Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 42
54 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006
Menning DV
Imamura látinn
Gamall meistari, Shoei Ima-
mura (79), lést fyrri hluta vikunn-
ar í Japan og þar með er fallin frá
einn af meisturum japanskrar
kvikmyndalista og stærsta nafnið
þar í landi eftir daga Kurosawa.
Imamura fékk í tvígang Gull-
pálmann í Cannes fyrir Átök í
Narayama (1982) ogÁlinn (1998).
Hann var einnig leikstjóri Svarts
regns (1989) sem lýsti afleiðing-
um kjarnorkuárása Bandaríkja-
manna á Japan 1946 og afdrifum
fómarlamba hennar.
I-Iann er talinn í hópi nýbylgju-
manna í Japan og sneri sér að
nútímalegum viðfangsefnum
stórborgarinnar sem var nýnæmi
í þá tíð. Hann gerði í allt 22 kvik-
myndir.
Daprar hórur í bíó,
Sunnan frá strönd, eins og
Sigurður Pálsson kallaði Rivier-
una, berast þær fréttir að nýja
skáldsagan hans Gabriel Garcia
Marques um níræða karlinn og
ást hans á konum, einkum ungum
konum, verði kvikmynduð. Það
er níræður öldungur sem ætlar
sér það, Henning Carlsen, gamli
meistari danskra kvikmynda, og
filmað verður á Kúbu.
Það er enski kvikmyndabransa-
blaðið Screen International sem
segir frá. Nina Crone, framleið-
andi Carlsen til margra ára, er
var í Cannes að fjármagna dæm-
ið. Eru áætlanir að hefja tökur í
byrjun næsta árs og verður leik-
ið á spænsku eftir handriti Jean
Claude Carriere for. Sá á handrit-
ið að næstu mynd Milos Forman
Goya's Ghost. Verkið nýtur vel-
vildar Castrós og verður skáldið
ráðgjafi við kvikmyndagerðina.
Rankin til
íslands
Höfundur glæpasagnanna
um lögreglumanninn Rebus
í Edinborg, Ian Rankin, hefur
þegið boð Pennans Eymunds-
son um Islandsheimsókn í byrj-
un júm'. Rankin mun fjalla um
verk sín og lesa upp í bókabúð
Máls og menningar við Lauga-
veg laugardaginn 3. júní klukkan
13 og árita bækur að því loknu.
Bækur Rankin um drykk-
felldu rannsóknarlögguna Re-
bus eru ekki aðeins mest seldu
glæpasögurnar í Bretlandi held-
ur hafa þær notið gríðarlegra
vinsælda víða um heim á und-
anförnum árum og selst í millj-
ónum eintaka. Að sögn Óttars
Proppé, vörustjóra erlendra
bóka hjá PennanumEymunds-
son, er Ian Rankin einnig með
allra vinsælustu erlendu glæpa-
sagnahöfundunum á íslandi
og fer sala á bókum hans sífellt
vaxandi.
Sögurnar gerast í Edinborg
og sýna aðra og skuggalegri
hlið á borginni en ferðamenn fá
venjulega að sjá.
Heimildamynd Sigurjóns Sighvatssonar framleiðanda um Zinedine Zidane vakti
nokkra athygli þegar hún var frumsýnd í Cannes í liðinni viku. Umfjöllun um hana
hefur verið jákvæð. Erlenda pressan undrast hvernig hátíðin er að þróast.
Hetja á veHinum
á leiktím?
Evrópskir blaðamenn sem fjalla
um hátíðina, sem telja má ótvírætt
þá stærstu í Evrópu, hafa löngum
haft áhyggjur af vaxandi ítökum
bandarískra framleiðenda í Cann-
es. Það tiltæki að hefja hátíðina
með Da Vinci lyklinum og þannig
gera hátíðarhaldið að umgjörð fyr-
ir opnun á þeirri misheppnuðu
kvikmynd hefur mælst illa fyrir.
Skil rofin
Zidane-myndin var í þeim flokki
mynda hátíðarinnar sem eru oftast
tilraunakenndar og óvenjulegar.
Myndin verður sýnd á Listamess-
unni í Basel um miðjan þennan
mánuð á stórum leikvangi og risa-
stóru tjaldi. Sem kemur ekJd á óvart
því leikstjórarnir eru báðir komnir
úr myndlistargeiranum. Gagnrýn-
andi Dagens Nyheter sagði lfka að
í verkinu brjóti þeir upp skilin milli
kvikmyndar og listar, innsetningar
og sportviðburðar.
Frægt lið og reynt
Sautján tökumenn fýlgdus með
leik Real Madrid og Villareal í apríl
í fyrra. I stað þess að fýlgja bolt-
anum eins og oftast er gert var
hetjunni fylgt eftir. Fyrir vinnslu
myndarinnar lögðust leikstjórarn-
ir í ransókn á birtunotkun Goya í
Prado-safninu.
Samstarfshópurinn var enda
ekki afverri endanum: tökumaður-
inn Darius Khondji (The Interp-
reter, Seven, City Of Lost Children,
Delicatessen), hljóðhönnun Tom
Johnson (King Kong, Charlie and
the Chocolate Factory, Requiem
for a Dream), og klipparinn Herve
Schneid (Alien, Amelie of Mont-
martre, and Un Long Dimanche
de Fiangailles).
Zidane-myndin varí
þeim flokki mynda há-
tíðarinnar sem eru oft-
ast tilraunakenndar og
óvenjulegar.
Lyft úr sæti
Gagnrýnandi Observer sagði
myndina það éina sem hefði lyft
sér úr sæti og taldi hana frábær-
lega vel gerða. Af öðru var hann
eldd eins hrifinn og taldi hátíð-
ina vera að falla í gæðum. Þar væri
nóg framboð af svipuðu efni sem
sýndi hugmyndaleysi þeirra sem
fremst færu í kvikmyndaiðnaði
heimsins og þá um leið þeirra sem
veldu efni á hátíðina. Þó var hann
ánægður með mynd Soflu Copp-
ola um Maríu Antonettu sem víð-
ast hvar var illa tekið, enda hvernig
geta menn leyft sér að gera sögu-
lega mynd um franska kónga með
amerískum leikurum og frumsýna
hana í Frakklandi.
Fararheill
Heimildamynd um fótbolta-
mann kann að vera undarlegur
réttur á því allsnægtaborði sem
kvikmyndaheimurinn er og mun
væntanlega ráða nokkur um hvort
Sigurjón Sighvatsson heldur áfram
að sinna heimildamyndum, en
þær sem hann hefur gert hafa eink-
um beinst að tónlistariðnaðinum
(Rattle and hum, In Bed with Mad-
onna og Gargandi Snilld). Slíkar
myndir eru erflðar í sölu en góð-
ur gangur í Cannes ætti að styrkja
möguleika myndarinnar að ná inn
á stærri markaði. Svo ætti ekki að
spilla fyrir að heimsmeistaramót í
knattspyrnu eryfirvofandi.
Heimsóknir asískra leikflokka eru fátíðar hér á landi,
en brátt verða tvær sýningar hér í boði og á komandi
hausti verða aðrar tvær á boðstólum. Tilefnið er hálfrar
aldar afmæli vináttutengsla okkar við Japan.
Góðir gestir að austan
•IIS
m
Sú var tíðin að hingaðkomur
asískra listamanna voru tíðar. Hing-
að kom Peking-óperan kínverska í
tvígang á tímum kalda stríðsins og
allar götur síðan hafa heimsóknir
leik- og dansflokka frá fjarlægum
löndum þótt nýnæmi íslenskum
augum.
Heimsóknirnar koma upp á sér-
kennilegum tíma. Héðan er Kaninn
að fara með allt sitt hafurtask og í
Japan standa þarlendir menn í deil-
um við Kanann, ekki síst á Okinawa
sem varð flugmóðurskip amer-
íska hersins í Kyrrahafi rétt eins og
þeir vildu að ísland yrði í draumsýn
sinni 1946. Hefur sú framtíðarsýn
þeirra verið til umfjöllunar nýlega í
bók Andra Snæs. Annar gestahóp-
urinn nú snemmsumars er einmitt
frá Okinawa.
Hóparnir sem komu eru fjórir,
tveir í vor og tveir í haust. Fyrsta
sýningin verður danssýningin
Genji í Kassanum 7. og 8. júní en
25. júní er röðin komin að sýningu
ACO Okinawa - Undir sjöstjörnu -
sem sýnd verður á Stóra sviðinu.
Genji er nútímadansverk sem
tengir saman ólík og sígild listform
frá Japan, þeirra á meðalNoh-form-
ið. Verkið byggir á kafla úr Genji
Monogatari, þekktri sígildri jap-
anskri skáldsögu frá 11. öld. Sagan
segir frá lífi aðalsmannsins Hikaru
Genji. Aoi no ue, eiginkona Hikaru
Genji, þjáist af dulinni
en heiftarlegri afbrýði
í garð ástkonu eigin-
manns síns. Afbrýði-
semin heltekur líkama
Aoi no ue með afar nei-
kvæðum afleiðingum.
Noh er sígilt japanskt
sýningarform sem sam-
einar dans-, leik-, tón- og ljóðlist í
eina listgrein. Fjarri tíma og rúmi,
býður tómt Noh-sviðið gestum inn
í heim ástríðna sem eru tjáðar með
nútímadanshreyfingum. Shomyo,
búddísk bæn, og Gagaku, forn jap-
önsk hirðtónlist (hvor tveggja frá 9.
öld) umlykur þessa tímalausu ver-
öld. Tvær sýningar verða í Kassan-
um í Þjóðleikhúsinu, dagana 7. og
8. júní.
Þann 25. júní flytur hópurinn frá
Okinawa Undir sjöstjörnu á Stóra-
sviði Þjóðleikfrússins. Hópurinn
vinnur með einstakar og hrífandi
menningarhefðir Okinawa undir
áhrifum frá hafinu og hugmyndum
frumbyggjanna.