Freyr - 01.08.1973, Side 26
Þær raddir heyrast hér eins og víðar, að
eggsn frá hænsnabúunum séu nú miklu lak-
ari en þegar hænsnin gengu frjáls um hlöð
cg hauga forðum. Hjá öðrum þjóðum segir
fólk, að hænsnakjötið hafi ekki nærri eins
mikið bragð og fyrr gerðist. Þetta álit ýmissa
hefur við engin rök að styðjast, segir sænski
ríkisráðunauturinn í alifugiarækt. Við látum
því ELIS JÖNSSON hafa orðið, samkvæmt
boðskap hans í LAND í apríl s. I.
slíkir kvillar eru mjög fátíðir. Á ýmsum
stigum hjuggu þeir hvorir aðra í þá daga.
Nú er þetta miklu fátíðara í búrunum.
Betra í búrum
Þegar fólk sér fugla í búrum þá hrópa
ýmsir hátt um fangelsi og illa meðferð.
Reynslan sýnir, að fuglunum líður þar vel
og ágætlega þegar séð er um að hafa vald
á hita og raka, en í nútímahúsum er hvoru-
tveggja gætt við byggingu húsanna.
Það er búið að prófa og margprófa það
í ýmsum löndum, að hænurnar verpa mun
betur í búrum en á gólfum. Það mundu
þær ekki gera ef vanlíðan væri um að
ræða í búrunum. Endurteknar tilraunir
hafa sannað, að bezt er að hafa svo sem
4—5 hænur í búri hverju og að 400 eða í
hæsta lagi 500 cm2 er hentugasta rými
gólfflatar fyrir hverja hænu í búri. í byrj-
un vissu menn ekki hvað bezt hentaði, en
nú vita menn það og haga innréttingum
með tilliti til þess, sem reynslan hefur
kennt. Tilraunirnar hafa líka sýnt, að jafn-
vel smábreytingar í umhverfisskilyrðum
fuglanna koma fram sem sveiflur í afurða-
magni þeirra svo að þar í finnst hverja
þýðingu það hefur að betra og bæta að-
búðina. Það hindrar náttúrlega ekki að til
geta þeir verið, sem eru kærulausir um
velferð dýranna, en þeir finna þá líka bezt
fyrir því hvað það kostar, — þeir aðiljar
tapa og gefast alltaf upp á slíkum búskap.
í forsjá venjulegra og góðra hirða líður
hænsnunum sérlega vel í búrum, og með
efldum kynbótum og þessvegna vaxandi
þörf á góðri og ágætri hirðingu og meðferð
fuglanna, er ekki önnur aðferð til hýsingar
þeirra betri en búrin. Sé hún lakleg eða
ekki í lagi þá kemur það illa niður á af-
urðamagninu. Reynslan sýnir, að magn af-
urða er allt annað og miklu meira en
fyrrum og þar er bezta sönnunin, sem
fengin verður, fyrir ágætri líðan fuglanna.
384
F R E Y R