Freyr

Volume

Freyr - 15.09.1962, Page 47

Freyr - 15.09.1962, Page 47
FREYR 335 Kjötvinnsla og kjötnámskeið í ágústmánuði síðastliðnum dvaldi hér á landi danskur maður að nafni Kaj Ander- sen. í heimalandi sínu hefur hann að at- vinnu leiðbe'ningarstarfsemi í kjötvinnslu og kjötiðnaði og starfar að þeim málum á vegum Iðntæknistofnunarinnar í Kaup- mannahöfn (Teknologisk Inst tut). Og svo er hann í tengslum við rannsókn- arstofnanir og tilraunastarfsemi, sem rekin er fyrir þessar greinar. Eru þar fram- kvæmdar ým skonar prófanir með allskon- ar matvæiageymslu o. fl. Að því er kjötverzlanirnar snertir nær hlutverkaskráin til reykinga, kælingar, frystingar, suðu, niðursuðu og hvers konar annarra varðveizluaðferða auk hins eigin- lega iðnaðar. Hingað kom Kai Andersen til þess að leiðbeina íslendingum í þessum greinum, en svo sem kunnugt er, er kjötiðnaður vax- andi hér á landi og allstór hópur manna vinnur nú að þeim verkefnum. FREYR náði tali af Andersen áður en hann fór, og spurði um þau hlutverk, sem hann rækir og hvað hér var til meðferðar á námskeiðunum, svo og hvað honum virt- ist um íslenzk skilyrði til kjötiðnaðar. — Hvaða menntunar er krafizt af kjöt- iðnaðarmönnum til undirbúnings fyrir hlutverk þeirra? spyrjum vér. — Kjötiðnaðarmenn okkar verða að vera sérmenntaðir Hjá okkur Dönum skiptist stéttin í nokkrar greinar svo sem: slátr- ara, pylsugerðarmenn, og hvaða grein sem valin er verða menn að stunda nám í 4 ár til undirbúnings fyrir hlutverkið. Það verð- ur að fara fram undir stjórn meistara í iðninni en námið er bæði bóklegt og verk- legt með skólagöngu, nemendur verða að sækja iðnskóla 200 stundir á ári í fyrstu 3 ár námstímans, en í þessu skólanámi er þó falinn viss stundafjöldí 1 verklegum æf- ingum. Fyrsta árið eru allar deildir saman og fá þá sömu fræðslu um almenn atriði fagsins en síðar sérgreinist námið. — Fá danskir kjötiðnaðarmenn og slátr- arar fræðslu um eðli skepnanna og eitt- hvað um hlutverk bóndans, sem styður að því að afurðir skepnanna verði góð vara? — Vissulega og hana allumfangsmikla. Kennd er saga búfjárræktar og gerð grein fyrir mismun á eðli villtra dýra og tamins búfjár, og svo á mismun hinna einstöku greina og kynja búfjárins. Þar að auki er veitt fræðsla um þýðingu fóðurs og fóðrunarfyrirkomulags á vissum afurðastigum skepnanna, en þetta allt hef- ur mjög mikil áhrif á kjötgæðin og afurða- magnið. Það hefur ekki smávægilega þýð- ingu fyrir pylsugerðarmanninn að vita hvers konar hrávöru hann hefur handa í milli og hvernig velja skal hráefnin til þess að geta gert góða iðnaðarvöru. Við höfum t. d. allt annað kjöt í Danmörku en það sem um er að ræða hér á íslandi, og enn öðruvísi er það í Argentínu. — Og svo eru skepnurnar aðrar hjá ykk- ur, og þetta er breytingum háð. Ég hef orðið þess áskynja, að svínin eiga nú að vera löng og ekki feit, en fyrir aldarfjórðungi, þegar ég var við nám, þá voru feitu svínin í miklum metum. Er þetta eitthvað í tengslum við kjötiðnaðinn? — Ég held nú það. Við slátrum nú um 9 milljónum svína á ári. Við seljum svíns- höm í dósum til Ameríku í stórum stíl og er þar veitt innflutningsleyfi fyrir ákveðn- um fjölda dósa á ákveðnum tímabilum. Þá er auðskilið, að það er vinningur að hver höm sé sem þyngst, að hvert svínslæri sé sem stærst en það má þó ekki vera af hve gömlu dýri sem er, heldur af vænum grís, og höm af vænum grís vegur auðvitað meira og gefur meira andvirði en af þeim lélega. — Og nú er það hlutverk yðar um stund að leiðbeina íslendingum í hagnýtingu kjöts.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.