Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 52

Freyr - 15.09.1962, Qupperneq 52
340 FRE YR Mjaltavélar. Það er góð og gild regla að grannar okkar á Norðurlöndum hafa talningadag á ári hverju, venjulega að sumrinu. Þá er auðveldast að sinna þessu þegar vorönnum er lokið og sum- arannir ekki hafnar. Þá er talið búfé bænda, vélar og annað það, sem þykir þess vert að vita skil á til þess að gera sér ljósar ástæður bændastéttarinnar. Við talningu 1960 sýndi það sig, að mjalta- vélar á Norðurlöndum eru flestar í Svíþjóð, en fæstar í Finnlandi. Það ár voru þær á hvert 100 mjólkandi kúa: í Svíþjóð 10,8 vélar — í Danmörk 9,7 — í Noregi 6,7 — í Finnlamdi 2,6 — og sama ár munu þær hafa verið um það bil 3 á hvert 100 kúa hér á íslandi. Hreindýrakvillar virðast nú hrjá stofninn íslenzka, sem geng- ur á öræfunum upp af Jökuldal og ef til vill víðar. Eftirlitsmaður hreindýranna og nokkr- ir aðrir, sem farið hafa á hreindýraveiðar, hafa orðið þessa glöggt varir, því að á vegi þeirra hafa orðið hreindýr, sem voru að falli komin sökum krankleika. Benda nokkrar líkur til þess, að hér sé um iðraorma af einhverju tagi að ræða, en annars er þetta í nánari athugun og verður líklega úr því skorið áður en langt líður á haust. Heyskap mun því nær allstaðar hafa verið lokið um göngur, en ekki er eftirtekja heyfengs mikil á þessu sumri. Telja má víst, að hefði ekki áburö- ur verið notaður nú, svo sem raun er á, þá hefði orðið verulegur grasbrestur. Klaki var í jörð um Suðurland fram í júnílok og jafnvel lengur sumstaðar. Um landið norðaustanvert voru tún mjög kalin. Einstakir óþurrkar herj- uðu um stór svæði Norður-Múlasýslu og víðar. Um Vestfirði, Dali og Snæfellsnes var sumar sæmilegt og gott og eftirtekja eftir því, en víð- ast annarsstaðar mun heyfemgur fyrir neðan meðallag og allvíða miklu neðar. Kartöfluuppskera mun verða nokkuð fyrir neðan meðallag á þessu hausti, en hún nálgast meðallag a'ðeins þar sem bezt er, en annarstaðar er talið að naumast sé þess vert að taka upp, eða upp- skera er rýr og aðeins smámunir. Þessu veld- ur auðvitað svalt sumar og stutt, en kartöflu- gras féll víðast fyrri hluta septembermánaðar. Álheimsframleiðsia minkaskinna nam 15 milljónum á árinu 1961 og er það talið meira magn em nokkru sinni fyrr. Framleiðsla loðvöru eykst hröðum skref- um í austanverðri Evrópu og eru þjóðir þeirra landa harðir keppinautar á markaðnum, eink- um að því er snertir refaskinnin. Norðmenn, sem um langt skeið hafa staðið í fylkingarbrjósti, hvað gæði refaskinna snert- ir, telja hlut sinn skarðan nú og er refarækt orðin lítil þar í landi. Aftur á móti hafa Norð- menn mikla minkaræktun og seldur þeir minka- skinn árið 1961 fyrir stórfé, en samtals nam andvirði loðvöru þeirra árið 1981 um 570 millj- ónum íslenzkra króna (95,1 millj. n. kr.). Loðvörumarkaður er nú umfangsmikill eink- um vegna þess, að í tízku er að setja kanta og kraga á klæðnað af ýmsu tagi og eru skimnin að sjálfsögðu klippt niður á ýmsa vegu til þeirra þarfa. Þessari notkun fylgir og sá kost- ur, að lélegu skinnin notast betur en annars og verða miklu verðmeiri við slíka notkun. Útgefendur: Búnaðarfélag ísl. og Stéttarsamband bænda. - Útgáfunefnd: Einar _ Ólafsson, Pálmi Einarsson, Steingr. Steinþórsson. - Ritstjóri: Gísli Kristjánsson. - Ritstjórn, afgreiðsla og innh.: Læ'kjarg. 14 B, Reykjavík. Pósth. 390. Sími 19200. BUNAÐARBLAÐ Áskriftarverð kr. 100.00 árgangurinn. — Prentsmiðjan Edda h.f. v_________________________,_________________________________________________________:_____________J

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.