Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 19
1
18 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ2006
Helgin DV
PV Helgin
Guðbjörg Matthíasdóttir, kennari úr Vestmannaeyjum og ekkja Sigurðar „ríka" Einarssonar, er ríkasta kona íslands samkvæmt úttekt DV. Eignir Guðbjargar eru
metnar á 23 milljarða króna en meginuppistaða þeirra er eignarhlutir í Tryggingamiðstöðinni og ísfélagi Vestmannaeyja. Það vekur athygli að önnur kona af eldri
skólanum, Gunnþórunn Jónsdóttir, ekkja Óla í Olís, kemur næst en hún hefur hagnast afar vel á sínum viðskiptum frá því hún seldi hlut þeirra hjóna í Olís. Þrjár
konur tengdar Baugi eru á listanum. Ingibjörg Pálmadóttir, sambýliskona Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Ása Karen Ásgeirsdóttir, fyrrverandi eiginkona Jóhannesar
Jónssonar og móðir Jóns Ásgeirs, og dóttir hennar Kristín Jóhannesdóttir. Tíu ríkustu konur íslands eiga samtals rúmlega 110 milljarða króna.
Klárar samninga bróður síns
Kristin er dóttir Jóhannesar i Bónus og systir
Jóns Ásgeirs. Hún er llklegast ein rikasta
kona landsins og ein sú valdamesta. Kristín
er framkvæmdastjóri Gaums sem er I eigu
hennar, föður hennar, móður og bróður.
Gaumurer aðaleigandi Baugs Group sem er
með stærstu fyrirtækjum á smásölumarkaði
í Evrópu. Kristín hefur gegnt mikilvægu hlut-
verki I uppbyggingu auðæfa fjölskyldunnar
þar sem hún gengur á eftir bróðir sínum og
klárar samninga sem hann hefur lagt upp.
Kristin er stjórnarformaður fasteignafélags-
sins Stoða sem er stærsti fasteignaeigandi á
Islandi. Veldi Baugs hefur vaxið hratt og þar
á Kristin stóran hlut að máli. Erfitt er að
áætla auðæfi hennar sem vaxa dag frá degi
og telja væntanlega um tíu milljarða króna.
Látlaus kennari sem kann
að ávaxta pundið
Tók völdin eftir fráfall
Óla í Olís
Kristín Jóhannesdóttir Systir Jóns Ásgeirs lætur
lítið fyrir sér fara en er að sögn þeirra sem til þekkja
afarsnjöllí viðskiptum.
BYKO-drottningin sem skildi við Hannes
Guðbjörg M. Matthlasdóttir úr Vestmannaeyjum er
ríkasta kona landsins, að mati sérfræðinga DV. Guð-
björg, sem er 54 ára, er e^kja Sigurðar Einarssonar
ríka, fyrrverandi forstjóra ísfélags Vestmannaeyja,
sem lést langt um aldur fram árið 2000, rétt tæplega
fímmtugur að aldri. Guðbjörg tók við góðu búi eftir
andlátSigurðar því undir hans stjórn fjárfesti Isfélagið
í mörgum íslenskum fyrirtækjum. Sérstaklega lét fyrir-
tækið til sin taka árið 1996 en þá keypti það meðal
annars hlutabréf l Tryggingamiðstöðinni, TP-fóðri,
Krossanesi, Loðnuvinnslunni, Veiðarfæragerðinni
Ingvari og Ara, Granda ogSR mjöli. Auður Guðbjarg-
ar byggist að mestu leyti á tveimur eignum. Annars i,
vegar á hún rétt undir 45% hlut í Tryggingamið- í
stöðinni sem metinn eráum 16 milljarða. Þar ^ .. á
sem sú eign er kjölfestueign má leiða líkum að ~ M
því að hluturinn sé I raun mun meira virði.
Auk þess á Guðbjörg Isfélag Vestmannaeyja að ‘m
langstærstum hluta. Reksturþess hefurgengið vel !;|j
undanfarin ár og er markaðsverðmæti fyrirtækis- ||j
ins talið vera um 7,5 milljarðar króna. ™
Guðbjörg er kennari að mennt og útskrifaðist sem
slíkur frá Kennaraháskóla Islands árið 1976. Hún starf-
aði lengi I Barnaskóla Vestmannaeyja og var afar vin-
sæll og farsæll kennari. Guðbjörg er afar látlaus og a
nánast fjölmiðlafælin. Afar fáar myndir eru til af jM
henni sem birst hafa I blöðum og scgja má að
hún hafi læðst hljóðlega um islenskt viðskipta- Jjs
lif. Guðbjörg er virt i íslensku viðskiptalifi. Hún
situr bæði i stjórn Tryggingamiðstúðvarinnar M
og Isfélagsins sem einn af aðaleigendum en am
auk þess situr hún i stjórn Landsbanka Is- ji|
lands.
Hárgreiðslumeistarinn Gunnþórunn Jónsdóttir hef-
ur læðst um íslenskt viðskiptalifeins og huldukona
siðustu áratugi eða allt frá þvl eiginmaður hennar,
Óli Kr. Sigurðsson I Olis, lést íjúli 1992 á besta aldri.
Gunnþórunn átti helmingshlut í Sundi ámóti Óla en
Sund átti 45% hlut i Olís. Hún byrjaði á þvi að kaupa
hlutinn sem synir Óla affyrra hjónabandi höfðu erft
eftir föður sinn og eignaðist þannig allt hlutafé í
Sundi.
Gunnþórunn kom inn i rekstur Olis afmiklum krafti
og gerði þarýmsar breytingar sem voru umdeildar
meðal yfírstjórnenda fyrirtækisins. Eftir mikinn
áhuga innlendra og erlendra að-
ila á reks tri Olís seldiGunnþór-
unn félagið til Oliufélagsins Æm
og Texaco. Gunnþórunn gjSs£|
hagnaðist um einn millj-
arð króna á sölunni en jSj|
þau Óli húfðu borgað jH
100 milljónir fyrir íélag- ■£
ið við yfirtöku þess a jsS
þeim tima sem rekstr- ?Jj§
arvandi Olís var mikill. WM
Heildsöluhluta Sunds ^M
hf. seldi hún Danól og VH
rekstraráherslur Sunds m
breyttust iað verða Ijár fest- raS
ingaféiag sem komið hefur
að mörgum ólikum verkefn- tsM
umásiðustuárum.
Gunnþórunni hefut tekist að jfc
ávaxta Otisgróðann með undra- H
verðum hætti en áætlað erað auðævi hennar skipti
nú tugum milljarða. h'ún fjárfesti snemma í deCODE
keypti á lágu gengi og seldi með margföldum hagn-
aði. Gunnþórunn hefurnú aðmestu hætt afskiptum
af Sundi sem er nú stjórnað af syni hennar, Jóni
Kristjánssyni, og tengdasyni, Páli Magnússyni. Syst-
kinin Jón og Gabriela eiga nú jafnan hlut i Sundi á
móti móðursinni.
Jón, sonur Gunnþórunnar, virðist hafa viðskiptavit
móðursinnar og lítið sem ekkert ber áhonum þó svo
að hann sé með mestu fjársýslumönnum landsins.
Sund átti um tíma stóran hlut ÍSamskipum sem
'f&MtBsr*. var seldur með góðum hagnaði.
'/jáUtfS&c; Sund á nú stóra hluti í KB banka,
Straumi/Burðarási, FL Group og
j£W TMogeruáætlaðareignirGunn-
þórunnar um 20 milljarðar
\ króna.
Steinunn er dóttir Jóns Helga Guðmunds-
sonar í Norvík sem meðal annars á BYKO og
meirihlutann i Kaupási, sem rekur verslan-
irnar H-11, Nóatún, Krónuna, Húsgagna-
höllina og Intersport. Steinunn var gift
Hannesi Smárasyni IFL Group. Þau skildu
fyrir tveimur árum en eiga saman tvö börn,
Nönnu Katrinu, 10 ára, og Jón Braga, 7 ára,
sem bæði búa hjá móður sinni i húsi fjöl-
skyldunnar í Blikanesi. Steinunn er mennt-
aður innanhússarkítekt og hafði lítið skipt
sér af viðskiptalífínu þar til fyrir tveimur
árum þegar hún fjárfesti I stórum hlut I Is-
landsbanka þar sem hún situr nú I banka-
ráði. Áætlaðar eignir Steinunnar eru taldar
um 10 milljarðar króna en afar erfítt er að IS’
meta verðmæti eigna hennar þar sem þær
eru flestar undir flöggunarmörkum eða í
óskráðum bréfum.
Steinunn Jónsdóttir DóttirJóns Helga Guðmunds-
sonar!BYKO. Hún skildi við Hannes Smárason og -
hefur hægt og b/tandi byggt upp mikinn auð. M
Skrifstofukona sem siturá milljörðum
Ása Karen Ásgeirsdóttir, fyrrverandi eigin-
konaJóhannesarJónssonari Bónus ogmóð-
ir þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og
Kristínar Jóhannesdóttur, er ein af rikustu
konum landsins. Asa Karen eignaðist hlut í
Gaumi, eignarhaldsfélagi fjölskyldunnar,
eftir skilnaðinn við Jóhannes, þar sem Jón
Ásgeir og Jóhannes eru stærstu hluthafarnir.
Gaumur hefur vaxið og dafnað á síðustu
árum en helstu verðmæti félagsins liggja í
60% eignarhlut í Baugi Group þar sem sonur
Ásu Karenar, Jón Ásgeir, ræður ríkjum.
Ása Karen vinnur enn hjá Bónus og býr i
glæsilegri Ibúð I háhýsi við Vatnsstig.
Ása Karen Ásgeirsdóttir ■
Fyrrverandi eiginkona
Jóhannesar I Bónus og móðir
Jóns Ásgeirs fékk hluti i Gaumi
| þegarþauskildu.
Gunnþórunn Jónsdóttir
Hárgreiðslumeistarinn sem hefur
ávaxtað auð sinn gífurlega á
undanförnum árum. _^^M
Forríkfyrirsæta
Guðbjörg Matthíasdóttir Kennarinn
úr Vestmannaeyjum er rikasta kona
fslands.
DV-mynd Jóhann Ingi/eyjar.net
Guðrún var kosin ungfrú fsland og síðar
ungfrú alheimur. I kjölfarið varð Guðrún
vinsæl fyrirsæta og starfaði sem slík að-
allega I Paris. Hún hagnaðist talsvert á
módelbransanum þarsem hún starfaðii
15 ár. Eftir að hún hætti að starfa sem
sýningarstúlka kynntist hún öldruöum
ítölskum auðmanni sem hún giftist. Guð-
rún erfði auðæfi hans þegar hann lést en
hún er nú búsett í Sviss. Guðrún býr nú
ein en á einn son, Sigmar Aimery Mass-
oubre sem er 34 ára. Hún hefur sjaldan
gefið færi á sér I viðtöl og fer leynt með
auð sinn sem er umtalsverður, líklega i
kringum 6 milljarðar króna.
wjBásfai,
mUljarðar
Guðrún Bjarnadóttir Fyrirsætasem
efnaðist vel á sínum yngri árum og
erfðisiðan mikilauðævi eftir
auðugan eiginmann sinn. *
I góðum félagsskap með
JóniÁsgeiri
Fer hægar í fjárfestingum en systirin
Björk er án efa frægasti fslendingur sem uppi hef-
ur verið. Hún hefur nú gefið út sjö plötur undir eig-
in nafni þar sem hún semur tónlistina og á sjálf
útgáfufyrirtækið sem gefur út. Björk er sögð slyng-
ur fjármálamaður sem fer vel með auð sinn sem
talinn er verulegur og vaxandi. Björk á stóran að-
dáendahóp um allan heim semsafnar efni henni j
tengt. f bókinni Ríkir fslendingar eftir Sigurð Má i
Jónsson sem kom út árið 2001 var áætlað að M
hún ætti um 5 milljarða króna. Síðan hefur S
mikið vatn runnið til sjávar og óhætt er að
ætla að auður Bjarkar hafi aukist um að H
minnsta kosti 6 til 7 milljarða, enda hefur H
stjarna Bjarkar aldrei skinið skærar en undan- H
farin misseri. Áætla má að Björk eigi nú tæp- ^M
lega 12 milljarða króna. /éM
Ingibjörg er eitt afsvokölluðum Hagkaups-systkin-
um sem eru erfingjar Pálma Jónssonar í Hagkaup.
Hún hefur verið dugleg við að efla auð sinn með
fjárfestingum slðustu ár og er meðal annars hlut-
hafi i Baugi auk þess að eiga stóran hlut i fast-
eignafélaginu Stoðum. Hún er menntaður innan-
hússarkítekt og hefur verið öflugur stuðnings-
maður lista og menningar I landinu. Ingibjörg á og
rekur Hótel 101 í gamla Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu sem hún lét endurbyggja.
Ingibjörg hefur notið vinskapar Jóns Ásgeirs síð-
ustu ár og hefur fjárfest I fyrirtækjum honum
tengdum sem hafa vaxið gríðarlega á slðustu
árum. Hún er nú talsvert rikari en systkini hennar
en auðæfi hennar eru talin nema 15 milljörðum
króna.
Lilja er hluti af Hagkaupsfjölskyldunni. Áætl-
aður eignarhluti hennar I arfí eftir Pálma
;son í Hagkaupum, föður hennar, var
ívcir og hálfur milljarður króna. Auk þess á
húnennhlutí fasteignum fjölskyldunnar og
IKEA sem systkinin reka enn. Lilja hefur farið
hægar I fjárfestingar en systkini hennar. Hún
rekur ásamt eiginmanni sínum Ba/tasar Kor-
máki, leikara og leikstjóra, kvikmyndafyrir-
tækið Blue e/es production. Þau hafa meðal
annars framleitt kvikmynd Baltasars Hafíð
sem sló í gegn og fékk Edduverðlaun sem
b'esta kvikmyndin. Þau vinna núað frágangi
kvikmyndarinnarA Little Trip to Heaven sem
Baltasar skrifaði og leikstýrði. Lilja var áður i
sambúð með Birgi Þór Bieltvedt og eiga þau
saman eina dóttur. Birgir rekur Dominos
Pizza-staði i Danmörku og fjárfesti nýlega I
Magasin de Nord isamstarfí við Jón Ásgeir
Jóhannesson, kærasta Ingibjargar, stóru
systur Lilju. Aætlaðar eignir Lilju nema 5
milljörðum króna.
Lilja Pálmadóttir
Er mjög rik en kemst þó
ekki í hálfkvisti við
Ingibjörgu systursina.
Dýrmætur hlutur í Actavis
Umsvif tyfjafræðingsins Ólafar Vigdísar
Baldvinsdóttur I íslensku viðskiptalifi
undanfarin árhafa farið hljótt. Fáirgera
sér grein fyrir þvl en þessi 62 ára gamla
kona er stærsti einstaki hluthafinn I lyfja-
risanum Actavis og er hlutur hennar
metinn áum 4 milljarða króna.
Ólöf Vigdís er dóttir Baldvins Svein-
björnssonar lyfsala sem stofnaði Pharm-
aco á sínum tíma og þaðan er hlutur
hennar i Actavis kominn. Hún erfði hlut
föður síns i fyrirtækinu en Pharmaco
varð að Actavis eftir sameiningu við
Delta.
BAUGUR GROUP
Ingibjörg Pálmadóttir
Sambýfískona Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar var mjög rik áður en
hún kynntist honum en hefur
margfaldað auð sinn eftir að þau
fóru að vinna saman í viðskiptum. i
Björk Guðmundsdóttir Þessi
heimsfræga söngkona hefur
seltum 15 milljónir platna um
allan heim og er afar vel stæð.
Ólöf Vigdís Baldvinsdóttir Lyfjafræð-
ingur og einn stærsti einstaki hluthafinn í
lyfjafyrirtækinu Actavis.
niUljarðar
mUljarðar
Kristín Jóhannesdóttir
10 milljarðar
Steinunn Jónsdóttir
10 milljarðar
Asa Karen Asgeirsdóttir
8 milljarðar
Guðrún Bjarnadóttir
6 miiijarðar
15 milljarðar
Ingibjörg Pálmadóttir
Björk Guðmundsdóttir
12 milljarðar
5 miiíjarðar
4 miifjarðar
Guðbjörg M. Matthíasdóttir 23 milljarðar Gunnþórunn Jónsdóttir 20 milljarðar
Birkiaska
Umboðs- og söluaðili
Birkiaska ehf.
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
BETUSAN
• m
Valíð fæðubótarefni ársins 2002 í Finnlandi
Minnistöflur
>S- og :
sími: 551 9239
.birkiaska.is
Brautir - Glerveggir-
Glerhuróir - Hert Gler
www.j
Embla
fyrir konur
á besta aldri
URTAU
kolbrúnVc
JURTAIAPOTEK
G R A S A í A. K N J R
Laugavegi 2 -101 Reykjavík - Sími 5521103 - www.jurtaapotek.is
með HJEILBRlýJÐUM
LIFSSTIL