Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1962, Síða 33

Freyr - 15.09.1962, Síða 33
FRE YR 321 leiðslu annarra, landa, sem selja á sömu mörkuðum, en að því er snertir frysta fisk- inn þá er mörgu ábótavant um meðferð hráeínis, ílckkun, pökkun og afskipun og á því sviði erum við Islendingar nú eftir- bátar annarra þjóða. Það skýtur því nokkuð skökku við þegar þetta er borið saman við það, sem fram kom i umræðunum á Alþingi 4. apríl s. 1. Frysti fiskurinn á sina. sögu, en hér mætti drepa á ýmsar aðstæður í sambandi við út- flutning á frystu lambakjöti, sem ekki blasa við frá íslenzkum bæjardyrum séð. Árið 19£0 borðuðu Íslendingar meira en tvisvar sinnum meira af lambakjöti en af öllu öðru kjöti samanlagt. Nýtt er kjötið á heimamarkaðnum aðeins um 2 mánuði ár hvert. Fulla 10 mánuði ársins borða ís- lendingar því fryst lambakjöt, enda ekki um annað að ræða meðan sláturtíðin er eins stutt og nú er. Viö höfum mesta dá- læti á lambakjöti og er því eðlilegt, ef menn telja sjálfsagt að það ætti að vera eftir- sótt á erlendum markaði. í þeim löndum sem næst okkur liggja hagar allt öðru vísi til um neyzlu lamba- kjöts. í Skandinavíu, Þýzkalandi, Hollandi, Belgíu og Ítalíu er lambakjöt ekki í háveg- um haft og framleiðslan lítil. Kjötið er nýtt á markaðnum mestan hluta. árs en fryst lambakjöt eða kindakjöt þekkist varla, nema þá helzt til vinnslu. Sama er að segja um Frakkland, þó að framle ðsla sé þar nokkur (fjáreign í október 1960 talin um 9 milljónir), en það á við um öll þessi lönd, að á vetrum kjcsa neytendur staðbetra kjöt en lambakjöt. Þar við bætast svo inn- flutningshöft og tollar, sem hafa útilokað sölu á íslenzku lambakjöti til þessara landa, nema hvað nokkuð hefir selzt til Svíþjóðar og lítið eitt til Danmerkur árlega. í Banda- ríkjunum var fjáreign í janúar 1960 talin 32 milljónir og framleiðslan af kinda- og lambakjöti það ár talin 343 þúsund smá- lestir (innflutningur 22 þúsund smálestir). Tilraunir hafa. verið gerðar með útflutning á íslenzku lambakjöti til Bandaríkjanna, en þær vonir, sem við það hafa verið bundnar, hafa brugðizt hvað eftir annað. Þegar hugsað er um sölu á frystu lamba- kjöti til þessara landa verður að minnast þess, sem meiri þýðingu hefir en nokkuð annað, að öll þessi lönd hafa af eigin fram- lelðslu nýtt kjöt allt árið um kring og um kjötskort er ekki að ræða, sem bæta þyrfti úr rneö innfluttu frystu kjöti. Bre'cland hefir sérstöðu hvað kjötinn- flutning snertir. Hér er heimsins stærsti ínnflutningsmarkaður fyrir kjöt. Hér búa um 50 milljónir manna og inn þarf að flytja aðra hverja máltíð, þar sem heima- framleiðslan nægir aðeins fyrir helmingn- um af neyzlunni. Bretar halda mikið uppá lambakjöt, það er hér á markaðnum heimaslátrað allt árið um kring, rautt kjöt, eins og þeir kalla heimaslátraða kjötið til aðgreiningar frá frystu kjöti. Það, sem á vantar til þess að fullnægja þörfinni, flytja þeir inn, en árið 1960 var innflutningurinn þessi: Frá íslandi 167.444 skrokkar, frá Suð- ur-Ameríku 1.526.436 skrokkar, frá Ástralíu 1.375.456 skrokkar og frá Nýja-Sjálandi 18.343.522 skrokkar. Fjáreign í Bretlandi í júní 1960 var um 28 milljónir, en slátrun það ár 11.438.000 skrokkar. Fyrir utan lamba- og kindakjöt flytja Bretar inn ár- lega um 350 000 smálestir af nautakjöti og kálfakjöti, 400.000 smálestir af svínakjöti og um 190.000 smálestir af niðursoðnu kjöti alls konar. í þessum risa-innflutningi er svo að segja allt kjötið afgreitt af hálfu útflutnings- landanna þannig: Lambakjöt, fryst, í heil- um skrokkum, sáralítið sexhöggið. Kinda- kj öt í heilum skrokkum, lítið eitt sexhöggið eða beinlaust. Nautakjöt, fryst eða kælt, í

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.