Freyr

Volume

Freyr - 01.09.1969, Page 9

Freyr - 01.09.1969, Page 9
ÁSGEIR L. JÓNSSON: Nýraektin Inngangur. Að vonum er mikið rætt og ritað um jarð- ræktina, það er að segja nýrækt til gras- framleiðslu. Eðlilega eru mistökin þar efst á blaði. Kemur þá tvennt til: 1. „Taðan“ er sums staðar ekki taða, er ekki kúgæf. 2. Kalið. Að mínu áliti er fyrra atriðið í flestum tilfellum sjálfskaparvíti, sem þarf yfirleitt ekki að koma fyrir, ef nútímaþekking er fullnýtt. Síðara atvikið mun í sumum til- fellum óviðráðanlegt að nokkru eða öllu leyti. Skal nú vikið nokkrum orðum að þessum atriðum. Stiklað verður á stóru og einkum stuðzt við eigin reynslu og athuganir í þau 46 ár, er ég hefi starfað fyrir íslenzkan land- búnað. Ræktunarlandið. Hvernig tekst til með ræktunina veltur að- allega á jarðvegstegund, jarðraka, jarð- vinnslu, fræi og áburði. Ef rita ætti ræki- lega um alla þessa liði, yrði það allstórt rit, hér verður því aðeins drepið á sumt hið helzta í sambandi við þessi höfuðatriði. Um túnrækt á sandi skal fátt eitt sagt. Sé sandurinn hæfilega rakur, er hann að jafnaði öruggastur með góða, kúgæfa upp- skeru þegar á fyrsta ári. Kalhætta er minni en á flestri annari jörð, miklir þurrkar geta dregið mjög úr sprettunni, jafnvel orsakað bruna, áburðarþörfin er yfirleitt mikil og alger á sjávarsandi, sem ekkert leggur á borð með sér. Algróið valllendi er annað auðveldasta landið til skjótrar og góðrar ræktunar. Á að vinnast grunnt. Tilfærslur séu ekki meiri en nauðsyn ber til, svo að vatn standi ekki uppi. Kalhætta að jafnaði lítil. Lyng- og flagmóar eru af ýmsu tagi. Þeir eru ófrjóir og því áburðarfrekir. Kalhættan að jafnaði mikil, en minnkar við langvinna ræktun. Uppskeran, einkum fyrstu árin, getur verið mjög breytileg að vöxtum. Oft- ar mun hyggilegt að vinna landið frekar grunnt, annars fer það eftir jarðveginum (þ. e. blöndun hans og lagskiptingu), og verður um það að fara eftir mati kunnáttu- manna. Melar eru breytilegir — tíðast mjög á- burðarfrekir, venjulega leirbornir og þar með kalsæknir. Vinnsludýpt eftir atvikum, líkt og á lyng- og flagmóum. Sé mölin smá- gerð, er skyndiræktun auðveld, svipuð og á sandi. Taða af melum, lyng- og flagmóum er gott fóður, ef jarðrakinn er hæfilegur. En hér gildir það sama og um sandinn, að huga verður vel að áburðarþörfinni, að snefilefn- um ógleymdum. Mýrar og flóar hafa mjög fjölbreytta byggingu og um leið margþætta eiginleika með tilliti til ræktunar. Svarðar- eða mómýrar eru venjulega beztar. Þær taka yfirleitt vel þurrkun og búa yfir meira frjómagni en nokkur annar jarðvegur á ís- landi. Frjóastar eru þær mýrar, sem jafn- framt hafa notið aðfoks frá uppblásturs- svæðum, s. s. mýrarnar frá Þjórsá og austur fyrir Markarfljót og svo langt til hálendis sem byggð ræður. Ef þessar mýrar fá næga þurrkun, gefa þær víða óvenju mikla upp- skeru með tiltölulega lítilli áburðarnotkun. — Slíkt hið sama getur gerzt hér og þar um landið, þó í mjög mismunandi mæli. F R E Y R 323

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.