Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Blaðsíða 16
16 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 Sport EV ENSKA 6IKARKEPPNIN: Arsenal-Cardifí 2-1 Pires 2 (5., 17.) - Jerome (86.) Barnsley-Walsall 1-1 Blackbum-QPR 3-0 Bellamy 2 (35. og 85.),Todd (16.) Brighton-Coventry 0-1 Chelsea-Huddersfield 2-1 Cole (11.), Eiður Smari Guðjohnsen (82.) Taylor Fletcher (74 ). Cheltenham-Chester 2-2 Ciystal Palace Northampton 4-1 Derby-Burnley 2-1 Hull-Aston Villa 0-1 Barry (60.) Ipswich-Portsmouth 0-1 Silva (36.). Luton-Liverpool 3-5 Howard (30.), Robinson (42.), Nicholls, víti (52 i Sinama Pon golle 2 (61. og 73.), Alonso 2 (68. og 90.!, Gerrard (15 i Man City-Scunthorpe 3-1 Fovvler 3 (47., 55., 63 vítíi Keogh (16.). Millwall-Everton 1-1 Williams (38 Osman (78). Newcastle-Mansfield 1-0 A Shearei (79 i Norwich-West Ham 1-2 Nuneaton-Middlesbrough 1-1 Mmphy. viti (89 i Mendieta (14.). Preston-Crewe 2-1 Sheff. Utd-Colchester 1-2 Sheff. Wed.-Charlton 2-4 Heckmybottom 2(15. og 59 ! Rommedahl 2 112.. 43.1, Holland (26.j, Bent (86! Southampton -Milton Keynes Dons 4-3 Stockport-Brentford 2-3 Stoke-Tamworth 0-0 Torquay-Birmingham 0-0 Watford-Bolton 0-3 Borgetti (10.), Giannakopoulos (33.), VazTe (72.), West Brom-Reading 1-1 Gera, viti (81.) Doyle, viti (83.) Wigan-Leeds 1-1 Connolly (46.) Hulse (87.) Wolves-Plymouth 1-0 Clarke (25.) Burton Albion-Man Utd 0-0 Fulham-Leyton Orient 1-2 John (49 } Easton 116.), keith (43 ) Sunderland-Northwich 3-0 Collins (5 i, Whitehead (40 V Le Tal Uppiýilniar 1 ilma 680 2626 Toxta.vn.rp: 8töö 2 • 160-163 XtOV • 201,303 OK 204 Vlnningstölur laugardaglnn 7.1.2006 6J 9J 10) 2\j 27) Einfaldur 1. vinningur taX*- \ nk. laugardag Z jy J6kertölur vlkunnar Jfikor | 5 | 7 | 5 | 7 P71 Fyrsti vinningur gekk ekki út. LOTT8 iyrt'vora um pnntnaur I ciaÖi, útúrvaldeildarlið Fulham Liðsmenn Leyton Orientfognuðuvel og fengi eftir að hafa slegið enska úrvalsdeildarliðið Fulham ut ur*nsku Nknrkeponinni. Leyton Orient er Þrernurdeildum neðar en Fulh°Jt-------------- Utandeildarliðið Burton Albion fékk sinn skammt af sviðsljósinu í gær þegar að liðið náði frábærum úr- slitum gegn Manchester United á heimavelli en niðurstaðan varð markalaust jafntefli og þurfa liðin því að leika annan leik á Old Trafford eft- ir um það bil eina og hálfa viku. Burton var í raun ekkert langt frá því að skora í fyrri hálfleik þegar bjargað var á línu frá þeim en undir lokin sótti United grimmt og heimamenn voru nánast í nauðvöm þá. Arsenal lenti ekki í sömu vandræðum og United en liðið sigraði Cardiff 2-1 þar sem Robert Pires skoraði bæði mörkin. Það urðu gríðarlega óvænt úrslit á Craven Cottage, heimavelli Fulham, f gær þegar lið Leyton Orient úr þriðju deild kom í heimsókn og bar 2-1 sigur úr býtum. Collins John minnkaði muninn í 2-1 fyrir Fulham í síðari hálfleik og hann fékk gullið tækifæri til að jafna skömmu síðar en hann misnotaði þá vítaspyrnu. Nuneaton náði jafntefli gegn Boro Utandeildarliðið Nuneaton náði jafntefli gegn Middlesbrough á heimavelli sínum á laugardaginn. Leikurinn fór fram við slakar aðstæð- ur á heimavelli Nuneaton en um 6000 áhorfendur hvöttu utandeildar- liðið til dáöa í leiknum. Nuneaton hefði átt að fá vítaspymu eftir að Gaizka Mendieta hafði komið Boro yfir í leiknum en ekkert var dæmt eft- ir brot Gareth Southgate. Allt stefndi í að Boro myndi merja 1-0 sigur þeg- ar Southgate fékk boltann í hendina og nú ákvað dómarinn að dæma vítaspymu. Gez Murphy sem vinnur sem fþróttafulltrúi fór á punktinn og tryggði áhugamönnunum í Nuneaton annan leik gegn at- vinnumannaliði Boro með því að skora. „Þetta var magnað. Stórkostleg frammistaða á stórkostleg- gf um degi. Mér h'ður eins og við höfum unnið leik- inn ef ég á að vera hreinskilinn og stuðn- ingsmennimir munu * muna eftir þessum leik það sem eftir er af ævi þeirra," sagði Roger Ashby, stjóri Nuneaton, sem var í skýjunum eftir leikinn. Stoke í vandræðum Annað utandeildarhð, Tamworth, náði markalausu jafntefli gegn Stoke á útivelli, og Birmingham var stál- heppið að sleppa með markalaust jafhtefli gegn Torquay úr ensku þriðju deildinni, Brynjar Bjöm Gunnarsson og ívar Ingimarsson vom miðverðir í liði Reading sem gerði 1-1 jafntefli við WBA á útivelh, Leon Osman bjargaði Everton gegn Millwall með því að skora jöfnunar- mark undir lokin og þá lenti Wigan í vandræðum með Leeds og gerði 1-1 jafntefli á heimavelh. Mansfield stóð lengi vel í Newcastle á útivelli en gamla kemp- an Alan Shearer kom síðamefnda Uðinu til bjargar undir lokin með því að skora sigurmarkið. Með því marld er Shearer nú orðinn jafn , Jackie MUbum sem marka- læsti leikmaður Newcastle ’V’ frá upphafi með 200 mörk. Þá komst Scunthorpe óvænt yfir á útivelU gegn Manchester City en Robbie Fowler er ekki dauður úr öUum æðum og hann tryggði City sigur- inn með því að skora þrennu í síðari hálfleik. I Sagan endurtekur sig Enn eru Rooney og félagar i , vandræðum með lakari lið. Nokkur ensk úrvalsdeildarlið lentu í vandræðum með neðri deildarlið í þriðju umferð enska bikarsins um helgina. Þar á meðal gerði Manchester United jafn- tefli við utandeildarliðið Burton Albion og þurfa þessi lið að mætast aftur til að fá úr því skorið hvort liðið fer í fjórðu umferð. Fleiri úrvalsdeildarlið þurfa að fara í annan leik gegn liðum úr neðri deildunum en Fulham var eina úrvalsdeild- arliðið sem datt úr leik um helgina. Manchester United og fleiri lið í miklum vandræðum í bikarnum Liverpool lenti í kröppum dansi gegn l.deildarliði Luton Town í þriðju umferð enska bikarsins á laugardaginn Liverpool lenti í miklum vandræðum með Luton Luton-menn voru vel studdir af um 10 þúsund áhorfendum en það var Liverpool sem skoraði fyrsta markið eftir um það bil korter og það gerði Steven Gerrard með fi'nu skoti. Steve Howard og Steve Robin- son skoruðu hvor sitt markið fyrir Luton áður en dómarinn flautaði til leikhlés og allt ætlaði um koll að keyra á Kenilworth Road. í upphafi síðari hálfleiks fékk Liverpool víta- spyrnu, Djibril Cisse steig á punkt- inn en Marlon Beresford skutlaði sér til hliðar og greip spyrnu hans. Nokkrum mínútum síðar braut Scott Carson, markvörður Liver- pool, á Rowan Vine og dæmd var vítaspyrna sem Kevin Nicholls skor- aði úr og kom Luton í 3-1. Margir Liverpool-aðdáendur hafa eflaust óttast þarna hvort að liðið myndi endurtaka leikinn frá því í fyrra og detta úr þriðju umferð enska bikars- ins eftir leik gegn liði úr fyrstu deild en í fyrra lagði Burnley lið Liverpool 1-0. Florent Sinama Pongolle kom inn á sem varamaður og minnkaði muninn áður en Xabi Alonso skor- aði með fallegu skoti af um 35 metra færi. Pongolle kom Liverpool svo yfir með skallamarki á 74. mfnútu en þessi þrjú mörk komu öll á tólf mín- útna kafla. Luton reyndi að freista þess að jafna undir lokin og Beres- ford markvörður fór meðal annars í sóknina þegar að liðið fékk horn- spyrnu í viðbótartíma en það endaði einungis með því að Luton fékk mark á sig þegar Alonso skoraði af um 60 metra færi í autt markið. Rafael Benitez, stjóri Liverpool, var ekki sáttur við leik sinna manna þrátt fyrir góða endurkomu í lokin. „Þegar við vöknuðum var staðan 3-1 fyrir þeim. Við komum til baka og héldum áfram að fara fram en þú hefur ekki efni á að bíða þar til í seinni hálfleik með að byrja leikinn. Ég var ekki ánægður með frammi- stöðuna. Við gáfúm þeim svo mörg tækifæri. En Luton-menn spiluðu vel. Stuðingsmenn þeirra voru frá- bærir en okkar voru það einnig."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.