Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1969, Síða 52

Freyr - 01.09.1969, Síða 52
A/°iAr Leiðrétting Þess er rétt að geta. að prentvillupúkinn var á ferð þegar greinin um sel og selfarir birtist í 13—14 hefti. Þar átti smjörkaka auðvitað að vera smjör- skaka, fólk skók strokkinn í gamla tiaga og skellti sköku síðan. f öðru lagi skyldi drafi auðvitað vera drafli. Fornmenn fluttu smjör og drafla heim frá seljum allt frá íslands fyrstu byggð, og það var kostamaturirin grautur og drafli, sem gert var úr áfunum á smalaárum Hólgeirs Þorsteinssonar. Og svo hefur týnzt heil lína í aftari dálki á bls. 348, fimmta lína neðanfrá. Þar skyldi standa: Aft- ur á móti var Hvassafelsselið með allt öðru sniði, þar var reglulegt selhús, o. s. frv. Aðalfundur Stéttarsambands bænda verður haldinn að Reykjum í Hrútafirði daga 29. og 30. ágúst. Reiknað er með að þetta hefti Freys sé komið til lesenda fyrir þann tíma. Kanínukjöt Um 30 ára skeið hafa Danir framleitt talsvert magn af kanínukjöti og eru það fyrst og fremst smábænd- ur, sem hafa ræktað kanínur. Kjöt þeirra selst að- eins að mjög litlu leyti í heimalandi en markaður fyrir það hefur aðallega verið í Frakklandi og á Ítalíu. Síðastliðið ár var framleiðsían 845 lestir og hefur minnkað um helming á fáum árum eða síðan smábændum fækkaði að ráði ,en um undanfarin tvö ár hefur dönskum bændum fækkað um 20 á dag að meðaltali. Um 30 þúsund bændabýli hafa horfið (úr búskap) síðan 1960, aðallega eru það smábænd- ur sem hafa horfið að iðnaði eða öðrum störfum. Vatnakrabbi er algengur í vötnum í Svíaríki og er veiddur á vissum tímum aðallega síðsumars. Hann þykir herra- mannsmatur. Þetta er stór skepna, eða álíka og humar, sem veiddur er hér við land. Frétt sænskra búnaðarblaða hermir, að um 60.000 ungkrabbar séu fluttir inn frá Kaliforníu um þessar mundir og bændafélögin ákveða í hvaða vötn þeim verði sleppt. Tjá þau. að um 140 umsóknir vatnaeigenda hafi borizt. Gert er ráð fyrir að ræktun hans verði aðallega í vötnum Mið-Svíþjóðar. Eigi veit Freyr hvort hin innflutta krabbategund er sú sama og er í sænskum vötnum (kraftan) algeng og mikils met- inn matur. Vi byder nordiske venner velkommen til Island. Aðalfundur NBC (Nordens Bondeorganisat- ioners Centralrád) verður haldinn í Reykjavík dagana 16. og 17. september n. k. Þetta er í fjórða sinn, sem slíkur fundur er háður hér á landi og þar mæta fulltrú- ar samtakanna frá öllum Norðurlöndum. Þetta hefti Freys er að nokkru mótað þannig að gestunum veitist tækifæri til að kynnast at- höfnum og ástæðum okkar. 366 F R E Y R

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.