Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1973, Síða 27

Freyr - 01.08.1973, Síða 27
Holdafugíaframleiðslan Með risaskrefum í kynbótastarfi hefur verið að því unnið á síðustu áratugum að efla stofna holdafugla og hefur árangur af því orðið með ágætum. Kynfesta hefur náðst og umfram allt hefur tekizt að auka vaxtarhraða stofnanna, að nokkru með líf- eðlislega efldum atriðum í fari fuglanna og að öðru leyti með bættu fóðri og fóðrun. í ýmsum löndum hafa mörg doktorsefni lagt stund á að kanna leiðir til betrunar í hinum ýmsu atriðum varðandi arfgengi, ræktun og meðferð alifugla, og virkilega hefur ýmsum tekizt að finna greiðar leiðir til efiingar og umbóta. 20 — 30 máske 40 kynslóðir vissra stofna hafa verið ræktaðar og bættar og endurbættar með stöðugu úrvali og víxlfrjógvun. Þannig hefur tekizt að framleiða fugla, sem vaxa svo sem þrisvar sinnum örar en áður gerðist. Þeir vaxa nú á 6-—7 vikum til sömu þyngdar og áður gerðist á svo sem þrem mánuðum. Um þessi efni segja ýmsir, að dauðsföllin séu þó alltof algeng meðal þessara ört vaxandi fugla. Hvarvetna gildir það, að því betri og meiri rækt, sem lögð er við eflingu dýra til aukinna afurða, þeim mun meiri ná- kvæmni verður að gæta við alla meðferð þeirra og hirðingu. Þar sem nokkuð skortir á slíkt er auðvitað eðlilegt, að dauðinn berji að dyrum oftar en æskilegt þykir í fuglabúi þess, sem vantar natni og ná- kvæmni. Hinu má þó ekki gleyma, að þeg- ar farandkvillum er afstýrt er mikilli hættu bægt frá búi. Nú er farið að gera unga ónæma fyrir vissum aðsteðjandi hættum frá smitandi kvillum og verður það að teljast framför svo um munar. Fyrir 10 árum var talið eðlilegt, að dauðsföll 1 holdaungum til kjötframleiðslu væri svo sem 5%. Nú eru eðlileg afföll á sama skeiði um 3%. Fyrir nokkrum árum var um að ræða talsverða notkun fúkkalyfja við í- blöndun í kjúklingafóður. Þá risu ýmsir upp og töldu það óhæfu vegna þess, að þar með væri hætta á ferðum fyrir fólk, sem neytti kjúklingakjöts og hefði ofnæmi fyrir fúkkalyfjum. Þetta fyrirbæri er nú úr sögunni, það er tekið fyrir notkun lyfja, sem þessir annmarkar fylgja. Gæði afurðanna Stundum heyrist, að síðan farið var að hafa hænurnar í búrum hafi eggin allt annað bragð og minni gæði en gerðist í gamla daga. Og sama sagan er endurtekin þegar um ræðir kjöt af kjúklingum eða hænsnum. Það væri raunar ástæða til að spyrja hvort fjóshaugabragðið hafi verið betra í þá daga er hænsnin gengu þar og á sorp- haugum til að safna fæðu. Rannsóknir á þessum fyrirbærum hafa verið gerðar víða — og endurteknar í ýmsum löndum, bæði að því er snertir bragð og næringargildi. Bretar hafa gert umfangsmiklar rannsókn- ir á eggjum frá hænum í búrum, á gólfum og frá útivist í frelsi umhverfisins. Hvorki bragð né gæði voru staðfest eftir umhverf- isskilyrðum fuglanna. Hinsvegar mun það staðreynd, að kjöt af kjúklingum var bragðmeira fyrrum þegar þeim var slátrað þriggja mánaða gömlum eða eldri, en nú aðeins 6—8 vikna. Það er lögmál náttúrunnar, að kjöt allra skepna verður bragðsterkara með aldri þeirra. Á hinu leytinu er það rétt, að hægt væri að auka bragð kjöts af ungum kjúkl- ingum á þann hátt að láta fuglana hanga dauða með öllum innyflum svo sem tvo daga eða lengur, en af hreinlætisástæðum þykir viðeigandi að aflífa og hreinsa fugl- inn á nokkrum mínútum og senda hann svo beint í kæli eða frystingu hið skjót- asta, enda þótt bragðið verði þá annað og minna en ef geymt væri. Því miður er ekki alltaf auðvelt að samrýma allar óskir, og hér þá bragð og hreinlætisatriði. En huggun er, að það er svo margt á okkar tímum, sem hægt er að nota til þess að bragðbæta vöruna við matreiðslu. F R E Y R 385

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.