Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Blaðsíða 24
24 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006
Helgin PV
Olga Helgadottir er 17 ára Vopnfirðingur og helsti aðdáandi
Röggu Gísla á landinu. Hún heldur úti glæsilegri aðdáenda-
siðu um söngkonuna á netinu.
Grét þegar Ragga
hætti í Stuðmönnum
Ragga Gísla Olga
heldur úti aðdáenda-
slðu Röggu á
vefslóðinni folk.visir.
| is/ragga-gisla.
DV-mynd Hari
Draumurinn rættist
hitti Röggu Gisla baksviðs á
tónleikum í mars.
Ragnhildur Gísladóttir er lík-
lega ástsælasta söngkona landsins
og á hún aðdáendur vítt og breitt
um landið. Einn harðasti áðdáandi
Röggu er ung sautján ára stúlka sem
búsett er á Vopnaflrði. Hún heitir
Olga Helgadóttir og heldur hún úti
aðdáendasíðu um átrúnaðargoðið
á slóðinni http://folk.visir.is/ragga-
gisla. Þar er hægt að nálgast allar
upplýsingar um Röggu auk þess sem
Olga heldur úti skemmtilegu bloggi.
Með stuðmennskuna í blóðinu
„Mamma mín hefur alltaf verið
mikill Stuðmannaaðdáandi," segir
Olga. „Þannig að ég hef alltaf hald-
ið uppá þessa tónlist. Ég hlustaði
líka dálítið á Stuðmenn þegar ég var
yngri. Svo fór ég að taka meira eft-
ir Röggu og gera mér grein fyrir því
hversu frábær hún er. Heimasíðan er
ársgömul en ég er búin að halda upp
á Röggu lengur en það."
Áfallið
30. mars 2005 er í margra minn-
um áfalladagur í íslenskri tónlistar-
sögu. Þetta var dagurinn þegar til-
kynnt var að Ragnhildur Gísladóttir
væri hætt í Hljómsveit allra lands-
manna. Þetta var sorgardagur í lífi
Olgu. Á bloggsíðunni sinni rifjar hún
upp atburðarásina:
„Þegar ég er búin að vera x lengi
í skólanum hringir mamma í mig og
segir mér tíðindin: Ragga Gísla hætt
í Stuðmönnum! Hún vildi segja mér
það áður en einhver
annar færi að segja
mér það, og segir
mér í hvaða blöðum
það sé. [...]Svo dreif
ég mig heim og fór
inní herbergi, ég fór
beint í tölvuna. Mér
leið hræðilega, ég
var með hnút í mag-
anum. Ætlaði niðrí
bæ að hitta vinkonu
mína, en langaði
ekki. Herbergisfé-
laginn minn kom
Altarið Olga heima fyrirþarsem Stuðmenn
og Ragga prýða vegginn.
einhverntímann heim en fór svo út
aftur. Þegar hún var farin þá gafst ég
upp. Ég brast í grát. Ég hágrét, ég grét
lengi, og hringdi síðan í Röggu, ég
varð að tala við hana."
Nú þegar rúmt ár er liðið frá áfall-
inu hefur Olga sætt sig við ástandið.
„Ég elska þau öll, bæði Stuðmennina
mína og Ragnhildi. Þessi dagur var
erfiður en enginn heimsendir."
Stigið á svið með
átrúnaðargoðinu
Ragnhildur Gísladóttir hélt tón-
leika þann 18. mars síðastliðinn
ásamt Davíð Þór Jónssyni, píanóleik-
ara hljómsveitarinnar Ske. Olga lét
sig að sjálfsögðu ekki vanta. „Ég flaug
frá Vopnafirði til Reykjavíkur bara til
þess að sjá þessa tónleika. Tók bara
helgarferð í bæinn."
Draumurinn var uppfylltur þetta
kvöld. Þegar Ragga tók lagið Ekkert
mál vantaði hana bakraddir og fékk
hún Olgu upp á svið til sín. „Ég fékk
líka að hitta Röggu baksviðs sem var
æðislegt. Hún er yndisleg. Ég bjóst
alltaf við því en hún er yndislegri
en maður gerir sér grein fyrir. Bara
virkilega góð manneskja með hjarta
úr gulli."
toti@dv.is
Upblifdu h\ð full
surrrarfrí fjölskylcíu
• Glæsilegir gistisTadir
• ikulegt leiguflug f allt sumar
• Ótrúlegt verðlag
• Iðandi mannlíf
• Einstök gestrisni
• Stórkostleg náttúrufegurð
• Óteljandi menningarperlur
• Spennandi skoðunarferðir
Forunrs
Stórar, glæsilegar
íbúðir med 2 svefnherb
Nýtt og notalegt
íbúdahótel
34.900* 39.900
á mann m.v. 5 í íbúð með 2
svefnherbergjum Í7 nætur
13. júnf.
á mann m.v. 4 í íbúð með 1
svefnherbergi á Í7 nætur 6.
eða 13. júní.
49.900 kr. ef 2 ferðast saman.
*Fklg, flugvallarskattar, gisting og fslensk fararstjórn.
•jzt. -v.'.í'.
Á*'."Aí-jTSfjk ma
VISA AUtstcK.ard er ad finna á www.urvalutsyn.is
1
Plássið undir Jökli Þessi tölvugerða mynd sýnirhvernig byggðin kúrirsunnan undir
Snsefellsjökli. DV-Mynd: Hellisvellir ehf.
Vistvæna þorpið Plássið undir Jökli að rísa
á Snæfellsnesi
Ekkert hús selt en
nokkur frátekin
„Fyrstu húsin verða tilbúin til
afhendingar í júm'," segir Þorsteinn
Jónsson, forsvarsmaður Plássins
undir Jökli á Hellnum.
Reisa á sautján frístundahús í sér-
stöku vistvænu þorpi sunnan und-
ir Snæfellsjökli, rétt við suðurmörk
þjóðgarðsins. Að sögn Þorsteins eru
uppi hugmyndir um að reisa 40 hús
til viðbótar. Engin ákvörðun hafi þó
verið tekin í þeim efnum.
Aðspurður segir Þorsteinn að enn
hafi eldcert húsanna verð selt. „En
sumir hafa þó látið taka frá fyrir sig
tiltekin hús," segir Þorsteinn.
Húsin sautján eru í landi Brekku-
bæjar á skika sem fyrirtæki Þorsteins,
Hellisvellir ehf., keypti út úr jörðinni.
Sögur hafa verið á kreiki um ýmsa
þjóðþekkta einstaldinga sem sagðir
eru hafa keypt hús í Plássinu undir
Jökli, eins og litía þorpið er nefnt.
Þorsteinn segir það þó ekki rétt
enda hafa engin hús verið seid ennþá
eins og áður segir. „En það er reynd-
ar þjóðþekkt fólk á meðal þeirra sem
sýnt hafa þessu hvað mestan áhuga,"
segir hann.
Húsin verða á bilin 36 til 79 fer-
metrar. Grunnar hafa verið steyptir
að öllum húsunum sautján en aðeins
sum þeirra hafa þó enn verið reist og
eru mislangt á veg komin.
„Þetta eru vönduð heilsárshús og
fólk getur valið hvort það notar þau
aðeins til frístunda eða flytur þang-
að og hefur þar lögheimili sitt," segir
Þorsteinn Jónsson.