Freyr - 01.08.1973, Page 14
Á myndinni eru, auk norska fólksins, Halldór búnaðarmálastjóri og frú, Gunnar Árnason fyrrv. skrif-
stofustjóri og frú, Sæmundur Friðriksson og Einar Ólafsson frá Stéttarsambandinu og Búnaðarfélagi
íslands.
BÆNDUR
og húsíreyjur fró Norður-
Noregi í heimsókn
Nálægt 40 manna hópur bænda og bænda-
kvenna frá Norður-Noregi kom hingað í
heimsókn og ferðaðist um sveitir sunnan-
lands og suðvestanlands um miðbik júní-
mánaðar. Dvaldi hópurinn hér 10 daga
samtals. Við þetta tækifæri gafst rúm til
að ná tali af tveim úr nefndum hópi en
þeir voru: Arne Nilsen, framkvæmdastjóri
hjá Mj ólkursamsölu Norður-Noregs, er nær
yfir Norðland- og Tromsfylki, og Karl
Aartun, ritstjóri við fagrit bænda í Norð-
ur-Noregi, en það heitir NORDEN.
Erindið við þessa tvo úr hópnum var
auðvitað að frétta sitthvað um það er
gerðist í heimi bænda á nefndu svæði. Á
stuttri stund var sjálfsagt hvergi komist
til botns í málefnalegum atriðum, en það
höfðu farandmennirnir að segja, er hér
fer á eftir:
Náttúra landssvæðisins
Umrætt landsvæði liggur að nokkru á
sama breiddarstigi og ísland en sumt tals-
vert eða miklu norðar. Má því gera ráð
fyrir að veðurfar sé álíka og hér á íslandi,
en þó mun rétt vera, að Golfstraumurinn
372
F R E Y R