Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.2006, Blaðsíða 39
0V Síðast en ekki sist
MÁNUDAGUR 9. JANÚAR 2006 39
Spurning dagsins
Laun leikskólakennara?
Gæti ekki lifað á laun-
um leikskólakennara.
„Mér finnst þau ansi iág, allavega
gæti ég ekki lifað á launum leikskóla-
kennara."
Helga Guðnadóttir heilari.
„Þau
mættu hækka.
Maður heyrir að
þau séu allt of
lág."
Magnús Orri
Einarsson.
„Laun-
in eru hneyksli,
allt oflágog
það er hræði-
legt.“
Rannveig Sif
Sigurðardótt-
ir söngkona.
„Þau
eru alveg skelfi-
lega lág. Það er
eiginlega bara
ósanngjarnt
hvað það er ver-
ið að borga
þeim."
Jón ólafsson
kennari.
„Mérlist
mjög illa á laun-
in,þau eru hræði-
lega lág."
Katrín Þrastar-
dóttir nemi.
Launakjör á leikskólum eru í umræðunni. Hefur komið í Ijós að lægstu laun
leikskólastarfsmanna eru 107 þúsund krónur í Hafnarfirði.
Björn vængstýfir
Helstu tíðindi vikunn-
ar voru þau að Björn
Bjarnason, dóms-
málaráðherra, brást
loksins við mistökum
og faglegu óhæfi forystu rik-
islögreglustjóraemb-
ættisins. Hann hefur
kynnt áform um að
vængstýfa emb-
ættið með því að
svipta það
ákæruvaldinu.
Ríkislögreglu-
stjóri heldur
hins vegar emb-
ættinu af því hann
er innvígður og
innmúraður. Flokk-
urinn passar upp á slíka
menn fram í rauðan dauð-
ann.
Akvörðun Björns sýnir þó
svart á hvitu að hann vill
ekki bera ábyrgð á
embættinu meðan
ákæruvaldið er í
höndum núver-
andi forystu
þess - þó hann
treysti sér ekki
til að finna henni
önnur viðfangs-
efni. Akvörðun hans
staðfestir - hvað sem
Björn segir sjálfúr - að í hans
augum einsog Qestra annarra er
embættið undir núverandi for-
ystu faglega óhæft til að fara með
ákæruvald. Reynsla síðasta árs
sýndi einfaldlega að það væri
óboðlegt í réttarríkinu.
Ég sagði á sínum tíma í viðtali
við Blaðið eftir að ákærunar
komu fram í Baugsmálinu að það
væri engin leið að skilja af ákær-
unum hver hefði stolið, hve
miklu - og alls ekki frá hverjum.
Ákærurnar voru einfaldlega illa
unnar og Xítt skiljanlegar. Hvern-
ig eiga menn að verja sig ef ekki
er hægt að skilja ákærurnar?
Það gengur einfaldlega elcki í
réttarríkinu.
Fúskið birtist ekki
aðeins í Baugsmál-
inu, þar sem bæði
Haraldur Johann-
essen og Jón H. B.
Snorrason kolféllu á prófí Hér-
aðsdóms og Hæstaréttar.
Það speglaðist líka í
öðrum stórmálum,
einsog listaverka-
fölsunarmálinu
sem í Hæstarétti
tapaðist einungis
vegna fúskvinnu-
Það hefði skapað
óöryggi hjá borgur-
um ef þessir emb-
ættismenn fengju
að valsa óáreittir
áfram með svo
mikilvægt vald.
Fólk treystir ein-
faldlega embætt-
inu ekki undir
þeirra stjórn. Þess
vegna var rétt hjá
Birni að bregðast við.
Annað hefði verið ábyrgð-
arleysi....
í sporum
Harald-
ar Jo-
hannes-
sen myndi
ég velta
varlega
ir mér að
axla
ábyrgð með
því að segja
af mér emb-
ætti. En auð-
vitað þurfa
menn þess ekki
ef þeir eru
innmúraðir
og inn-
vígðir.
dagsins
Össur Skarphéðinsson alþingismaður ritar á ossur.hexia.net.
Dr. Gunni spáir í næsta skref launaþróunarinnar.
Um: Ójöfnuð
„Allt það besta í lífinu er ókeypis.
Þetta er fínn frasi til að slá á gremju
almúgans, sem horfir með sam-
blandi af undrun og öfund á vell-
auðuga yfirstétt landsins, sem nú
er að spretta upp - tja, það á nú
eiginlega að kalla þetta „langtyfir-
stétt" frekar. Já, ókei, allt það
besta er frítt, en samt... Hversu
ljúft væri það nú ekki að vera með
6 millur á mánuði, þó það væri ekki
nema í einn mánuð. Maður gæti þá
allavega greitt niður yfirdráttinn.
Ef okkar dvergsamfélag sættir sig við
það að sumir séu með laun og fríðindi sem
þorri landsmanna á ekki möguleika á nema vinna í
Víkingalottóinu, þá er samfélagið um leið að segja:
Þetta fólk er betra en þú og á skilið betra líf. Þannigi
hefúr samfélaginu hrakað í það ástand að einn gaur
- segjum kannski gaur sem á pabba sem fékk hluta
af auðlindum þjóðarinnar að gjöf fyrir nokkrum árum
- er að lifa á launum sem fimmtíu gjaldkerar í banka eru
að lifa af, eða áttatíu leikskólakennarar. Ég hef ekki
heyrt neina viðhlítandi réttlætingu fyrir þessu
ástandi. Er þetta ríka lið áttatíu sinnum duglegra en
einn leikskólakennari - eða hvað er málið? Það hafa
alltaf verið til ríkir og ekki ríkir og jafnvel fátækir í
þessu landi. Fyrir stuttu var samt ekíd meiri munur en
svo að talað var um stéttlaust samfélag. Það sjá all-
ir að það er hlægilegt kjaftæði að halda því fram
í dag.
En jæja. Samfélaginu - fyrir utan nokkra
minnuga leigubílstjóra og bitra vinstrimenn,
sem þó þagna um leið og þeir komast á spena,
bara einhvem spena - verður smátt og
komið á þá skoðun að svona geðveikur ójöfnuð
ur sé bara allt í lagi, óhjákvæmilegur í þessu
„samkeppnisumhverfi". Svæfandi blístr-
ið um að „þetta sé í takt við þróun
erlendis" mun smám saman
lægja reiðiöldumar. Og þegar
endanleg sátt hefur náðst um
að sumir séu hér valsandi um á
jjÞað
,gengur nátt-
“rJe£Ta ekki til
aSSP&ae
fSVwSBRSB
‘S'tagi í sinni 3
svortu hexnou
eiiand?1 °9
9í3SÆ?us*
80 sinnum hærri launum en aðrir, verður næsta
skref í átt að þúsund ára ríki kapítalismans stigið. Þá
mun Kári Stefánsson birtast eins og frelsari með rán-
dýra aðferð til að lengja líf þeirra ríkustu - „litninga-
lenging" verður það kallað og bætir öld við hvem
skrokk. Fjandinn hafiða, það gengur náttúrlega
ekki til lengdar að dauðinn sé þama alltaf að flækj-
ast fyrir uppgangi og útrás þeirra moldríku, eins og
glottandi verkalýðsforingi í sinni svörtu hempu,
sveiflandi ljánum og eigandi endalaust lokaorðið.
Nei, það segir sig sjálft að stórmenni með 6 milljón-
ir á mánuði verða að lifa mun lengur en lág-
launapakkið. Hvers vegna í ósköpunum
ekki?
1
Dr. Cunni
SEFUR ALDREI
Viðtökumvið
fréttaskotum allan
sólarhringinn. Fyrir hvert
fréttaskot sem birtist, eða
er notað í DV, greiðast
3.000 krónur. Fyrirbesta
fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000.
Fullrarnafnleyndar
er gætt.
Síminn er
xz