Freyr

Árgangur

Freyr - 15.09.1962, Síða 39

Freyr - 15.09.1962, Síða 39
FRÉYR 327 SVERRIR GÍSLASON: GREINARGERÐ i. Verðlagsgi'undvöllnrinn fyfrir á!rið 1962— 1963 er uppbyggður á sama hátt og undanfar- andi ár. Hér verður drepið á helztu gjaldaliði grundvallarins og verður þá fyrst fyrir kjam- fóðrið og er það sem fyrr, að kúnni er ætlað 400 kíló kjarnfóðurs að meðaltali og kindinni 10 kíló. Fóðrinu er svo skipt eftir því hlut- falli, sem er á milli innlends fóðurmjöls og innflutts maísmjöls og fleiri kolvetnisfóðurteg- unda. Áburður er tekinn á sama hátt eftir skýrsl- um Hagstofunnar um innfluttan áburð og Framleiddan áburð innanlands, en þó nokkuð dregið frá vegna áburðarnotkunar í kaup- stöðum og þorpum. Viðhald og fyming útihúsa er tekin á svip- aðan hátt og að undanförnu, þó með þeirri breytingu, að f. á. viðhalds og fyrningarupphæð í grundvellinum var lækkuð um kr. 2456, þar sem nokkur hluti upphæðarinnar, kr. 4456 fyrra árs grundvallar, taldist til fyrningar. enda fékk þessi skoðun allverulega stoð í at- hugun Hagstofunnar á allmörgum framtölum bænda, einkum úr Arnessýslu. Hins vegar var nú viðurkennd fyrningar- upphæð fyrra árs kr. 150.000 + kr. 14.383, sem útihúsabyggingar ársins 1962 nema að meðaltali á bónda. Fyrningarupphæð fyrir útihús nemur þá alls kr. 164.383 og reiknast þá af þeirri upphæð 3% fyrning. Þessi liður, fyrning og viðhald útihúsa, hækkar því úr kr. 4456.00 í kr. 6.931.00 eða um kr. 2.475.00. Viðhald girðinga tekur lítilli breytingu, að- eins lækkun. þar sem gaddavír og timbur hef- ir lækkað lítilsháttar. Kostnaður við vélar hækkar, varahlutalið- urinn um kr. 1546.00, annað er óbreytt. Flutningskostanður hækkar um kr. 291.00. Vextir af eigin fé hækka um kr. 8100.00 og aðrir vextir hækka um kr. 113.00. Við verðlagninguna f. á. lögðu fulltrúar framleiðenda í sexmanna nefnd til, að vextir yrðu reiknaðir af eigin fé 5% af kr. 349.000.00 Það varð ekki að samkomulagi þá. Nú varð samkomulag um að reikna 5% af kr. 349.000.00 + kr. 8.700 vegna vélakaupa og kr. 14.300 vegna útihúsabygginga á árinu, og reiknast þá vextir af eigin fé 5% af kr. 372.000.00. Ræktunarsjóðslán 4% af kr. 58.047.00. og af öðrum skuldum 9% af kr. 43.000.00. Verður þá vaxtaupphæðin alls kr. 24.792.00. Annar rekstrarkostnaður hækkar um kr. 800.00. Vinnulaun bóndans hækka úr kr. 86.142.00 í kr. 94.576.00 og aðkeypt vinna hækkar úr kr. 12.788.00 í kr. 13.946.00. Kostanðarliðir verðlagsgrundvallarins hafa, samkvæmt framantöldu því hækkað um kr. Í24.888.— II. Afurðamagn, verðlagsgrundvallarins hefur tekið nokkrum breytingum. Mjólkurmagnið aukið um 810 lítra, naut- gripakjöt aukið um 16 kg. Sauðfjárafurðir óbreyttar nema hvað ullin hefur lækkað um 0,2 kg, reiknuð nú 1,8 kg á kind. Hins vegar hefir hrossakjöt verið auk- ið um 50 kg og byggist það á umsögn Árbók- ar landbúnaðarins um það. Þá hafa kartöflur verið lækkaðar úr 15 tunnum í 10 tunnur. Auka búgreinar hafa hækkað um kr. 1275.— og vinnutekjur utanbús hafa hækkað um kr. 615.—. Það má segja, að tekjuliðirnir, sumir hverjir, séu teygðir helzt til mikið upp á við eins og aukabúgreinar og hrossakjötið. Hagstofan hefir að venju lagt fram úrtak úr búnaðarskýrslunum yfir nokkur bú: Úr- tak úr 20 hreppum á mjólkurframleiðslusvæð- um og 20 hreppum, þar sem telzt vera kjöt- framleiðsla. Úrtakið er tekið úr hreppum þar sem Hagstofan telur, að búnaðarskýrslur séu vel færðar, bæði hvað snertir framtal bústofns, afurða og kostnaðar við búrekstur. í þetta sinn eru teknir þrír flokkar búa, auð -

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.