Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 23
yrðu einnig viðhöfð við 1. júní verðlagn-
ingu búvara.
Og með tilliti til þess, að mikill ávinn-
ingur var að því að fá þá miklu kaup-
gjaldsbreytingu, sem í vændum var inn í
verðlagið strax og einnig hins, að meðferð
verðlagsmála í yfirnefnd hefði tafið fram-
kvæmd allrar verðlagsbreytingar 1. marz
um nokkurn tíma, og verulegrar óvissu
gætti um hver fengur yrði að öðru leyti
að úrskurði yfirnefndar, þá tóku fulltrúar
framleiðenda þann kost að fresta öllum
kröfum um magnbreytingu til 1. sept. n. k.,
en fengju viðurkenningu á öllum þekktum
hækkunum á verði rekstrarvara og þar á
meðal fengju þeir viðurkenningu á því að
taka fasteignaskattinn af bújörðum með
útgjöldum vísitölubúsins. Auk þess launa-
breytingar samtímis hjá bændum bæði 1.
marz og 1. júní eins og hjá almennum
launþegum og þeirri launabreytingu fylgdi
nokkur leiðrétting á launaútreikningum,
sem nam því, að laun 1. marz hækkuðu
um 13,7% hjá bændum í stað 12,4%, sem
var hin viðurkennda launahækkun al-
mennt. Þetta var einkum vegna leiðrétt-
ingar á útreikningi orlofs, en einnig af
öðrum ástæðum.
Verðlagið hefur því nú hækkað alls að
meðaltali frá 1. september s. 1. um 20,93%,
og er það mesta hækkun, sem orðið hefur
í ársfjórðungslegum verðbreytingum frá
því að Sex-manna-nefnd fór að vinna að
verðlagsmálum.
Hækkanir á einstökum gjaldaliðum í %
frá haustverðlagningu eru sem hér segir:
1. Kjarnfóður .................. 41,6%
2. Áburður ..................... 26,2%
3. Viðhald og fyrning húsa.... 13,7%
4. Viðhald girðinga ............ 52,5%
5. Kostnaður við vélar.......... 11,6%
6. Flutningskostnaður .......... 18,4%
7. Vextir ....................... 7,5%
8. Annar kostnaður ............. 22,8%
9. Rafmagnskostnaður ........... 13,8%
10. Laun ....................... 19,4%
í krónutölu er hækkunin samtals
229.861,00. Tekjuhliðin sýnir núgildandi
einingarverð á hverri vörutegund. Mjólk,
nautgripakjöt og kartöflur hafa tekið með-
altalshækkun grundvallarins, en gærur
hafa ekkert hækkað. Ullin hefur hækkað
um rúmlega 31,2% og kindakjötið um
23,4%.
Vinnslu- og dreifingarkostnaður mjólkur
hefur hækkað í vetur um kr. 1,23 pr. ltr.
eða 15,1% og er nú kr. 9,38 pr. ltr. En
þessi kostnaður hækkaði ekki við haust-
verðlagningu. Aftur á móti hækkaði slátur
og heildsölukostnaður kjöts við haustverð-
lagningu úr kr. 25,25 pr. kg. í 33,50 pr. kg.
eða 32,7% og hefur ekki breytzt síðan.
Vaxta- og geymslugjald kjöts hækkaði s.
1. haust úr kr. 1,42 pr. kg. á mánuði í kr.
1,87 pr. kg. eða um 31,69% og hefur staðið
óbreytt síðan þrátt fyrir nýorðna vaxta-
hækkun og hækkun ýmiskonar annars
kostnaðar, sem þetta gjald á að mæta.
Nokkur hækkun hefur orðið á krónutölu
smásöluálagningar og er sú hækkun eink-
um miðuð við að álagningarhækkun sé
nægjanleg til að mæta þeim launahækk-
unum, sem orðið hafa.
Þegar litið er yfir tímabilið frá 1. maí
1971 og til þessa tíma, er meðalhækkun
afurðaverðs í verðlagsgrundvelli 57,88%.
Mjólk, nautgripakjöt og kartöflur hafa
tekið þessa sömu hlutfallshækkun. Ullin
hefur hækkað 125,2%, kjötið 62,8%, en
gærurnar aðeins 13,1%. Ekki er ólíklegt að
gærur hækki á komandi hausti.
Ekki verður að þessu sinni gerð ítarlegri
skýrsla um verðlagsmál landbúnaðarins,
en vísað að öðru leyti til verðlagsgrund-
vallarins sjálfs svo og verðauglýsinga, sem
birtar hafa verið.
Reykjavík, 21. júní 1973,
Gunnar Guðbjartsson.
F R E Y R
381