Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 66

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.2006, Side 66
78 FÖSTUDAGUR 2. JÚNl2006 Síðast en ekki síst DV Furðufréttin Karlar flýja á kamarinn „Ó afhverju hugsar þú ekki á kamrinum eins og restin af heiminum gerir," öskrar Martin Crane á Fraiser son sinn í sam- nefndum gamanþáttum. Þetta var löngum vitað, að karlar hugsa best á kamrinum. Nú hef- ur Morgunblaðið birt frétt þess efnis að kamarsetur karla eigi sér dýpri rætur en svo. Þeir nota sumsé kamarinn sem flóttaleið undan nöldri og yfirgangi í kerl- ingum sínum. „Karlar verja meiri tíma á klósettinu en fyrir fimm árum þar sem þeir sitja sem fastast til þess að flýja samtöl í eldhúsinu við eiginkonur sínar. Munurinn frá því fyrir fimm árum er mikill því karlmenn dvelja nú tveimur tímum lengur á viku á kamrin- um til að hvíla á sér eyrun." seg- ir Morgunblaðið og hefur þessa stórmerku frétt upp úr hinum danska Jyllands-Posten sem aft- ur byggir sína frásögn á nýrri danskri rannsókn. „Ganga niðurstöðurnar þvert á hina rósrauðu ímynd róman- tískra samverustunda í eldhús- inu, þar sem málefni líðandi stundar eru brotin til mergjar yfir rauðvínsgiasi," segir Morgun- blaðið. Furðufréttir sjá ekki beint hið rósrauða og rómantíska við það að sitja á eldhúskolli, drekka rauðvín, og ræða um t.d. nýja meirihlutann í Reykjavík. Slíkt er nú eiginlega meira biturt og hrollvekjandi. Hvað um það. Morgunblaðið hefur svo eftir Mette Mechlen- borg, cand. mag. í menningar- fræðum, að karlar séu einnig að flýja undan konum sem „...hafi smátt og smátt hreiðrað um sig á stöðum þar sem eitt sinn var aðeins að finna karla, á borð við skrifstofuna og í garðinum." Og Mette heldur áfram og segir að karlar séu „...orðnir heimilislaus- ir á eigin heimili." Tja væntan- lega þá að kamrinum undan- Karlar flýja samtöl í eldhúsinu ,AR verja meiri tíma 4 tinu en fyrir fimm árum an þeir sitja sem fastost 38 að flýja sam«i> i eW- 1 ii við eiginkonur sínar. irinn frá því fyrir fimm er mitóU, þvi karlmenn a nú tveimur tímum ksng- viku á kamrmum tfl að áeéreyrun. ,tta kemur fram í fré« JyJiands-Posten, • ->-n«kn Eru þeir í fýlu? / Fiskateljari telurfólk í Firðinum Forsvarsmenn verslunar- miðstöðvarinnar Fjarðar í Hafnarfirði fara nýstárlegar leiðir til að hafa yfirsýn yfir fjölda heimsóknargesta í mið- stöðina. Settir hafa verið upp teljarar við hvern einasta inn- gang í verslunarmiðstöðinni Ha? Það sem er kannski skemmtilegast við þessa telj- ara er að þeir eru upphaflega hannaðir til að telja fiska. Fyr- irtækið Peocon hannaði telj- arann og sagði Albert Páll Steingrímsson, framkvæmdastjóri Fjarðar, í samtali við DV, að mikil ánægja ríkti með teljarana sem virka bæði vel á fiska og menn. „Við höfðum frumkvæði að því að fá þá setta upp. Og það verður bara að segjast eins og er að þeir hafa virkað vel. Þetta gjörbreytir öllu fyrir okkur. Það er nauðsynlegt að vita um umferðina inn og út úr miðstöðinni. Þetta heldur okkur á tánum og við höfum betri yfirsýn yfir hvernig um- ferðinni í verslunarmiðstöð- ina er háttað," sagði Albert. Búnaðurinn var settur upp í nóvember á síðasta ári og samkvæmt fiskateljaranum heimsóttu 95 þúsund manns Fjörðinn að meðaltali á mánuði fyrstu fjóra mánuði þessa árs. Allttalið Komið hefur verið fyrir svokölluðum fiskateljurum í hverjum einasta inngangi versiunarmiðstöðvarinnar Fjarðar. Tilgangurinn er að fá yfirsýn yfir gestafjölda miðstöðvarinnar. 0(r EF eb-HBLD SVOMA OCr LOKA Fyfilg FVAfrRÁSINAÞASOAp'' TU- TyfPtfc) ep. ALVBír AV SPftlNfrA, 00 SLm SVO 0(j Hap PUTTANm 5AAÁ PYRIft, ÞÁ kf/KuP- SVÖAJA SPfiey EFFECT.' r hugleikur Húðflúr Tribal er úr tísku og fóik villstærri myndir. Sverrir Þór Einarsson er einn þeirra sem tekur þátt í alþjóð- legri húðflúrunar- og rokkhátíð um næstu helgi. Það verða bæði íslenskir og erlendir tattúlista- menn sem sýna listir sínar á hátíð- inni og verða þeir með bása á Gauk á Stöng og Bar 11. „Það verður gam- an að sjá hvaða straumar og stefn- ur eru í gangi í faginu og hvað er- lendu gestirnir eru að fást við þessa dagana," segir Sverrir en hann hef- ur stundað húðflúr í ein 18 ár og er því í hópi reyndustu íslending- anna. „Hér heima er tribal-dótið komið úr tísku og fólk vill meira af stærri myndum á líkama sinn." Meðal þeirra erlendu húð- flúrunarmeistara sem koma á hátíðina má nefna hina margverð- launuðu Santana og JJ frá Oddity Ink, Jason June frá Atomic Tattoo, Cheryl „The Devil" Cline frá Bayou Tattoo og Colin Dale frá Kunsten pá Kroppen í Danmörku. Allar ís- lensku tattústofurnar munu eiga fulltrúa á hátíðinni. Aðspurður um hvað hann sé helst að fást við þessa dagana seg- ir Sverrir að töluvert sé um að fólk vilji bæta við flúr sem fyrir eru á líkama þess. „Viðkomandi hef- ur kannski fengið sér eitt lítið kín- verskt tákn áður en vill nú fá stærra flúr á kroppinn," segir Sverrir. „Og svo er maður oft fenginn til að lag- færa eða betrumbæta eldri flúr." Fram kemur hjá Sverri að á hátíð- inni sjálfri geti gestir og gangandi komið við og fengið flúr. Hann muni ekki vera mikið með fyrirfram ákveðin módel til að vinna við. „Allur ágóði af þessari hátíð rennur óskiptur til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og það finnst mér hið besta mál," segir Sverrir. „Og miðaverðinu er stillt í hóf, dag- passinn kostar aðeins 500 krónur." Sem fyrr segir er þetta einnig rokkhátíð og kemur fjöldi af hljóm- sveitum fram á henni. Má þar nefna sem dæmi Jan Mayen, Dr. Spock, Lokbrá, Sign og Andrúm. Hátíðin verður sett á fimmtudagskvöldið kemur og lýkur á sunnudagskvöld. Sverrir Þór Hefur unnið við húðflúrí 18 ár og er einn sá reyndasti hériendis. Gamla myndin Indriði gerði okkur orðlausa „Þessi mynd er tekin á þeim árum þegar Tíminn var að ná sér á strik aftur eftir NT-ævintýrið og við vor- um enn staðsettir í Síðumúlanum," segir Birgir Guðmundsson blaða- maður um gömlu myndina að þessu sinni. Myndin er tekin af honum og Eggert Skúlasyni sem þá voru frétta- stjórar Tímans í mars 1987. „Og minnisstæðasta atvikið frá þessum tíma er örugglega þegar Indriði G. Þorsteinsson ritstjóri gerði okkur Eggert gjörsamlega orðlausa," segir Birgir. „Albertsmálið var í full- um gangi á þessum tíma og Ind- riði hafði verið inni hjá útlitshönn- uði blaðsins að hanna með honum nýtt útlit á Tímann. Hann kom svo með forsíðu blaðsins daginn eftir og lagði hana á borðið fyrir framan okk- ur. Forsíðan var mynd af Albert Guð- mundssyni og fyrirsögnin var að- eins tvö orð, blásin upp í 20Ó punkta letur. Á forsíðunni stóð einfaldlega „Hvert Albert?" Við Eggert horfðum lengi á þetta fyrirbrigði án þess að segja nokkuð." Birgir segir að það hafi verið gam- an að vinna á Tímanum á þessum tíma enda var fjárhagur blaðsins réttu megin við núllið aldrei þessu vant. Síðan var ákveð- að ráðast í kaup á hús- næði upp á Lynghálsi og fór þá að fjara undan blaðinu aftur. „En maður var alltaf að læra eitthvað nýtt á þessum tíma og það var ánægjulegt," segir Birgir. wtr- —'TH'nr Fréttastjórar Þeir Birgir Guðmundsson og Eggert Skúiason, fréttastjórar Tfmans árið 1987. Á innfelldu myndinni er Birgir i dag.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.