hans, en í henni lék Brad Pitt söguhetjuna Harrer. Lín uýsa Hrogn og Lifur Smálúða,Stórlúða, Laxaflök Fiskibollur,Fiskréttir Fiskbúðin Hafrún Fiskbúðin Árbjörg Fiskbúðin Vör Skipholti 70 Hringbraut 119 Höfðabakka 1 Sími 553 0003 Sími 552 5070 sími 587 5070

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.