Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 19

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 19
FREYR 307 Naumlega gefst fundarhlé til þess að fá alla fulltrúa og gesti á eina mynd, enda vantar hér marga, er mættir voru. (Ljósm.: G.K.). þess, að hlutur sauðfjárframleiðenda sé miklu lakari en hlutur mjólkurframleiðenda, og þar sem augljóst er, að þeir bændur, sem hafa lökust afkomuskilyrði með tilliti til samgangna og mark- aðsskilyrða, búa við sauðfjárrækt, vill aðalfund- ur Stéttarsambands bænda 1962, skora á Fram- leiðsluráð landbúnaðarins, að beita sér fyrir því við sexmannanefnd, að rétta hlut sauðfjárfram- leiðenda við verðhækkun þá, sem væntanlega verður við verðskráningu í haust. Ingvar Guðjónsson ræddi þessa tillögu, en síðan var hún samþykkt samhljóða. Sigurður Snorrason flutti tillögu verðlags- nefndar um framleiðsluráðslögin. III. Aðalfundur Stéttarsambands bænda 4.—5. sept. 1962, lítur svo á, að reynsla undangenginna ára bendi til þess, að erfitt sé að ná því marki, er Framleiðsluráðslögin gera ráð fyrir að bænd- um séu tryggðar sambærilegar tekjur við aðrar vinnandi stéttir. Fundurinn felur þvl stjórn Stéttarsambands bænda að láta endurskoða lögin og leita á þann hátt eftir öruggari úrræðum en nú eru í lögunum. Lýsir fundurinn þeirri skoðun sinni, að verði að breytingu á lögunum horfið, beri stjórn Stétt- arsambandsins að leita eftir fylgi við málið á Al- þingi, svo að tryggt sé, að þær breytingar einar verði gerðar á lögunum, sem að dómi hennar og Stéttarsambandsfundar eru til hagsbóta fyrir bændastéttina og landbúnaðinn. Framsögumaður kvað eðlilegt, að til breyt- inga kæmi á lögunum, en varlega ]>yrfti að fara við þær breytingar. Sigurjón Sigurðsson talaði um, hvort ekki nægði að setja reglugerð um framkvæmd lag- anna. Benedikt Líndal lét í ljós vantraust á lög- unum. Ingvar í Dölum taldi, að bændur þyrftu að losna við þann fjötur, sem framleiðsluráðs- lögin hefðu búið þeim undanfarin ár. Enn ræddi Helgi Símonarson um tillöguna,

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.