Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Blaðsíða 17
DV Sport FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 17 Enskir segja engan lista til Enn er mikiö skriiaö um hver verði aiitaki Sven-Goran Eriksson seni lanadsliðsþjálíari England' að iokinni HM í sumar. i ga*r- morgun birtu enskir fjölrniölar fréttir aí þ\1 að enska knatt- spymusambandið vteri tneð r sin- utn förum iista yfir þá knatt- sp\Tnustjóra sem þeir vilja helst fá tii starfatís. Þar mun Maríin O’Xeill. fyrntm stjóri Celtic og Leicester. vera efsta riafn á blaði en síðar um dag- inn gtif sam- bandið út yfirlýs- ingu um að eng- inn slíkui' listi væri tii. Huggel missir af HM f sumar Benjamin Huggel sér sjálfsagt mikið eftir því að hafa blandað sér í slagsmtil \’ið tyrkneska leik- menn og þjálfara í lstanbúl í haust. liuggel. sem er svissneskur latidsiiðsmaður, var einn þeirra sent lenti í útistöðum eftir síðari leik liðanna í umspili þeirra um laust sæti á HM í sumar. Sviss vann einvígið og brugðust Tyrkir ókvæða \ið og verða að leika næstu sex heimaleiki sína fyrir luktum dyrum og á erlendri grundu. Huggel var eini leik- maður S\iss sem var refsað og fékk hant sex leikja bann sent þýðir að hann rnissir al- farið af leikjum Sviss á HM í sumar. Vissir þú að? Brasilíumenn byggðu nýjan glæsileg- an leikvang fyrir heimsmeistaramótið í borginni Ríó de Janeiro. Völlurinn fékk heitið Maracana og tók 200 þús- und manns. 435 þúsund tonn af steypu fóru í stúku vallarins sem náði allan hringinn í kringum völlinn og leikvangurinn var sá langstærsti í heiminum. Opinbera áhorfendatalan á úrslitaleiknum var 172.772 manns en talið er að troðinn völlurinn hafi innihaldið um 200 þúsund manns. Aðeins tveir leikmenn spiluðu á síð- ustu HM fyrir seinni heimsstyrjöldina og þeirri fyrstu eftir hana en 12 ár liðu á milli keppnanna. Þetta voru þeir Alfred Bickel frá Sviss og Erik Nilsson frá Svíþjóð. Bickel lék þrjá leiki 1939, þá 20 ára, og svo 2 leiki 1950. Nilsson lék einn leik 1938, þá 22 ára, en síðan alla fimm leiki Svía 1950 en Svíar náðu þar þriðja sætinu. Nilsson var varnarmaður en Bickel sóknarmaður. ítalar unnu Jules Rimet-bikarinn bæði 1934 og 1938 og varðveittu hann á meðan seinni heimsstyrjöld- inni stóð. Ottorino Barassi, starfs- maður ítalska knattspyrnusambands- ins, faldi bikarinn í skókassa undir rúmi sínu á styrjaldarárunum. Bikar- inn var 35 sm á hæð og 3,8 kg á þyngd og var úr silfri en gullhúðaður. DV Sport heldur áfram niðurtalningu sinni fyrir heimsmeistaramótið í knattspvrnu sem fer fram í Þýskalandi í sumar. Fílbeinsströndin trúi Afríku á HM sem komst í undanúrslit Afríkukeppninnar. Di( og landar hans fóru enn lengr^ng?!5|^a í dag úrslitaleik keppnips heimamönnuj^i Jlgyptalandi.^ % ':y' áni full- I>rogba móti Stjörnur liðsins Didier Drogba og Kolo Toure hafa baðir skapad sér nafn i ensku úrvais- deildinni og spila stórt hlutverki i liði Fílabeins■ strandarinnar. DV-mynd: Nordicphotos.AFP Fflabeinsströndin er ein af fimm Afríkuþjóðum sem spila á heims- meistaramótinu í Þýskalandi næsta sumar en sú eina sem komst í undanúrslit Afrfloikeppninnar en Fflabeinsströndin spilar í dag til úrslita um Afrflcutitilinn við heimamenn í Egyptlandi. Hinar þjóðir MAfrflcu á HM 2006 eru Túnis, Angóla, Ghana og Tógó en af þeim komst aðeins Túnis (8 liða úrslit) upp úr riðlakeppninni. Það vakti mikla athygli þegar þjóðir eins og Egyptaland, Kamerún, Senegal og Suður-Afríka sátu eftir heima þegar undankeppnin HM 2006 klárað- ist og það hefur lflca kannski sýnt sig í Afrflcukeppninni að það var jafirvel meira lukka en geta sem kom þessum þjóðum inn á HM. Það búast flestir við því að leik- menn Fílabeinsstrandarinnar vinni úrslitaleik Afríkukeppninnar sem fer fram í Egyptalandi í dag. Úrslitaleik- urinn hefst klukkan 16 og verður sýndur beint á Eurosport sem er inni á Digital íslandi. Fflabeinsströndin á góðar minningar frá sínum eina úr- slitaleik til þessa en þjóðin var Afnkumeistari 1992 í eina skiptið sem þjóðin hefur komist svona langt áður. Liðið hefur vaxið með hveijum leik og eru menn nú á því að liðið sé eina von Afriku á heimsmeistara- keppninni í sumar þar sem Ffla- beinsströndin er með engum smá liðum í riðli; Hollandi, Argentínu og Serbíu. Ætla að sýna heiminum hvað þeir geta Kolo Toure, vamarmaður Arsenal og landsliðs Fflabeinsstrandarinnar, er sannfærður um að hann og landar hans geti skapað usla á heimsmeist- arakeppninni í Þýskalandi næsta sumar. „Við ætlum okkur að koma og sýna heiminum það að við eigum skilið að vera þama. Við erum búin að senda sterk skilaboð um hvað við ætlum okkur að gera næsta sumar," sagði Toure og bætir við. „Með því að komast í úrslitaleik Afrflcukeppn- innar þá höfum við sýnt að við verðum góðir fuiltrúar Afrflcubúa í Þýskalandi. Þetta er okkar fyrsta stór- mót, við erum með ungt lið með meðalaidur í kringum 25 ár og því hefur verið mjög mikilvægt fyrir okk- ur að fá þessa reynslu í Afrikukeppn- inni. Það verður frábært að spila úr- slitaleikinn sem verður sá fyrsti fyrir marga í liðinu," sagði Toure. Ánægður með Drogba Toure er ánægður með fyrirliða sinn, Dider Drogba, félaga Eiðs Smára Guðjohnsen hjá Chelsea. „Hann er ffábær framheiji og það sem skiptir meira máli hann er að skora mörk. Drogba hjálpar liðinu okkar mikið og kemur með mikið sjálfstraust inn í hópinn en því má ekki gleyma að allt liðið okkar er að spila vel." Þjálfari Fflabeinsstrandar- innar, Henri Michel er að gera góða hluti með Iiðið en hann er frægastur fyrir það að hafa gert Frakka að Evr- ópumeisturum árið 1984. Michel fór líka með Morokkó í Afríkukeppnina 2000 og Túnismenn tveimur árum síðar. Egyptar setja met með sigri Egyptar munu setja met vinni þeir úrslitaleikinn gegn Fflabeins- ströndinni í dag því það yrði fimmti Aftíkutitillinn fyrir landið. Egyptar eru ekki með neitt sérstakt lið en hafa farið langt á smðningnum og stemn- ingu í Egyptalandi. Það er líka ljóst að lið þeirra verður án frægasta leik- manns síns Mido hjá Tottenham, sem var settur í bann hjá Egyptum eftir að hafa orðið brjálaður út í þjálf- ara liðsins, Hassan Shehata, sem tók hann útaf í undanúrslitaleiknum. Mido fór útaf á 78. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar skoraði vara- maður hans, Amr Zaki, markið sem kom Egyptum í úrslitaleikinn. ooj@dv.is t Fjórða heimsmeistarakeppnin í knattspymu fór fram í Brasilíu 24. júní til 16. júlí 1950 Úrúgvæ tók loksins aftur þátt og stal heimsmeistaratitlinum af Brasilíu Heimsmeistarakeppnin hafði ekki verið haldin í tólf ár vegna seinni heimssstyrjaldarinnar og þrátt fyrir að stríðinu væri lokið þá gætti áhrifa þess enn þegar fjórða HM fór fram. FIFA lagði mikið kapp á að endurvekja keppnina en ilia gekk að finna Ieik- stað í Evrópu vegna eyðileggingarinnar í stríðinu. Það fór svo að FIFA fór með keppnina til Brasilíu en aðeins þrettán þjóðir tóku þátt þar sem margar for- fölluðust. Þjóðverjar og Japanar máttu ekki vera með, Ungveijar, -sg *? Tékkar og Austurrfldsmenn voru í sárum eftir stríðið, Argentínu- menn voru ósáttir við Brasilíu- menn, Frakkar og Skotar neituðu að fara til Brasilíu þrátt fyrir að hafa unnið sér rétt til þess sem og Indverj- ar hættu við þátttöku þar sem þeir máttu ekki spila berfættir. Það voru þannig aðeins fjórar þjóðir sem tóku þátt sem voru með í síðustu keppni á undan árið 1938; Brasilía, Ítalía, Sviss og Svíþjóð. Það var kominn mikill knatt- spymuáhugi í Brasilíu og alls komu yfir 60 þúsund manns að meðaltali á leik keppninnar sem var met sem ekki var bætt fyrr en í HM í Bandaríkjunum árið 1994. Þar sem engir út- sláttarleikir fóru fram í keppninni, í fyrsta og eina skiptið í sögunni, telja margir að áhugi og stemning Brassanna utan vallar hafi bjargað keppninni. Eftir undanriðlana sem voru ýmist skipaðir tveimur, þremur eða fjórum liðum komust Brasilía, Úrúgvæ, Svíþjóð og Spánn í úrslitariðilinn þar sem allir spiluðu við alla um heimsmeistaratitilinn. Frábær í úrslltaleiknum Juan Alberto Schiaffino sem bar gælunafnið Beinagrindin var frá- bæri urslitaleiknum gegn Brasiliu Þetta er eina HM-keppnin þar sem ekki var úrslita- leikur þó svo að málin hafi þróast þannig að loka- leikur Brasilíumanna og Úrúgvæa hafi verið óopin- ber úrslitaleikur. Brasilíumenn spiluðu frábæran fótbolta og unnu tvo fyrstu leiki sína í úrslitariðlinum gegn Sví- um og Spánveijum með markatölunni 14-2. Það bjuggust því allir við sigri þeirra en Úrúgævar unnu lokaleikinn 2-1. Brössum nægði jafntefli og þeir komust 1-0 yfir en það var besti maður vallarins, Juan Alberto Schiaffino, sem jaftiaði leikinn fyrir Úrúgvæ. Alcides Ghiggia skoraði sigurmarkið 11 mínútur fyrir leikslok. Úrúgvæar voru orðnir heimsmeistarar í annað sinn en þeir höfðu ekki ^ tekið þátt í HM síðan þeir unnu fyrsta HM-titilinn 1930. HM 1950 í BRASILÍU Þátttökuþjóðir: 34 (13 i úrslitum) Heimsmeistarar: Úrúgvæ (2. titilí) Úrslitaleikur: Enginn, úrslitariðill Fyrirliði heimsmeistaranna: Obdulio Muirios Varela Þjálfari heimsmeistaranna: Juan López Leikir: 22 MSrk: 88 (4,00 I leik) Markahæsta lið: Brasilla 22 (3,67 I leik) Ahorfendafjöldi: 1.337.000 (60.773 á leik) Markakóngur: Ademir, Brasilfu 9 mörk h i wmm. 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.