Freyr

Årgang

Freyr - 01.09.1969, Side 51

Freyr - 01.09.1969, Side 51
Hundaæði Af völdum hundaæðis létu 637 manns lífið í 92 löndum, samkvæmt alþjóðlegu yfirliti um hundaæði, sem Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunin (WHO) hefur látið gera. Af þeim 92 ríkjum, sem gáfu WHO upp- lýsingar, tilkynntu 63, að hundaæði gerði vart við sig í löndum þeirra. Bólusetning gegn hundaæði var veitt 560.000 manns, sem komið hafði nálægt skepnum, er grun- aðar voru um að ganga með sjúkdóminn. Hundaæði í refum er nú farsótt í Mið- Evrópu, einkum í Þýzkalandi, og breiðist út til nágrannalandanna. Tékkóslóvakía og Pólland tilkynna, að hundaæði fari vaxandi í villtum dýrum þar í löndum, og að veikin breiðist út til Austurríkis, þar sem hún kom upp aftur 1966 eftir 7 ára fjarveru. Far- falla og fituna, sem er nokkurt vandamál. í sambandi við þau atriði var samþykkt áskorun til kjötmats ríkisins og sláturhús- anna um: □ að hámarksþyngd lambsskrokks á mark- aði sé 15 kg. □ að kjötmatið verði samræmt um allt land. □ að hið allra fyrsta verði hver lambs- skrokkur rúllustimplaður og þannig auðkenndur I, II og III flokkur. Þingið lagði meðal annars áherzlu á að brýna fyrir almenningi nauðsyn þess, að sauðfé yrði fjölgað, einkum í þeim sveit- um, sem mörg býli hafi fallið úr byggð því að þar geti féð hjálpað til að varna algjörri örtröð vegna sinuflóka, og útbreiðslu ó- æskilegra jurta megi tefja með því að beita landið. sóttin barst til Sviss 1967, þegar óður refur var skotinn nálægt þýzku landamærunum. Refurinn er í senn helzti sökudólgurinn og fórnardýrið, og hingað til hafa húsdýr sloppið að mestu. Strangar varúðarráðstaf- anir hafa verið fyrirskipaðar — refir og greifingjar skulu skotnir, bann lagt við að flytja hunda og ketti, o. s. frv. — en skyldu- bólusetning húsdýra hefur ekki verið tekin upp. Vestan hafs hefur hundaæði í skepnum verið að meðaltali 50 tilfelli árlega í Dóm- iníska lýðveldinu nokkur undanfarin ár, en árið 1967 hækkaði talan skyndilega upp í 235. í Mexíkó hefur hundaæði verið í vexti undanfarin 20 ár, en aukin bólusetning hunda hefur fækkað sjúkdómstilfellum meðal manna. Fólk, sem talið er vera í mestri hættu, er bólusett, og haldið er uppi herferð með f jöldabólusetningu. Önnur lönd í rómönsku Ameríku eru bet- ur á vegi stödd en áður. Frá 1966 til 1967 fækkaði hundaæðis-tilfellum í Paraguay um helming, og á sama tíma fækkaði til- fellum í Perú úr 1600 niður í 907 — vegna strangara eftirlits. Mestar urðu þó fram- farirnar i Uruguay, þar sem tilfellin voru 516 meðal dýra og eitt meðal manna árið 1966, en ári seinna voru einungis 29 dýr með hundaæði og enginn maður. Hundaæði í kvikfénaði í Trinidad og Tobago er haldið í skefjum með fjöldabólusetningu naut- penings og skipulegri útrýmingarherferð gegn blóðsugu-leðurblökunni. Ekki er vitað til þess, að' hundaæði hafi horizt til íslands, en með stðrauknum og: örum samgöngum getur það skeð, ef varúðarráðstafnir svíkja. í Græn- landi hefur þessi kvilli gert sín vart nokkrum sinn- um. F R E Y R 365

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.