Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2006, Page 21
DV Lífið FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 2006 21 EinarTöns- berg kallar sig Eberg og er á hraðri uppleið í tón- listarbransan- um í London. ÉMllI ddTLr n Einar Tönsberg var í Cigarette með Heiðrúnu önnu á sínum tíma en undanfarin ár heíúr hann starfað undir nafninu Eberg. Fyrsta platan hans heitir Plastic Lions og kom út fyrir þrem árum, en nú er komin út smáskífa og ný stór plata, „VoffVoff", er væntanleg í mars. Á samingi hjá goðsögn „Ég hef búið hérna í London í átta ár,“ segir Einar. „Búinn að dútla og gramsa í tónlist og vinna á tökk- um í hljóðverum. Þegar ég kom hingað fyrst fór ég í upptökuskóla og kynntist þar strákum sem ég stofn- aði rokkhljómsveitina Lorien með. Við gáfum út plötu og fengum ágæt- is athygli. Mugison var í þessum upptökuskóla líka og ég man eftir því að í gegnum Friðrik Karlsson fengum við ágætisdfl í diskaverk- smiðju. Við vorum að gefa út fyrstu sólóplöturnar okkar á sama tíma og vorum mikið í sambandi við Friðrik út af samböndum hans.“ Eberg er nú á mála hjá útgáfufyr- irtækinu Instant Karma. „Þetta merki er rekið af Rob Dickinson sem er goðsögn í bransanum," segir Ein- ar. „Hann var aðalmaðurinn hjá Warner Bros og réð t.d. Madonnu og Rod Stewart. Karlinn hætti hjá Warner eftir tæplega 30 ára feril og stofnaði þá Instant Karma. Hann hefur gefið út t.d. Panjabi MC, Helicopter Girl og I Monster. Kannski engin megabönd en hafa verið að standa sig þokkalega." Útgáfutónleikar á íslandi Nýja platan með Eberg heitir „VoffVoff" og kemur út á Englandi 3. apríl. Nú þegar er komin tveggja laga smáskífa sem fengið hefur fína dóma og góða spilun á útvarps- stöðvum. „VoffVoff er beint fram- hald af Plastic Lions, en kannski vin- samlegri og auðveldari áheyrnar. Þetta eru í raun næstum því hefð- bundin popplög sem ég klæði í skemmtileg föt." Einar yppir öxlum þegar á hann er gengið með áhrifa- valdana en viðurkennir þó að hafa lengið verið Depeche Mode-aðdá- andi og að hann fíli Four Tet. Eberg hefur verið að hamra járn- ið á klúbbum í London og er sveitin bókuð á nokkur festivöl í sumar. Einar kemur fram með sellóleikara, trommara og tölvu. „Tja, það er nú eiginlega búið að reka tölvuna því hún hefur verið að láta illa. Er alltaf annað hvort full eða feimin." Eberg hefur spilað tvisvar á Airwaves og þá er tónleikahald hans á íslandi upptalið. Nýja platan kem- ur út á íslandi hjá 12 tónum í apríl og Einar segist pottþétt ætla að halda útgáfutónleika hér. „Það er líka kominn sá tónn í mig að flytja heim," játar hann. „Ég veit samt ekíd alveg hvað maður ætti að gera heima. En það skemmtilega við þetta að um leið og maður lendir kemur alltaf eitthvað upp í hend- urnar á manni." -mssi Maður í Utah-fylki í Bandaríkjunum fór nið- ur á lögreglustöð í bænum Orem og bar kennsl á 186 gramma graspoka, sem hann sagði vera sinn. Maðurinn var samstundis handtekinn og ákærður fyrir að eiga fíkniefnin sem hann við- urkenndi að hafa ætlað að selja. Málið hófst þannig að maðurinn gerði lögreglunni viðvart, eftir að fíkniefnum hafði verið stolið af heimili hans. Hann sagðist hafa ætlað að selja öðrum manni fíkniefnin, þegar hann tók eftir því að brotist hafði verið inn til hans og graspokanum stolið. Lögreglan var ekki lengi að hafa hendur í hári innbrotsþjófsins, en hann fannst heima hjá mömmu sinni, með grasiö og blóðugar buxur, en hann skar sig á glerbroti í innbrotinu. Innbrotsþjófurinn var ákærður fyr- ir innbrot, þjófnað, og eign á fíkniefnum sem hann væntanlega hugðist selja. „Jafhvel heimskustu glæpamennirnir eru yfirleitt gáf- aðri en þetta," sagði lögreglumaðurinn Doug Edwards. Lögreglumennimir vom undraðir á þeim sem átti efnin, en það gerist ekki oft að maður ekki aðeins viðurkenni að hafa átt í fíkniefni, heldur einnig að hann hafi ætlað sér að selja þau, í einni og sömu semingunni. Kannabis Mað- urinn varmeð 186 grömm afgrasi og lét lögreglu vita.þegar þvi var stolið af honum. Jóhann Bachmann Ólafsson, trommari ( Skítamóral, er 30 ára í dag. „Ástin litar tilveru hans í björtum og ekki síð- ur fögrum litum og honum líkar það vel. Hanner einn af þeim sem kunna þá list að leyfa hverjum fugli að fljúga eins og hann er fiðraður og tekur hlutunum með jafnaðargeði." Jóhann Bachmann Mmber'm (20. jan.-18.febr.) Ekki leyfa tilfinningum eins og hégómleika og afbrýðisemi að hafa áhrif á þig á nokkurn hátt. Skap þitt kann að flækjast fyrir þér um þessar mundir (helgina framundan). Ef þú finnur fyrir pirringi eða óþægindum innra með þér ættir þú að huga að því að hvíla þig og huga að því jákvæða. 41 Fiskamirfíft febr.~20. mars) Alls ekki búast við því að fólk- ið í kringum þig sé fullkomið eða viti hvað það þráir að upplifa. Þú ert fær um að heilla hvern sem nýtur þeirra forréttinda að njóta nærveru þinnar ef marka má stjörnu Fiska. Hrúturinn Qlmars-naprll) Þegar jafnvægið fer úr skorð- um áttu það til að flnna fyrir vanlíðan og jafnvel biturleika af einhverjum ástæðum. Þér er um þessar mundir ráðlagt að efla líkamlegan styrk þinn. Nautið (20.april-20.maí) Fagnaðu hverri stund lífs þíns. Ekki gefa neinum færi á að særa þig næstu misseri og hafðu hemil á þér ef þú finnur fýrir neikvæðni. |ff| lV\bmm(21.mai-21.júnl) Lífið leikur við fólk fætt undir stjörnu Tvíbura. Þú berð sterka ábyrgðartilfinningu gagnvart fjöl- skyldu og vinum og mundu að leiða allt það neikvæða sem verður á vegi þinum frá þér og huga að þeim smá- atriðum sem tengjast þínum nánustu. faabbm(22.júnl-22.júll) Skoöaðu líf þitt sem krafta- verk ef þú kýst að þroskast (rétta átt. Þér er líka ráðlagt að breyta lífi þ(nu til • hins betra með því að gefa eigin til- finningum gaum. LjÓnÍðeJ.yii//-a<f9iisíj Talan sex er þín tala fyrri hluta árs 2006. Heimurinn var skapað- ur á sex dögum. Talan tengist dugnaði þínum og sköpurargleði en hér birt- ast vandamál/hindranir sem virðast flækjast fyrir þér. Meyjan (23. ðgúst-2isept.) Ef þú hefur verið að skipta þér af málum sem koma þér ekki við, ættir þú að draga þig til baka. Gakktu I þau mál sem varða þig og eingöngu þig. Dugnaður, skipulag og breytingar eru áhersluorð dagsins hjá fólki borið í heiminn undir stjörnu Meyju. VoqiO (23. sept.-23.okt.) Ekkert fær hindrað að þú komist þangað sem þú ætlaðir þér og aðstæður fara batnandi. Þú skalt vera þolinmóð(ur) og draga andann djúpt ef þú flnnur fyrir streitu eða álagi. Sporðdrekinng4.ob.-j/.fl<iy.j Atburðir sem þú upplifir um þessar mundir einkennast af umburðar- iyndi, krafti og ánægju hjá stjörnu þinni. Þú ert tilbúin/n að leggja allt í sölumar til að láta drauma þína rætast. Bogmaðurinn (22 n<fe-2/.<fcj Leyfðu þér að vera einlæg/ur, áhyggjulaus og kær gagnvart þeim sem skipta þig máli. Steingeitin (22. fe.-?ftjan.j Ekki láta vandamálln fara i taugarnar á þér. Hvíldu þig og safn- aðu kröftum því margt mun breytast ( nánustu framtíð. Nánast allt fer eins og þú óskar. SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.