Freyr

Volume

Freyr - 01.08.1973, Page 30

Freyr - 01.08.1973, Page 30
Stofnkostnaður - Vinnusparnaður Aldarfjórðungur er nú síðan ég hóf máls á því hve mikils væri um vert að haga fjós- byggingum þannig, að dagleg störf væru auðunnin. Ég kom þá í allmörg fjós, sem sum voru talin afbragð og fyrirmynd ann- arra að flestu fyrirkomulagi og auðvitað voru þau með ýmsu sniði, sem þá voru reist, og allt öðruvísi en hin, sem flestir höfðu vanizt á uppvaxtarárum og allt fram yfir lok styrjaldar 1945. En straumur tímans stöðvast ekki. Á 25 árum getur margt skeð, ekki sízt ef rann- sóknir og tilraunir eru knúðar fram af vilja almennings til þess að prófa nýtt og betra en hið gamla. Á landbúnaðarsýningunni 1947 var til sýnis líkan af fjósi, sem bygginganefnd sýningarinnar lét þá gera í mælikvarða 1:10. Módelið kostaði yfir 2000 krónur og þótti mikið þeim, sem sjá áttu um fjármál sýningarinnar. Það var gert að tillögu und- irritaðs og Teiknistofu landbúmaðarins og þótti ýmislegt þar eftirtektarvert, en sum- um fannst þar sýndar fjarstæður, sem ekki hæfðu okkar skilyrðum. Ég veit ekki hve mörg tvístæðufjós voru hér á landi við stríðslok 1945, ég kom í eitt og svo annað er var þverstæðufjós, þ. e. gangur við aðra hlið og stéttir útfrá til hliðar milli stuttra básaraða. Nokkuð var það, að aðkast úr ýmsum átt- um fékk ég fyrir að reyna að koma svona „vitleysu“ á framfæri. Og ekki linnti því þegar ég, árið 1948, árið eftir landbúnaðar- sýninguna, fékk hingað forstöðumann sænsku byggingatilraunastofunnar land- búnaðarins, Alrik Örborn, til þess að gera — þeim er heyra vildu — grein fyrir hvað þar í landi væri aðhafst til þess að bæta, efla og treysta allt, sem tilheyrði fyrir- komulagi sveitabygginga, m. a. með tilliti til vinnuhagræðingar. Hann kom hingað á mína ábyrgð, Búniaðarbankinn veitti 2000 króna aðstoð, Hafnarfjarðarbær 3000 krón- ur, en í þeirri upphæð var andvirði teikn- inga að byggingunum, sem bærinn hóf að reisa í Krísuvík, en lauk aldrei við og al- drei komu í notkun. Ég hafði reiknað með, að máske fengizt fjármagn úr öðrum áttum til þess að stand- ast straum af komu ráðgjafans að öðru leyti, en það brást. Minn eigin hlutur að komu hans nam því um það bil launum mínum í hálfan annan mánuð að því er bein útgjöld snerti, en þar að auki varði ég sumarfríi mínu að nokkru til þess að ferðast með hon- um. Og svo fékk ég að auki nokkur um- vöndunarorð frá stjórn þeirrar stofnunar, sem ég starfaði hjá, fyrir að vasast í vitleysu eins og þessari og mér var lofað því, að vitleysurnar skyldu bremsaðar. Það var eina viðurkenningin sem úr þeirri átt kom og aðstoðin við að koma hér á framfæri þeim nýju viðhorfum, sem þá og síðan hafa mótast í byggingamálum útihúsa hér á landi. Undirtektir Teiknistofu land- búnaðarins voru á allt annan veg og þess- vegna hefur málið haft byr. En hvað um allt þetta? Það er svo sem enga raunasögu að rekja síðan, og engin ástæða til þess að telja eftir nokkurra vikna laun sem til þessa fóru úr því að málið allt fékk sína þróun og framrás til nýrra við- horfa. En segja má hverja sögu eins og hún gengur. * * * 388 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.