Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1973, Page 4

Freyr - 01.08.1973, Page 4
JÓNAS JÓNSSON: BY GGÐ ASTEFNUR og umhverfismál ■\3r^ jiifff jés Umhverfismál eru til umræðu. Menn velta æ meir fyrir sér samskiptum fólksins við landið. Fátt verður afdrifaríkara fyrir þessi samskipti en það, hvernig við högum byggðinni í landinu í framtíðinni. Hvaða byggðastefnu verður hér fylgt og hvernig tekst að framfylgja henni. Ég nota orðið byggðastefnu í nokkuð víðtækari merkingu en farið er að tíðka. Við getum sett okkur mismunandi byggða- stefnur — stefnt að meira eða minna dreifðri byggð eða samþjappaðri og þá í mismunandi einingum. Til að taka öfgana til beggja enda — stefnt að borgriki — eða haft fullkomna dreifbýlisstefnu, jafn- byggðastefnu. í upphafi er rétt að benda á hverjar eru forsendurnar fyrir búsetu og mannlífi hér. Forsendur búsetunnar eru vitanlega landkostirnir, sem hér finnast og okkur hefur tekist að nýta. Það er gróðurmoldin til margskonar ræktunar, og gróðurlendin til beitar og annarra nytjá. Það eru fiskimiðin í kring- um landið og þar með hin margskonar sjávarbjörg. Það eru árnar og vötnin til veiða og ræktunar í þeim. Það er orkan í fallvötn- unum og jarðhitasvæðunum, og það eru stöku jarðefni. Og það er nú orðið líka víðlendið sjálft og náttúrufegurðin, sem dregur til okkar fólk. Eitt er öllum þessum landsgæðum, — sem eru undirstaða tilveru okkar hér, — sameiginlegt. Þau eru dreifð um landið og miðin, sem liggja í kringum það. Sum eru þó flytjanleg að nokkru, en engin að öllu leyti. Það verður því að sækja gæðin til lands- ins og til sjávarins. Spurningin er á hvern hátt við gerum það — hvort við búum hér í borgríki við Faxaflóa, en sendum fólk í selstöður eða útver til að afla gæðanna, líkt og Norðmenn senda námumenn til Svalbarða, og þeir og ýmsar aðrar þjóðir gera, sem stunda hér úthafsveiðar. Eða hvort byggðinni verður háttað þannig, að saman fari í verulegum mæli öflun frum- verðmætanna og búseta fólksins. Við skulum ganga út frá því, að mark- mið samfélagsins verði áfram að veita öll- um þegnunum sem jöfnust lífsgæði, — ekki endilega sömu lífsgæði heldur jafngild. En þá verður fólkið, sem lifir af því að afla frumverðmætanna frá landinu og úr hafinu, — að njóta fullrar þjónustu af hendi samfélagsins. Það verður að njóta jafngildra lífsgæða og höfuðborgarfólk- ið. Við skulum aðeins velta fyrir okkur æskilegustu þróun byggðar í þessu ljósi. Tökum fyrst andstæðurnar til beggja enda, hið algera dreifbýlisþjóðfélag annars vegar og borgríkið hinsvegar. Við það fyrrnefnda höfum við búið í meira en tíu aldir — en 362 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.