Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1962, Side 10

Freyr - 15.09.1962, Side 10
298 FRE YR störfum þessa fundar og síðan betri lausn í verðlagsmálum. Sveinn Trygvason ræddi fyrst um nefnd þá, sem starfar með tilliti til Efnahagsbandalags Evrópu. Hefði fyrst verið ein atvinnumála- nefnd með það verkefni, en síðan verið skip- aðar smærri nefndir, ein fyrir hvern atvinnu- veg. Nefnd sú, sem starfar vegna landbúnað- arins, er nú að hefja störf. Þessar nefndir eiga ekki að taka afstöðu til EBE, heldur athuga allar leiðir og hvaða áhrif það gæti haft á atvinnuvegi íslendinga. Síðan ræddi Sveinn verðlagsmálin. Sagði hann, að við umræðurnar um verðlagsgrundvöll nú, hefði greinilega komið fram hjá fulltrúum neytenda meiri vilji til tilslakana en búast hefði mátt við. Nefndi hann í því sambandi von um leiðréttingu á fyrningum, kartöflu- magni og ullarmagni. Hins vegar kvað hann vandkvæðum bundið að segja frá samnings- umræðum meðan þær stæðu yfir, og ekki mætti búast við, að skekkjur margra ára leið- réttust á einu ári eða tveimur. Erlendur Árnason nefndi dæmi þess, hvern- ig fólki fækkaði í sveitum á Suðurlandi og menn hyrfu frá nýbýlum til annarra starfa. Sigurður Lárusson ræddi verðlagsmál og af- komu bænda. Hann taldi fultrúa neytenda undanlátssamari nú en áður, vegna samstöðu bænda og fyrirætlunum þeirra um sölustöðvun búvara. Helgi Símonarson lýsti erfiðleikum bænda. Þeir gætu ekki hvatt syni sína til að stunda búskan við svipuð kjör. Hann spurðist fyrir um það, hvernig samningar myndu nást um verðlagsgrundvöll og hvatti til þess að skjóta málum til yfirnefndar, heldur en semja um lítilfjörlegar lagfæringar. Guðjón Hallgrímsson ræddi verðlagsgrund- völlinn og kjör bænda. Hann taldi kjör þeirra ekki hafa fylgt kjörum annarra stétta, enda vildu menn ekki taka jarðir og búa, heldur setjast að í þorpum. Landbúnaðurinn þyrfti að freta boðið fólki sama kaup og sömu kjör og fengjust annars staðar. Ungt fólk þyrfti rífleg stofnlán til að geta byrjað búskap. Einar Olafsson minnti á, að Framleiðslu- ráð hefði mótmælt úrskurði yfirnefndar síð- astliðið haust. Þá hefði sá úrskurður reynzt illa. Nú yrði að reyna samninga til þrautar. Umræður í sexmannanefnd bentu til, að hægt yrði að fá 12—14% hækkun, en enn bæri nokkuð á milli. Sigurður Líndal sagði, að bændur ættu að fá framleiðslúkostnað greiddan og tilskilið kaup. en þróunin sýndi, að þeir hafa ekki fengið hlutfallsleg laun við aðrar stéttir. Rétt væri að reyna samninga, en ekki mætti gera samning, sem bændur yrðu óánægðir með. Sigurjón Sigurðsson talaði sérstaklega um. að setja þyrfti reglugerð samkvæmt framleiðslu- ráðslögum, til að tryggja betri árangur af starfi sexmannanefndar og setja nánari ákvæði um ýmis atriði í gerð verðlagsgrundvallar. Friðrik Sigurjónsson skýrði frá því, að með- altekiur bænda í Vopnafirði, væru 48—49 þús- und krónur, og tók til samanburðar tekjur manna í sjávarþorpum, og þeirra, sem stund- uðu síldarvinnu, sem væru nú mjög miklar. Guðmundur Ingi Kristiánsson benti m. a. á það. að þótt verðlagsmálin væru aðalatriði, væri aldrei hægt að búast við því. að verðlagið eitt gæti bætt nægjanlega hag þeirra bænda. sem lakasta hefðu aðstöðu og minnst bú. Til þess þyrfti önnur ráð, m. a. góða aðstöðu til lána. Slík aðstoð þvrfti að koma fljótt. Benti hann á, að á svæði Búnaðarsambands Vest- fjarða færu á þessu ári a. m. k. 16 jarðir í evði eða full 4% býlanna. Ræðumaður taldi enn fremur nauðsyn, að eðlilegir vextir af eigin fé yrðu reiknaðir í verðlagsgrundvellinum, til þess að menn vildu festa fé sit f landbúnaði. Þórður Halldórsson tók undir það, sem fram hafði komið. bæði um bætt verðlag og stór- aukin lán til bænda. Sigurður Jónsson sagði, að bændur hefðu aldrei fengið það verð, sem nægjanlegt væri og þeim bæri raunverulega. Hvatti hann til að standa fast saman um leiðréttingar, því að annars vofði yfir. að jarðir og sveitir legðust

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.