Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1973, Blaðsíða 32

Freyr - 01.08.1973, Blaðsíða 32
byggt var voru í fjósinu 34 kýr,sem gáfuað meðaltali 238 kg smjör og á næsta ári þar á eftir voru afurðirnar 252 kg smjör að með- altali eftir 37 kýr, en árið 1967 voru kýrnar 42 og meðalafurðirnar 260 kg smjör. Fjósið er byggt hornrétt á hlöðuna, en undir þaki hennar er komið fyrir mjólkur- húsi, rófnaklefa, hey- og hálmrými, og vot- heyshlöðu. Fjósið, með öllum búnaði og öllu tilheyrandi, kostað-i 68.000 danskar krónur (þ. e. rúmlega 1 milljón ísl. kr.) en þá er mjaltalögn með öðrum búnaði ekki talið með. Fjósið er byggt með ristaflór, kýrnar standa í tveim röðum og kvígurnar eru í þriðju röðinni. Lítum nú á vinnuþörfina og vinnuskil- yrðin í þessu fjósi, þau mál varða svo miklu á vorum tímum og efnahagsleg afkoma við mjólkurframleiðslu er þeim mjög háð. Ræsting fjóssins er auðveld, því að einu sinni á dag er farið um ristamar yfir flór- unum og hreinsað þar, svo að þær stíflist ekki, en kýrnar voru hreinar og blettalaus- ar og þó voru þær ekki kembdar frá því um jól og þar til í byrjun febrúar. Það var 10 mínútna verk á dag að hirða kvígurnar 37 og gefa þeim. í þessu nýja fjósi er það að meðaltali 5% — 6 stunda vinna að hirða um að öllu leyti þessar 46 kýr og 37 kvígur. (Sjá myndina). Um þetta segir Niels Bjerre sjálfur: Þegar ég keypti jörðina árið 1961 var allt hér vel hirt og umgengni í fínasta lagi. Fóðurmeistari hirti 28 kýr. þetta vom mest Jerseykýr en líka nokkrar rauðar. Við vor- 'um vön þeim rauðu og fannst bezt að hafa þær með, en því hættum við nú. Fjósið var dálítið þröngt og illt að hirða í því — fyrir- hafnarsamt, svo að kona mín þurfti að að- stoða 2 — 3 stundir á dag við fjósverkin. Því var um tvennt að velja, að farga kúnum eða byggja nýtt fjós. Úrlausnin varð ný fjósbygging og við erum hæstánægð yfir því, mesta erfiðið við fjósverkin hvarf þegar nýja fjósið kom í notkun. Mykjan fellur í flórinn, svo er hún horfin og við höfum rörlögn, mjólkin fer því beint í tank og úr honum er henni dælt í flutninga- tankinn á bílnum, svo að við þurfum ekki að koma nærri mjaltafötum né ræstingu þeirra. En við bgginguna veltur á öllu, að hafður sé fingur á púlsinum svo að rétt sé að farið þegar raða skal hlutunum til hagræðis fyrir dagleg störf. Fóðurgang- ar þurfa að vera það breiðir, að um þá megi aka með vélknúð tæki og vagna. í gamla fjósinu eru nú kálfar og svo höf- um við nýbyggt hús yfir svínin, og nú er hægt að lifa af framleiðslunni. Þeir eru ýmsir, vonandi margir, sem á þessum tímum hagræða byggingum þannig, að vinnuþörfin verði sem minnst og fram- leiðslan sem ódýrust. ❖ ❖ ❖ Þetta er þá greinin, undirrituð H. B. Hér um ræðir venjulegt básafjós þar sem kýrnar standa í tveim röðum en kvígur, mismunandi að stærð á mismunandi bása- lengd, mynda þriðju röðina. Breidd bygg- ingarinnar er rúmlega 14 metrar en lengd- in 30,75 m. Þess má geta sérstaklega, að til viðbótar því ljósi, sem kemur um hlið- arglugga, lýsir um glugga á þaki (plast- plötur) sem ljóskastarar eru undir á fimm stöðum yfir stétt og gangi. Og svo er vert að veita því eítirtekt, að um mitt fjós, hornrétt á flórana þrjá, er í gólfi stein- pípa, 50 cm í þvermál, 1 hana sígur áburður úr flórunum þremur, frá báðum endum, og flytzt eftir henni í safnþró utan fjóssins. Þetta var sagan um það fjós. Okkar skilyrði Niðurröðun hlutanna þarf öll að miða til framfara. Auðvitað erum við líka á þeirri leið en gömul fastheldni og fordómar hafa allt of víða tafið okkur á leiðinni. Og sér í lagi hefur ófullkominn frágangur verið auðkenni okkar allt of oft og til nýrra við- horfa ekki verið skyggnzt sem skyldi. Því hefur einatt verið um kennt, að hér hafi aldrei neinu verið varið til tilrauna í bygg- ingamálum. Það er engin afsökun. Vissu- 390 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.