Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Page 24
24 MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006
Lífíö sjálft PV
FLESTIR VILJA FLOTTA MAGAVÖÐVA
Samkvæmt könnun vilja 60% helst fíotta magavööva. Dave Zinczenko, höf-
undur bókarínnar The Abs Diet Get Fit, Stay Fit Plan, segir aö fólk veröi aö
vera raunsætt þegar kemur aö heilsurækt Þetta sé ekki eins erfitt og viö höld-
um. Þrjár heimsóknir í ræktina sé allt sem þurfi.„Effólk hefur ekki tima til
þess getur þaö mokað snjó á hverjum degi sem mun brenna 100 kalóríur á 10
til 15 minútum en þaö jafnast á viö hálftíma púli ræktinni," segir Dave. Hann
segir bestu æfinguna fyrir kviðinn þá aö leggjast á magann, setja olnbogana
niöur og halda i hálfa mínútur. Þannig þjálfum viö bæöi magann og bakiö.
íslenskir karlmenn velja í auknum mæli að fara í lýtaaðgerðir. Flestir
láta taka fitu af maga og brjósti og fjarlægja þreytumerki úr andliti. Ólaf-
ur Einarsson lýtalæknir segir útlitsdýrkun og góðæri aðalástæðurnar.
Hann segir karlmenn þó ekki komast með tærnar þar sem konur eru með
hælana þegar lýtaaðgerðir eru annarsvegar.
Afengi er
fitandi
Lítið glas af dökkum bjór
SOkcal
Lítið glas af Ijósum bjór
91 kcal
Lítið glas af sterkum bjór
205 kcal
Lítið glas af sætum cider
UOkcal
Lftið glas af rauðvíni
85 kcal
Lftið glas af sætu hvítvíni
118 kcal
Lítið glas af þurru hvítvíni
83 kcal
Lítið glas af freyðivíni
95 kcal
Lítið glas af þurru sherrýi
85kcal
„Það getur verið að karlmenn leiti til lýta-
lækna í meira mæli en áður en sú fjölgun er ekki
mjög mikil,“ segir Ólafur Einarsson lýtalæknir
hjá Domus Medica um lýtaaðgerðir í fegurðar-
skyni. Ólafur segir fjölgun í lýtalækningum al-
menna og góðærið sé ein af ástæðunum. „Það er
náttúrlega ákveðin útlitsdýrkun í gangi í samfé-
laginu en ég held að hún nái misjafnlega mikið
til kynslóðanna," segir Ólafur og bætir við að
raunveruleikasjónvarp og annað sem leggi upp
úr fallegu útliti nái frekar til yngri kynslóðarinn-
ar.
Feimnin mun minni
Ólafur segir breiðan aldurshóp karlmanna
leita til lýtalækna. Flestir séu þeir þó ungir eða á
miðjum aldri. „Flestir sem koma eru frá 25 ára
og allt upp í sextugt, það er mín tilfinning. Aftur
á móti er sjaldgæfara að eldri kynslóðin stundi
þetta þótt dæmi um það séu vissulega til,“ segir
Ólafur og bætir við að umræðan sé alls ekki eins
mikið feimnismál og áður. Hann kom aftur til ís-
lands árið 1986 og þá fylgdi meiri leynd aðgerð-
um af þessu tagi. í dag sé þetta rætt innan vina-
hópsins þótt vissulega séu alltaf einhveijir inn á
milli sem vilji halda þessu út af fyrir sig.
Sjúkleg þráhyggja sjaldgæf
Ólafúr segir vinsælustu aðgerðirnar meðal
karlmanna vera fitusog og lagfæringu á pokum
undir og yfir augum. „Flestir velja fitusog af
maga og jafnvel brjósti og margir vilja láta ijar-
lægja þreytumerki úr andhti. Einnig er smávegis
um nefaðgerðir en lítið um andlitslyftingu og
annað stærra." Hann segist ekki þekkja til öfga-
fullra dæma eins og við heyrum frá Bandaríkj-
unum þar sem fólk er einfaldlega orðið háð lýta-
aðgerðum. „Ég þekki ekki til að einhver kúnni
hafi verið með sjúklega þráhyggju og vilji láta
breyta og bæta aftur og aftur, hvorki í mfnum
kúnnahóp eða félaga minna," segir hann og
bætir við að um ábyrgð lækna sé að ræða. Þeir
verði að segja stopp þegar um þráhyggju sé að
ræða sem komin er út fyrir skynsamleg mörk.
Botox lamar vöðva
Botox hefur heldur betur slegið í gegn í
Bandaríkjunum en notkun þess sem fegurðar-
lyfs þekkist ekki enn á íslandi og lyfið ekki skráð
sem slíkt. „Ég er ekki hrifinn af botoxi því það
tekur andlitshreyfingarnar frá fólki og skerðir
þannig karakterinn. Botox lamar einfaldlega
vöðvana og getur skilur fólk eftir flatt í framan,"
segir hann en býst þó við að efnið rati hingað til
lands innan skamms. „Kemur ekki öll
hingað einhvem tímann?" segir hann.
Olafur bætir við að lýtalæknar hér á landi noti
önnur lyf sem þeir sprauta í hrukkur og að þau
efni séu hættulaus. „Efnin sem við notum em af
sama gmnni og brjósk í liðum. Þau endast þegar
best lætur í tvö ár en þá kemur fólk aftur og við-
heldur þannig áhrifunum."
ódýrt miðað við bílaviðgerðir
Þrátt fyrir að Ólafur greini einhverja fjölgun í
heimsóknum karlmanna til lýtalækna segir
hann karlana hálfdrættinga á við konurnar í
þessum efnum. „Konur em miklu duglegri að
fara í lýtaaðgerðir og ég hugsa að það séu um 5
til 6 konur á móti hverjum karlmanni og jafnvel
meira."
Þegar Ólafur er spurður hvort lýtalækningar
séu dýrar á íslandi segir hann svo ekki vera. „Það
fer náttúrlega eftir því hvemig við lítum á máhð.
Við þykjum ódýrir hérna á íslandi ef við miðum
okkur við hin Norðurlöndin og Bretland, svo ég
tali nú ekki um Bandaríkin. Mér finnst þetta ekki
dýrt ef miðað er við hvað það kostar að fara með
beyglaðan bfl í viðgerð. í samanburði við það
em lýtaaðgerðir ekki dýrar."
indiana@dv.is
... •
Valið faeðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
%
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Gerðu gott kaffi enn betra
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
KaffiS rlstað
Þegar þau kaupir kaffi skaltu
spyrja hvenær þaö var ristað.
Kaffiðerbest degi eða tveimur
dögum eftir að það er ristað. Ef
það er geymt I lofttæmdum
umbúðum dofnar bragðiö ekki
næstu sjö til tlu dagana. Gamlar
kaffibaunir geta orðið afar ollu-
rlkar og bragðlausar.
íír
Kaffið malað
Ekki mala meira kaffi en
þúætlarað nota. Þegar
baunirnar hafa verið
malaðar blandast
bragðmikla ollan þeirra
við loftið og verður því
bragöminna.
Kaffiðgeymt
Aldrei setja kaffi I isskápinn. Kaffið
drekkur í sig bragð og lykt sem fyrir er i
ísskápnum. Passaðu allavega að kaffið
sé aldrei nálægt hvítlauk eða öðrum
matvælum sem gefa frá sér lykt. Efþú
frystir kaffið geturðu geymt baunirnar I
langan tima og það er óþarfi að þiða
það.
Sagakaffislns
Þjóösagan segir að kaffið
hafi verið uppgötvað af
geitahirði sembar nafnið
Kaldi. Eftir aðhafa fylgst
með geitunum slnum fyll-
ast krafti af kaffibaunaáti
borðaði Kaldi nokkrar
baunir sjálfur.
WL
Veldu rétt kaffi
Kaffimenningin á Islandi hefur blómstraö
sfðustu ár. Hægt er að fá ýmsar gerðir og
bragðtegundir. Leitaðu að þinu kaffi. Það er
þarna einhversstaðar.