Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Síða 10
OPNAÐAR MEÐ KLUKKUTÍMA MILUBIU (DAG,
'INGIN ER MUNASKRA OG ER HALDIN (BANANA
101 GALLER(. SÝNINGARNAR ERU MEÐ ÓUKU
hvAð hulda hAkon hefur verið ad BAUKA
OGMIKNMUS
„önnur sýningin er í Banananas og hin í 101 Gallerí,"
segir Hulda Hákon listakona sem opnar tvær listasýn-
ingar um helgina önnur ber heitið Munaskrá en hin
heitir Ebita.
OPINBER GÖGN
„Ég held að það sé ekki algengt að það sé gerð muna-
skrá eftir látinn einstakling," segir Hulda en sýningin
Munaskrá samanstendur af munum sem voru í eigu Jó-
hannesar Kjarval. „Ég veit ekki hvort ég mundi kæra
mig um að farið væri á vinnustofuna og tekið hvert ein-
asta snifsi sem ég er búin að viða að mér í gegnum tíð-
ina. Ég las þessa munaskrá fyrir nokkrum árum og
fannst þetta mjög falleg lesning," segir Hulda Hákon. A
sýningunni ægir saman kössum sem hafa að geyma
ýmsa persónulega hluti, þar er til dæmis Fálkaorðan og
annar kassi með mynd af Mikka mús.
FANNST ÞETTA FALLEGT ORÐ
Ebita er hugtak sem þýðir raunvirði, hvers vegna
listakonan ákvað þetta orð er erfitt að átta sig á. „Ég
fylgist oft með viðskiptafréttum, þó ég hafi ekki hunds-
vit á viðskiptum en ég hef tekið eftir því að forsvars-
menn fyrirtækja nota þetta orð til að lýsa rekstrinum og
mér finnst það fallegt. Ebita er hægt að heimfæra á
margt annað en viðskiptalffið. Þegar það er búið að
strippa okkur af öllu, hvað erum við þá?‘‘ spyr Hulda
Hákon og vekur þar með upp ýmsar spumingar.
EBITA HULDU ER MAKINDARLEG
Á sýningunni fer ekki fram hjá neinum Ebita sem
liggur berskjöldur á gólfinu. „Hún er makindarleg, ligg-
ur hjá ýmsum hlutum á gólfinu, hún er doldið sæt en
samt smá ljót, viðkunnaleg en samt óviðkunnanleg.
Þetta er frekar dýr en getur líka verið einhvers konar
manneskja. Þetta er kannski eitthvað tengt því að ég hef
unnið með skrímsli áður, þannig að þetta er aðeins
tengt inn í þann myndheim," segir Hulda Hákon um
verkið.
STEYPT (KÍNA
Hulda var í Kína í fyrra, hún var að vinna að verki og
sýndi svo í framhaldi af því. Að sjálfsögðu vakti það for-
vitni og þörf var á að ræða þessa ferð hennar. „Ég er að
fara þangað aftur vegna þess að ég er að vinna að úti-
listaverki sem er verið að fara að sýna eftir mig í Finn-
landi. Við erum ekki með svona málmsteypur héma á
íslandi sem geta tekið svona fíngerða listaverkasteypu,
þannig að ég get ekki með góðu móti unnið þetta hérna
heima. Ég hef unnið með þessum mönnnum áður
þama í Kína og þekkki til staðhátta", segir Hulda Hákon
aðspurð um Kínaferðina og Finnland..
SEJ
„Alright, þessi kvöld hafa verið haldin
núna kannski (svona þrjá mánuði og eru
alltaf á miðvikudagskvöldum" segir
Siggi frændi sem sér um miðvikudags-
kvöldin á Sirkus. „Miðvikudagar urðu fyrir
valinu af þv( að það eru svo skemmtilegir
dagar. Af hverju ekki, það verður að hafa eitt-
hvað að gera í miðri viku á annars hálf dauðum
dögum, það eru tónleikar, djmennska og alls-
konar, bara að það sé smá „activetet". Þetta er
bara spurning um að skapa smá stemmingu",
segir Siggi frændi sem er nú í þessu að gera allt
klárt fyrir næstu tónleika. „Það hafa ýmsar
hljómsveitir og plötusnúðar verið og má þar
nefna Jakobínarína, Chuck hefur þeytt skífum,
Somtime, Síber og Skakkemanage hafa leikið
fyrir áhorfendur. En núna þennan mánuðinn
verður Hudsonvane, dj Curver Toroddsen og
Logn, og núna miðvikudaginn 8. mars er
Shoegaze kvöld. Shoegaze kvöld þýðir að einar
sonic og chuk eru að spila, þetta er tónlista-
stefna sem tengist skóglápi" segir Siggi frændi
sem sér um þessi frábæru kvöld sem snúast um
að hressa aðeins upp á miðvikudagskvöldin.
ÖTLAGINN
HVAÐ HEITIRÐU?
SigríðurTryggvadóttir
HVARERTU?
Hondúras, bý úti f sveit en kem til höfuð-
borgarinnarTegucigalpa um hverja helgi.
HVAÐERTUAÐGERA?
Ég er sjálfboðaliði med samtökum sem
heita AUS,Alþjóðleg ungmennaskipti.Ég
vinn á einskonar sveitabæ þar sem gamalt
fólk býr. Þetta er verkefni sem hollensk
kona stofnaði 1997 og heitirWil Sue-os.
Gamalt fólk sem á engan að getur komið
hingað og fengið frítt fæði, húsnæði og föt.
HEIMILISAÐSTÆÐUR?
Ég bý með sænskri stelpu sem heitir Jo-
hanna. Búum tvær í risastóru húsi sem
skiptist í matsölustað og (búðina okkar.
DAGUR í LÍFIÞÍNU?
Vakna klukkan sjö, byrja að vinna klukkan
átta. Þar sem„Hondúrassar" eru ekki alveg
jafn vinnusamir og við Norðurlandabúar þá
höfum við fullt af pásum.Við erum (vinn-
unni frá átta til fögur en vinnum kannski að
meðaltali fjóra til fimm tíma. Ég bý úti (sveit
svo það er ekki mikið um að vera. Þannig að
eftir vinnu er gripið (bók,farið í göngutúra,
spilað eða horft á imbann.
KOSTIR ÞESS AÐ BÚA f HONDURAS?
Ekkert stressi, hérna er enginn ad flýta sér
og allt í lagi þó hlutirnir gerist ekki fyrr en á
morgun.Veðrið yfirleitt rosagott en reyndar
er farið að verða of heitt. Fólkið er yndislegt,
gestrisið og vill alit fyrir mann gera.
ÓKOSTIR ÞESS AÐ BÚA í HONDURAS?
Glæpatíðnin hér er mjög há. Flestir sjálf-
boðaliðarnir hérna hafa verið rændir.Get
ekki farið ein út eftir klukkan sjö á kvöldin
og við þurfum að taka taxa hvert sem við
förum, þó það sé mjög stutt vegalengd.
HVERS SAKNARÐU AÐ HEIMAN?
Að geta skroppið á kaffihús eða í bíó í miðri
viku. Svo sakna ég Kka íslenska matarins.
UPPÁHALDSSTAÐUR f HONDURAS?
Hverfi (Tegucigalpa sem heitir La Kennedy.
Ég bjó þar fyrsta mánuðinn minn hér (
Honduras og er þar þegar eg kem um helg-
ar til borgarinnar. Kennedy er í uppáhaldi
hjá mér af þv( að þar er svo skemmtilegt
götul(f,göturnar eru fullar af mörkuðum þar
sem er seldur matur og ávextir. Einnig er
þetta hverfi ekki rfkt þannig að maður
kynnist frekar hondúrísku lífi.
fSLENDINGAR ERU...
í stærsta lífsgæðakapphlaupi í heimi.
HONDÚRASBÚAR ERU...
tranquilo (rólegir).
EIN MANNESKJA SEM ÞÚ BIÐUR AÐ HEILSA:
Flóka Hrafni systursyni mínum.