Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1973, Síða 35

Freyr - 01.08.1973, Síða 35
mín, stóð við skrifborð mitt og sagði: „Þér finnst ég vera óhagsýn með því að kaupa humar.“ Ég svaraði, að það hafi nú ekki verið ætlan mín að særa hana, en því svaraði hún, að auðvitað væri rýmilegt að ég segði eins og mér byggi í brjósti. Og hún hélt áfram: „Ég bið þig að skilja það, að hjá mér er matur fremri öllu, ekkert er honum fremra, þar næst er það matur og ekkert annað og ennþá matur. Þessu máttu trúa, ég segi ekki ósatt, og þegar ég segi, að ég leitaði í sorptunnum í Þýzkalandi á stríðs- árunum og varð himinlifandi við að finna bara eina kartöflu, þá er máske auðskilið að maður kann að meta matinn, og það viðhorf getur enginn frá mér tekið. Fyrst var bernskuheimili mitt bombu- sprengt, síðan mitt eigið heimili, þá var ég nýgift, og að endingu varð ég að láta ríkið hafa giftingarhringinn minn. Ég mun aldrei — aldrei, safna því, sem ég hef ekki þörf fyrir, en maturinn er mér nauðsyn“. Úrsúla kom til Svíaríkis með einum af hvítu vögnum Bernadottes. Hún var svo horuð þá, að handleggir hennar voru eins og á þriggja ára barni og langt auðkenni á armi, merki úr fangabúðunum. Síðan þetta skeði hefur mér oft orðið á að minnast orða Úrsúlu. Nú hefur fólk allt á hornum sér rétt eins og maturinn sé bara ill nauðsyn. Mér finnst að við ættum að vera þakklát fyrir að fá góðan og heil- næman mat, en fara ekki að eins og kon- urnar á Skarshólmanum, sem ósköpuðust yfir mjólkurverðinu. Við höfum efni á að aka bifreið, reykja, kaupa snyrtivörur og fegrunarlyf, og margt og margt annað, en hið háðuglega er, að í sorptunnurnar fer mikill matur. Það bar við fyrir tveim árum, að heim- ilisráðunautur nokkur gekk um vissar göt- ur að kvöldi dags og aðgætti hvað var í sorptunnunum. Þar var mikill matur. Hvað svo um þetta? Vantar virkilega leiðbeiningar til þess að fólk læri að nota matvælin á réttan hátt? Svo virðist sem í skólum sé talið nauð- synlegra að læra að aka bifreið, meira að segja er rætt um að gera það að skyldu- grein í skólum. Við framleiðum meira af korni en við þurfum til eigin nota þessi ár og það er talið óþurftarfyrirbæri. En er ekki bara gott að geta hjálpað sveltandi þjóðum þar sem uppskerubrestur er? Hver veit nema ógæfa á því sviði komi yfir okkur að ári? Og svo þetta: Er maturinn dýr? Ég held ekki. Fyrst þarf bóndinn að fá sitt, slátr- arinn og mjólkurvinnslustöðin þurfa líka að fá sinn hlut, svo þarf að dreifa vörunni, heildsalinn og smásalinn fá sitt og svo kemur söluskatturinn ofan á allt saman, að ógleymdum umbúðunum og söluskatti á þær. Víst er það margt, sem innifalið er í matvælaverðinu. Matarglöð og þakklát húsmóðir, Sonja Petersen, Vikingstad. Eftirskrift. Greinarkorn þetta birtist í sænska blaðinu LAND í október sl. Það virðist viðeigandi að snara því á okkar mál ef vera mætti að einhverjir eða ein- hverjar hugleiddu nánar það efni, sem hér um ræðir. F R E Y R 393

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.