Freyr - 15.01.1962, Page 24
36
FREYR
hvort með því að bœta rœkt túnsins — og
með því fœst bezti og ódýrasti töðuaukinn
— eða með því að stækka túnið, og auka
töðufallið með því. Og geri þeir þetta síð-
ara, þá treystið ekki um of á nýræktar-
töðuna til fóðurs, jafnvel þó þið hafið gœtt
þess að slá nýræktina snemma, og þurrka
hana vel eða súrsa. Túnið þarf að komast
i góða rækt áður en taðan af því verður
góð.
í dálkunum 15 til 22, hef ég skipt bænd-
um í hópa, eftir því hve margt sauðfé
þeir höfðu á fóðri veturinn 1960—1961.
Flestir bændur eiga sauðfé, ef þeir hafa
skepnur á annað borð, en þó voru það 161
bóndi, sem var sauðlaus, eða 2,7%.
815 bændur eða 13,8% áttu innan við 50
kindur.
1453 bændur eða 24,5% áttu milli 51 og
100 kindur.
2209 bændur eða 37,3% áttu milli 101 og
20D kindur.
895 bændur eða 15,1% áttu milli 201 og
300 kindur.
254 bændur eða 4,3% áttu milli 301 og
400 fjár.
87 bændur eða 1,5% áttu milli 401 og 500
fjár, og
48 bændur höfðu yfir 500, og sumir nærri
1090 kindur á fóðri.
Skýrslan ber með sér hvar á landinu
fjármörgu bændurnir eru, og eins og sést
á henni, eru þeir flestir í Austur-Húna-
vatnssýslu, sem höfðu yfir 400 fjár á fóðr-
um síðastliðinn vetur.
í dálkana 23 til 30 er bændum aftur
skipt eftir því hve margar mjólkandi kýr
þeir höfðu í fjósum sínum veturinn 1960
til 1961. Þar kemur í ljós, að 513 bœndur
eiga enga mjólkandi kú, 543 aðeins 1 kú,
og 1594 tvær eða þrjár kýr. Það eru því
alls 2650 bændur á landinu sem eiga 3 kýr
eða færri, og er það 45,4% af öllum bænd-
um landsins. Allir þessir bændur eiga mjög
erfiða aðstöðu til að selja mjólk. Fýrir
það fyrsta hafa þeir mjög litla mjólk, sem
þeir mega missa frá heimilinu, og í öðru
lagi verður flutningur á henni venjulega
dýr, bæði af því hvað hún er lítil, og því,
að venjulega eru kúafáu bæirnir dreifðir
og erfiðara að safna mjólkinni saman frá
þeim, en hinum, sem kúafleiri eru og oft-
ast liggja þéttara. Er nú talað um að reisa
ný mjólkurbú í kúafáum sveitum eins og
Búðardal, Reykhólum og Djúpavogi. —
Við bændur þar vildi ég segja þetta: Það
er eðlilegt að þið viljið senda sem mesta
mjólk til búsins þegar það kemur, og því
langi ykkur til þess að fjölga kúnum.
Gerið það ekki fyrri en þið hafið aukið
heyskapinn eða fœkkað fénu, þá komist
þið að raun um, hvort betur borgi sig að
hafa kýr á einhverju af því fóðri, sem þið
áður létuð sauðféð umsetja í afurðir.
Umfram allt, fjölgið ekki kúnum fyrri en
taðan hefur aulcizt.
Flestir bændur eiga 4 til 10 kýr, þeir eru
2144 eða 36,2%, 949 bændur eða 16,0% eiga
11 til 20 kýr og eru þeir flestir í Árnessýslu
269, þá í Rangárvallasýslu 165, Eyjafjarð-
arsýslu 156 og Borgarfjarðarsýslu 70, og
svo færri í hinum sýslunum, en enginn
bóndi í Barðastrandarsýslu eða Stranda-
sýslu á 11 kýr eða fleiri. 144 bændur eða
2,43% höfðu 21—30 mjólkandi kýr í fjós-
um sínum í vetur er leið. Þeir voru í Ár-
nessýslu (33), Rangárvallasýslu (33),
Eyjafirði (27), Suður-Þingeyjarsýslu (14),
Borgarfjarðarsýslu (13), Kjósarsýslu (11)
og svo færri í öðrum sýslum. Loks eru svo
17 bændur sem eiga á mili 31 og 40 kýr
mjólkandi og 18 sem eiga yfir 40 kýr.
Greinilega kemur það fram, að kúa-
mörgu heimilin eru á Suðurlandsundir-
lendinu, Eyjafjarðar- og Suður-Þingeyjar-
sýslum og Borgarfirði, enda hafa bændur
í þeim haft starfandi mjólkurbú lengst,
og fyrst fengið sæmilegt vegasamband, til
þess að geta náð mjólkinni saman til bús-
ins.