Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 31

Freyr - 01.08.1973, Qupperneq 31
Það var líka um sömu rnundir sem ég kom því á framfæri í FREY, að 10 — 12 kýr væru máske nóg hlutverk og ærið starf að hirða um að öllu leyti í gömlum fjósum, en nýju fjósin þyrftu að vera þannig frá gengin og aðstaða þannig til þess að ná fóðrinu úr hlöðu hversdagslega, að það yrði ekki erfitt verk fyrir einn að annast að öllu leyti um 20 gripi. í möppum hjá mér liggja enn mörg bréf frá þeim árum, frá mönnum, sem segja það skýrt og skorinort, að þetta sé ofætlun öll- um mennskum mönnum og að ég verði að dæmast úr leik sem leiðbeinandi, er fari með slíkt fleipur. Svo langt gekk það til eitt sinn—það eru mörg ár síðan — að útgáfustjórn FREYS svaraði einu slíku bréfi, sem beint hafði verið til ritsins, þess efnis, að vitleysur ritstjórans um þessi efni yrði að stöðva. Réttilega var þá hægt að benda bréfritara á, að þá þegar væru til hér á landi fjós, sem hýstu 20 — 30 gripi innan veggja og að ein- um manni veittist ekki erfitt að hirða þá með heiðri og prýði. Þróun eða bylting Það skeður sitthvað á aldarfjórðungi Síðan þetta skeði hef ég setið marga fundi og ráðstefnur erlendis þar sem fagmenn á sviði bygginga og búfjárhirðingar hafa gert grein fyrir hvað miðar til framfara og hvað er framundan í því er varðar byggingar sveitanna, það, er geti gert þær fullkomnari og auðveldari að vinna í. Það skeði í Jönköping fyrir nokkrum árum, að þar var stór alþjóðaráðstefna um þessi mál. Þar var margt nýtt á dagskrá í myndum og máli. Þar fullyrti einn bygg- ingafræðingurinn, að nauðsynlega yrði að komast það langt í tækninni, að einum manni yrði gert fært að hirða um að öllu leyti, við fóðrun, mjaltir og hirðingu alla, 100 kýr að minnsta kosti. Sjálfvirkni þyrfti auðvitað að vera með í flestum atriðum en þetta hlyti að verða markmiðið. Mér varð á að hugsa til þeirra daga, er hellt var yfir mig atyrðum fyrir að ætla einum manni að hirða að öllu leyti um 12 kýr, að maður ekki ræddi um 20. En virkilega er tæknin komin það vel á veg, að hver veit nema þetta tak- ist, jafnvel á svo norðlægri slóð og við vetrarríkri sem hér á íslandi. Telzt þá til fjósamennsku að taka fóðrið 1 hlöðu, koma áburði í haughús og mjólkinni 1 tank. Um leið og þetta er rætt er ekki úr vegi að segja hér frá hvernig þetta horfir frá bæjardyrum annarra. Annarra reynsla er líka reynsla. Danskt málgagn þeirra, sem rækta kúa- kyn það, er heitir JRESEYKÝR, heitir rétt og slétt Jerseyblaðið. í þessu tímariti þeirra er grein, er birtist fyrir nokkru, ásamt teikningu af nýju fjósi en greinin er ein- mitt um fjósið. Er ekki óviðeigandi að koma greininni fyrir sjónir íslenzkra lesenda og birtist hún því hér í þýðingu. Greinin heit- ir: Gott fjós með litla vinnuþörf Talsverður áhugi er þessi árin fyrir endur bótum og nýbyggingum peningshúsa, því að skilningur manna vex á því, að til þess að geta búið við nautgriparækt verða menn að geta hugsað um fleiri gripi hér eftir en hingað til, það hlýtur að krefjast minni vinnu að hirða um hvern grip en verið hef- ur. Allar byggingar útihúsa hljóta að miðast við það í fyrstu röð, að vinnan í þeim verði að öllu leyti sem auðveldust og svo má nátt- úrlega ekki gleyma að búa svo um, að skepnunum líði þar sem allra bezt. í fjós af þessari gerð kom ég nýlega hjá Niels Bjerre, bónda á Stangarkri við Hjörr- ing. Þetta er allstórt fjós, reist 1964. Gólf- flötur þess er 430 m2 og í því er rúm fyrir 46 mjólkandi kýr og 37 kvígur. Þetta er ljómandi gott fjós, vel loftræst og kúnum líður þar ágætlega, það sýna vaxandi af- urðir þeirra. Árið áður en kýrnar komu í nýja fjósið var meðalmagn afurða þeirra 224 kg af smjöri en kýrnar voru þá 30. Árið eftir að F R E Y R 389

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.