Freyr - 01.09.1969, Side 13
„ .. aS skerpiplógurinn
sé bezta tækið', sem
enn hefur verið flutt
til landsins, til vinnslu
á mómýrajörð, enda
sé hún vel þurr.“
að ekki höfðu verið gerðar jarðvinnslutil-
raunir og ráðlagði til bráðabirgða að reynd-
ir yrðu plógar, sem stilla mætti á 40—70 cm
vinnsludýpt. Eg lagði áherzlu á, að plógur-
inn snéri strengnum vel við þannig, að hið
seiga yfirborð græfist undir, en svörðurinn
(mórinn) kæmi upp á yfirborðið.
Um þessar mundir, eða skömmu síðar,
kom fyrsti skerpiplógurinn til landsins og
síðan hver af öðrum, líklega til flestra rækt-
unarsambanda landsins. Ég var og er þeirr-
ar skoðunar, að þetta sé afbragðs verkfæri.
En hver varð hin svo kallaða reynsla? Ég
veit ekki hvort skerpiplógur er nú nokkurs
staðar notaður nema í Þykkvabænum, en
þar hefur hann þótt góður til að brjóta nýja
kartöfluakra. Jarðvegurinn er þar lagskipt-
ur sandi, leir og mold, sem blanda þarf
saman.
Þá er komið að spurningunni, hvers
vegna hvarf skerpiplógurinn úr notkun?
Það er gamla sagan, rauði þráðurinn, að svo
að segja hvert einasta jarðvinnslutæki, sem
flutt er til landsins, er misnotað að meira
eða minna leyti. Segja má, að jarðvinnslu-
aðferð Islendinga hafi fylgt reglum tízku-
fyrirbæra. Þegar nýtt tæki kemur, er það
tengt við dráttar- eða beltisvél, eitt eða
fleiri sumur í röð, þar til nýtt tæki kemur
á markaðinn. Því er beitt til einnar og sömu
dýptar án tillits til jarðvegsins. Það er t. d.
ekkert undrunarefni, þó ekki reyndist vel
að beita skerpiplógnum til fullrar dýptar
í lagskiptum mela-, leir, eða lyngmóajarð-
vegi og velta með því dauðum og jafnvel
eitruðum jarðvegi upp á yfirborðið. Eða
beita skerpiplógnum á það blautt land, að
grunnvatnið standi í plógförunum. Eða, þó
á þurru landi sé, að loka flaginu fljótlega
eftir fyrstu vinnslu. Síðan undrast menn, að
landið skuli missíga og verða óslétt, og
skella skuldinni á „andskotans skerpiplóg-
inn“.
Ég er óbreyttrar skoðunar um, að
skerpiplógurinn sé bezta tækið, sem enn
hefur verið flutt til landsins, til vinnslu á
mómýrarjörð, enda sé hún vel þurr. Til að
fullnýta þennan jarðvegsfjársjóð til veru-
legs sparnaðar á köfnunarefnisáburði, er
frumskilyrðið að koma sem mestri jarð-
vegsrotnun af stað. Því meira loft, sem
kemst að, því meiri og örari verður rotn-
F R E Y R
327