Freyr - 01.09.1969, Qupperneq 19
í erlendum búnaðarskólum eru
gervikýr þær fyrstu, sem nem-
endur eru Iátnir Jæra mjaltir
við. Rétt handtök við undir-
búning fyrir vélmjaltir og rétt-
ar aðfarir þegar hreytt er, þarf
að læra, slíkt er engum með-
fætt.
A myndinni má sjá stauta þá,
sem festir eru með belti um
mjaðmir pitanna. Það eru eig-
inlega mjaltastólar, sem ekki
þarf að fara höndum um, þar
eð þeir fylgja beltinu og mann-
inum, þegar hann flytur sig frá
einni kýr til annarrar.
Réttar
vélmjaltir
juku
nytina
Um áratugi hefur verið vitað, að kýr mjólk-
ast fyrr og betur, ef þær eru búnar undir
mjaltir og mjólkaðar á réttan hátt. Þótt
vélmjaltir hafi lagazt mikið á undanförn-
um árum, skortir þó enn á víða, að þær
gangi snurðulaust eins fljótt og vera þarf.
í blaðinu Farmer and Stockbreeder, 15.
nóv. s. L, er klausa um niðurstöður mjalta-
tilraunar, sem gerð var á tilraunastöðinni
í Ruakura á Nýja-Sjálandi. Er þar skýrt
frá því, að afurðir kúnna verði meiri, ef
vel er gætt að því að búa hverja kú undir
mjaltir. Sumar þurfa meiri undirbúning en
aðrar til að selja vel og þurrmjólkast, en
um þetta er ekki hirt á mörgum bæjum,
segir í greininni. Ónógur undirbúningur
lækkaði nytina og stytti mjólkur skeiðið.
° í tilrauninni voru notaðar kvígur af Jers-
ey kyni, og voru þær eineggja tvíburar. í
ljós kom, að þær, sem búnar voru undir
mjaltir með því að þvo og nudda spena og
neðri hluta júgurs í 30 sek., áður en mjaltir
hófust, mjólkuðu 30% meir en þær, sem til
samanburðar voru og ekki voru búnar und-
ir mjaltir.
Annað stig tilraunarinnar var fólgið í
því, að önnur kvígnanna í hverri samstæðu
hlaut nauðsynlegan undirbúning fyrir
mjaltir til að mjólkast eins hratt og vel og
hægt var, en júgur kvígnanna í hinum
hópnum voru þvegin í 5—8 sek. og spena-
hylkin höfð á aðeins lengur en á að vera,
en það er algengt og þá einnig á Nýja-Sjá-
landi. Kvígurnar, sem voru búnar rétt und-
ir mjaltir og mjólkaðar á réttan hátt, mjólk-
uðu 58 dögum lengur en hinar, og voru af-
urðir þeirra hærri sem svaraði 498 kg af
mjólk eða 33 kg af smjörfitu. Þurfti lítinn
undirbúning fyrir mjaltir fyrstu 50 daga
mjólkurskeiðsins, en meiri eftir því, sem
leið á það. Það kom í ljós, að lágmjólka
kvígur þurftu meiri undirbúning og einnig
þær, sem voru viðkvæmar og taugaveiklað-
ar.
F R E r R
333