Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.2006, Blaðsíða 18
MdÍMÉÉÉÉ
Ktmuswi m. FHm mm fiu í
ELLEN ERLA EGILSDÓTTIR ER REYKJAVÍKURMÆR SEM BÚIÐ HEFUR
NÁNAST ALLA ÆVI í NÁGRENNIMIÐBÆJARINS. í VETUR AKVAÐ HÚN
AÐ SÖÐLA UM OG ÖÐLAST TILBREYTINGU í LÍFIÐ. HÚN SKELLTISÉR í
HÚSSTJÓRNARSKÓLANN Á HALLORMSSTAÐ. HÚN SEGIST HAFA HAFT
GOH AF ÞVÍ AÐ KÍKJA ÚT Á LAND ÞVÍ ÁÐUR HAFÐIHÚN VARLA KOM-
IÐ ÚT FYRIR HAFNARFJÖRÐ. LISTIN ER ELLEN NÆRTÆK ÞVÍ FORELDR-
AR HENNAR OG BRÆÐUR ERU ÖLL ÞEKKT Á SÍNU SVIÐI. MAMMAN
TINNA ER ÞJÓÐLEIKHÚSSTJÓRI, PABBINN EGILL ER SÖNGVARIOG LEIK-
ARI. SIRKUS RVK FÉKK ELLEN ERLU TIL AÐ SÝNA SÉR HVERNIG DAGUR
í HÚSTJÓRNARSKÓLANUM GENGUR FYRIR SIG.
-
msá snw sciiEKflBit» mm mm
'jttÉ i
HEIMASÆTAN!„ÉG
SÉEKKIEFTIRÞVÍAÐ
HAFA KOMIÐ. SVEITIN ER
ÆÐISLEG, í HÓFI."
DAGURAÐ
tr KVELDIKOMINN!
TAKK FYRIR KOMUNA Á
HALLORMSSTAÐ."
ÆTLAR AÐ VERÐA FATA-
HÖNNUÐUR! ELLEN ERLA
ÆTLAR í FATAHÖNNUN (
LISTAHÁSKÓLANUM EFTIR
ÚTSKRIFT ÚR MENNTA-
SKÓLA. ELLEN ERLA FÆR 30 ||
EININGAR FYRIR ÖNNINAI
HALLORMSSTAÐ SEM ER
MEIRA EN Á ÖNN í VENJU-
LEGUM FRAMHALDSSKÓLA
EBA MENNTASKÓLA.
g vaknaði klukkan 7:30. Auðvit-
að þarf ég að búa um rúmið og
hafa allt fínt áður en einkunna-
gjöf fyrir almenna umgengni
hefst. Mínar einkunnir hafa
ekki verið háar, er líka frekar
mikil subba en þetta er allt á
batavegi.
Þessa vikuna eru það ég og Freyr skóla-
bróðir minn sem sjáum um morgunmatinn
svo ég þarf að vakna 20 mínútum fyrr tii að
setja morgunmat á borðið. Það er skyldu-
mæting í morgunmatinn. Fyrsta daginn
mætti ég nývöknuð á bleiku snoopy-náttföt-
unum mínum og Kolbrún aðstoðarskóla-
meistari var ekki sátt, sagði að í morgmæti
maður fullklæddur og greiddur. Það eru regl-
ur hérna sem eru oft mjög tiigangslausar og
kannski of gamaldags. Kennararnir punkta
niður einkunnir fyrir nánast alit sem við ger-
um. Svo maður þarf að gera allt vel og vand-
lega
Fyrsti tíminn í dag er veitingatækni klukk-
an 8:30. Þar um innra eftirlit. Þar er líka farið
út í þjónustu og framkomu við viðskiptavini.
Ég er búin að læra að taka diska af borðum og
halda á þeim eins og alvöru þjónn. Helena
vinkona mín er einmitt að fara í prufu að
þjóna á Broadway næsta laugardag, ég kem
einmitt heim og get kennt henni
taktana.
Skólastjórinn, Þráinn Lárus-
son, kennir þetta fag hann hefur
sterkar skoðanir á þessum málum
enda stjómmálamaður svo þessir tímar eru
svona hálfgerð predikun. Við gemm oft lent
upp á móti hvort öðru í tímunum og getum
verið mjög ósammála. Eftir á er svo bara hleg-
ið að því.
Mér finnst rosalega kósí að sitja bara öll
saman að sauma. Klukkan 10:30 hefst sauma-
tími. Strákamir em ekki að standa sig neitt
rosalega vel í þessu fagi og vilja frekar fá að
vera í eldhúsinu en það er nú samt gaman að
sjá þá reyna að þræða saumavél. Ég er að
sauma buxur núna sem ég hef einn dag til að
klára. Þétta nám er mjög mikil vinna og ég
þarf að vera rosalega skipulögð og nýta tím-
ann minn vel.
Meðan minn hópur saumar er allt á fuliu í
eldhúsinu. Ef maturinn er ekki tilbúinn á rétt-
um tíma verður skólastjórinn alveg æfur og
við viljum sko ekki hafa hann svoleiðis, svo
krakkamir hafa aUtaf hraðann á. Matarlyktin
berst inn í saumastofu og brátt verður hringt í
mat.
Búið er að leggja á öll borð og í dag fáum
við mjög íslenskan mat. Ég fékk að smakka
saltkjöt og baunir í fyrsta skipti, ótrúlegt en
satt!!! Þetta er líka bara borðað á sveitabæj-
í hádegishléinu þarf ég að þrífa umsjónina
mína en það eru svæði sem okkur er úthlutað
vikulega til að þrífa.
Klukkan 13:00 telur næringafræðin við.
Þar læmm við um næringagildi matvæla. Þar
NÁTTÚRUNÖRD! ELLEN ERLA SEIGR VISTINA Á
LANDSBYGGDINNIHAFA GERT SIG Afi HÁLF-
GERBU NÁTTÚRUNÖRDI. EINS 0G HÚN 0RÐAR
ÞABSJÁLF.
komst ég til dæmis að því að alkóhól hefur
mestu kaloríurnar af öUu!
í lok skólans klukkan 16:00 er svo þvottur
þveginn. Kokkagallinn straujaður fyrir næsta
eldhústíma því það skiptir miklu máU að vera
snyrtilegur í umgengni - ekki beint mín besta
hlið. Svo ég þarf að beita mig miklum sjálf-
saga sem er stundum soldið erfitt. En þetta er
aUt að koma
Þegar matur er aðahiámsefnið eykst mat-
arlystin gífurlega og síðan ég kom hingað er ég
búin að þyngjast um nokkur kfió. Svo við fór-
um þrjú saman út að labba en enduðum í
sjoppunni og keyptum meira til að borða. Það
er ein sjoppa héma, næsta er í 40 kUómetra
fjarlægð. Svo er bara skógur og foss. Maður
breytist í eitthvað náttúrunörd og er aUtaf að
tala um hvað þetta og hitt sé faUegt „sjáiði
himininn."
Svo byrjum við að elda kvöldmat geng-
ið er hratt og fljótt eftir honum því ferðinni
er heitið á Egilsstaði. Nettenging er ekki
ennþá komin í húsið. Hversu gamaldags
þarf þetta að vera? Síminn hefur svikið
skólann um nettengingu í meira en ár, það
er helvíti að búa á stað þar sem engin
nettenging er.
Café Nielsen er í miklu uppáhaidi hjá fólk-
inu úr skólanum, þar er ókeypis nettenging
og við eyðum mörgum kvöldstundum þar
eða uppi í sófa með góða mynd í tækinu. Ég er
búin að horfa á aUar Lord of the Rings-mynd-
irnar síðan ég kom.
Það em nokkrir sætir strákar hérna, en
þeir heitustu em aUir á föstu! Hvað er í gangi?
Ætli maður verði ekki bara að halda sig við
strákana úr bænum. Maður lætur nú hvort eð
er ekki sjá sig með sveitalubba
Ég verð að segja eins og er að þegar ég
ákvað að koma hingað vissi ég ekkert hvað
ég var að fara út í og leist ekkert svakalega
vel á þetta. Fara úr miðbænum í Reykjavík
og koma hingað - ég fer varla upp í Hafnar-
fjörð! Borgin er minn staður. Sveitin hefur
róandi áhrif á mann og ég er rosalega
ánægð hérna, skemmtilegt fólk og svo er
þetta auðvitað rosalega þroskandi og frá-
bær reynsla.
Ég sé ekki eftir því að hafa komið. Sveitin
er æðisleg, í hófi.