Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1962, Side 42

Freyr - 15.09.1962, Side 42
Vöruvagn, fólksvagn og barnavagn — og húsið, eiga þau Lis og Sigfred Madsen. ég vildi sjá ögn af landinu því að ekki var víst að til þess gæfist tækifæri öðru sinni, og heim til Danmerkur kom ég með Stavanger- fjord þann 29. júlí — heim í óvissuna, því að ekki vissi ég hvað mín biði heima, segir Sigfred. Nú, ég tók mér frí til 15. september, þá byrj- aði ég að aka bíl. Eg leit á bújarðir en mig vantaði fjármagn til þess að kaupa jörð og bú. Ég hugði ekki á stærra bú en það, að ég gæti sjálfur gegnt öllum hlutverkum bóndans og starfsins. — Og svo stofnaðir þú heimili, gríp ég inn í. — Já, ég trúlofaðist í september, ég hafði kynnzt konuefninu úti á Islandi á sínum tíma, hún vann í Reykjavík um eins árs skeið á heimili Jóhönnu Magnúsdóttur, lyf- sala. Við giftumzt í marz 1961. Ég var þá öku- maður á mjólkurflutningabíl, það var aðeins partur af hlutverki, ég varð að hafa aðra flutninga með svo að fullt framfæri væri af því. Við bjuggum í Tönder fyrst, en ég keypti fljótlega 3300 fermetra lands rétt utan við bæj- armörkin í Tönder, það er í sveitarfélagi sem heitir Korntved. Ég hóf strax framkvæmdir við byggingu, ók sjálfur efni, gróf fyrir undir- stöðum, lagði veitur, keypti rör og steina til þess að hlaða veggi, lagði sjálfur rörin í allar veitur og hlóð sjálfur veggina. Hér í sveitinni er engin kvöð á um, að fagmenn skuli gera bæði þetta og hitt svo að þau atriði voru ekkert vandamál. Ég notaði allar stundir til bygging- arinnar og stundum var langt liðið á nótt áður en ég hætti starfi. Ég reisti sperrur sjálfur, fékk leiðsögn til þess að gera fyrstu kraft- sperruna, hinar gerði ég einn, ég setti þak- rennur á og þak, en raflagnir varð lærður raf- virki að leggja, það verk mátti ég ekki sjálfur inna af hendi. Og hér stendur húsið, segir Sigfreð, þú getur skoðað það. Já, ég gat skoðað það, því að hinn 9. júlí s. 1. sumar heimsótti ég Sigfred og Lis konu hans, þar sem þau búa nú, ásamt nokk- urra mánaða gamalli dóttur, í hinu nýbyggða húsi, sem raunar er byggt handa svínum og hænsnum, en, Sigfred hefur innréttað etit t horn þess til bráðabirga til íbúðar, eina stofu, eldhús og snyrtingu, og þar eru hin vistlegustu skilyrði búin af hendi konu hans svo að vel má við una. — Þegar ég er búinn að byggja íbúðarhús handa okkur ætla ég að nota þetta horn sem skrifstofu og afgreiðslustað hér við búið, segir Sigfred. Það verður Ijómandi starfsstaður fyr- ir bóndann þegar þar að kemur, það skal fús- lega staðfest. Sérhver sem hugleiðir getur gert sér í hug- arlund hvort það hefur ekki kostað allmörg

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.