Freyr - 15.09.1962, Side 9
FREYR
297
Hér má þekkja ýmsa, sem mætt hafa á aðalfundunum um áraraðir. (Ljósm.: G.K.).
3. UmræíSur.
Þessu næst fóru fram umræður um skýrslu
formanns og málefni Stéttarsambandsins. As-
geir Bjarnason tók fyrstur til máls. Oskaði
hann bændastéttinni til hamingju með
Bændahöllina, sem hefði verið ráðizt í að
byggja með djörfung og bjartsýni, en nú
væru erfiðleikar á að ljúka. Eins kvað hann
vera með framkvæmdir bænda sjálfra yfir-
leitt. Fjárhagsörðugleikar torvelduðu að ganga
frá þeim. Síðan ræddi hann verðlagsmálin og
mikil vonbrigði bænda yfir verðlagsgrundvell-
inum frá síðasta hausti. Þess vegna hefði meira
verið rætt um verðlagsgrundvöllinn síðasta
verðlagsár en nokkru sinni fyrr. I þeim efnum
þyrftu nú að fást miklar úrbætur. En vanda-
mál bænda yrðu ekki leyst með verðlagsmál-
um einum. Áríðandi væri, að frumbýlingum
væri séð fyrir fjármagni til að hefja búskap,
en hver byrjandi þyrfti nú mikið stofnfé, því
að ekki væri hægt að hefja búskap án fullrar
tækni. En höfuðnauðsyn væri að gera ungum
mönnum fært að verða bændur. Ræðumaður
kvaðst sakna úr skýrslu formanns nánari grein-
argerðar um framleiðsluaukningu og skiptingu
hennar á búgreinar.
Benedikt Líndal óskaði upplýsinga um,
hvernig komið væri samningum um verðlags-
grundvöll. Hann kvað verðlagsmálin aðalat-
riði fyrir bændur og nauðsyn að rétta þar hlut
bænda, sem alltaf stæðu verr og verr að vígi.
Gunnar Guðbjartsson tók undir orð og óskir
Benedikts, og spurðist jafnframt fyrir um
nefnd þá, sem ætti að kynna sér Efnahags-
bandalag Evrópu og horfur Islendinga í sam-
bandi við það, utan eða innan bandalagsins.
Spurði Gunnar, hvað þeim nefndarstörfum
liði.
Ingvar Guðjónsson ræddi verðlagsmál og
kvað bændur bíða með eftirvæntingu eftir