Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1962, Blaðsíða 35

Freyr - 15.09.1962, Blaðsíða 35
FRE YR 323 DR. BENJAMÍN EIRÍKSSON: FRAMTAK NÝSJÁLENDINGA OG VIÐ Árið 1955 var tala sauðfjár í Nýja Sjálandi 39 milljónir. Nýja Sjáland er því eitt af mestu sauðfjárræktarlöndum heims. Það er líklegt, að íslendingar gætu margt af Nýsjálendingum lært og því ánægjulegt að vita, að Islendingar, er starfa á sviði sauðfjárræktarinnar,tiafa lagt leið sína þangað. I Tímanum hinn 20. septem- ber s.l. er viðtal við Dr. Halldór Pálsson, sauð- fjárræktarráðunaut, sem dvalið hefir þar syðra um 10 mánaða skeið. í viðtalinu segir Dr. Halldór Pálsson frá mörgu, sem athyglis- vert er fyrir íslenzka bændur. Til viðbótar því sem Dr. H. P. segir, er rétt að skýra frá því, að árið 1954 voru um 50 milljónir hektara lands á Nýja Sjálandi í rækt, þar af tæplega 44 milljónir hektara undir grasi. Á sama tíma var skóglendi þar um 24 milljónir hektara. Af viðtalinu við Dr. H.P. kemur í ljós, að vandamál landnemanna í Nýja Sjálandi hefur verið það sama og víðast annars stað- ar, en það er að ryðja skóginn til þess að fá landrými fyrir jarðrækt. I hinum nýju lönd- um hefur ruðning skóganna því miður verið framkvæmd þannig, að hún hefur víða fram- kallað miklar landskemmdir. Þannig hafa lönd eins og Mexico og Suður-Afríka orðið mjög hart úti. Menn, sem ruddu skógana með öxi og eldi, skildu ekki alltaf þýðingu skógarins fyrir verndun jarðvegsins og fyrir viðgang annars gróðurs og gengu því lengra en gott var. í Nýja Sjálandi er ástandið þannig, að skóg- arnir gefa af sér yfir 600 milljónir feta af borð- viði árlega og er flutt út dálítið af viði, eink- um til Ástralíu. Þá hefur einnig á seinni ár- um verið skapaður trjákvoðu- og pappírs- iðnaður á grundvelli skóganna, sem menn gera sér miklar vonir um. Þá er einnig unnið tals- vert að því að gróðursetja nýja skóga. Sumarið 1954—1955 var þannig gróðursett í 10.000 hektara, en síðan hefur þessi starfsemi verið mikið aukin. Hin vísindalega nýting landsins, bæði í rækt- un og beit, sem Nýsjálendingar hafa lært, ætti að vera okkur íslendingum fyrirmynd. Hún hefir leitt til afkastamikils landbúnaðar. Þannig var meðalsauðfjárhjörðin í Nýja Sjá- landi 1022 kindur árið 1955. í viðtalinu við Dr. H. P. kemur fram, að ein bóndahjón mjólka 92 kýr. Það er auð- séð, að afkoma bænda, sem afkasta svona gífurlega miklu, hlýtur að vera betri en þeirra sem hokra með smábú. Þessi afkastamikli landbúnaður virðist grundvallast á tvennu: annars vegar vísindalegri notkun landsins og hins vegar vinnuhagræðingu og nægilegum vél- um. Á báðum sviðum eigum við íslendingar mikið ólært og ógert. Það er eftirtektarverður munurinn á þeim vandamálum, sem Nýsjálendingar hafa við að eiga og okkar vandamálum. Þeir komu að landi alvöxnu skógi, sem þurfti að ryðja til þess að fá landrými undir annan nytja- gróður. Eitt af okkar vandamálum er hins vegar það, að hér erum við í skóglausu landi að kalla má. Það er einn mikill vandi, hvernig eigi hér að gera skóginn að þætti í landbún- aðinum. Enn, sem komið er, torvelda hinar fáu kindur, sem við höfum, skógræktarstarf- ið. En af viðtalinu við Dr. H. P. er að sjá, að aukin jarðrækt og vísindalega grundvölt- uð beit myndi geta leyst það mál, þannig að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.