Freyr

Årgang

Freyr - 01.08.1973, Side 37

Freyr - 01.08.1973, Side 37
Þverrandi neyzla mjólknr og mjólkur- iðnvöru í Evrópu í LANDSBLADET birtist í marzmánuði grein, sem greinilega gaf til kynna litla hrifningu yfir viðhorfi Dana til markaðs- mála innan Efnahagsbandalagsins. Þar segir frá því, að neyzla mjólkur og iðnvöru úr mjólk fari ört minnkandi í Efnahags- bandalagslöndunum og að smjörfjallið, sem þá var feiknastórt á sama svæði, veki ugg meðal danskra bænda, sem stunda mj ólkurframleiðslu. Staðreyndir í þessu efni eru, að smjör hefur hlaðizt upp í geymslustöðvum bandalagsþjóðanna að undanförnu, fyrst og fremst af því, að framleiðslan hefur vaxið, einkum í Hollandi, en einnig vegna þess, að neyzla hefur minnkað svo um munar. Hollendingar borðuðu sjálfir að- eins 2,8 kg smjör á mann árið 1970 eða aðeins helming þess, sem gerðist fyrir 5 árum. Til samanburðar má geta þess, að Finnar borða 14,2 kg, írar 12,4 kg og Danir 9 kg á mann árlega. í þessu sambandi má geta þess til samanburðar, að íslendingar borðuðu 7,5 kg smjör að meðaltali á mann árið 1972, en minnst hefur ársneyzlan hér orðið rúmlega 5 kg á mann. Þess er getið um leið, að smjörneyzlan sé hjá flestum þjóðum minnkandi, það gerir minnkandi erfiðisvinna, vélarnar hafa tekið við erf- iðisverkunum, já, og svo eru húsin vel hituð á vetrum, áður brenndu líkamar manna til þess að viðhalda líkamshitanum. Á móti minnkandi smjörneyzlu kemur hinsvegar ofurlítill vöxtur í rjómaneyzlu á sömu svæðum. Mun sú aukning stafa af vaxandi neyzlu á rjómaís. Ostaneyzla er stöðugt talsverð og sum- staðar vaxandi, einkum í vissum borgum. í Þýzkalandi er ostaneyzlan að meðaltali um 5 kg á mann um árið, en í Vestur- Berlín borða menn 8 kg að meðaltali og í Suður-Þýzkalandi aðeins 3 kg. Mjólk er drukkin í mjög misjöfnum mæli frá landi til lands, enda er hún vand- fengin í ýmsum borgum og víða er öl drukkið í stórum stíl og mjólk er víða dýrari en sumar aðrar neyzluvörur, eink- um þar sem flytja þarf mjólkina um lang- vegu, og svo er mikill vandi að varðveita mjólk gegn skemmdum á sumrum þegar miklir hitar eru eins og gerist á megin- landi Evrópu, en það hefur áhrif á neyzlu- magnið. í sambandi við mjólkurneyzluna er frá því sagt, að súrmjólkurmarkaður eflist að mun, en það mun standa í nánu sambandi við framleiðslu Yoghurt, sem hefur náð verulegri útbreiðslu á umræddu svæði í sambandi við þessa vöru, framleiðslu hennar og neyzlu, er þess getið um leið, að hún sé ekki markaðsvara að ráði nema í umhverfi framleiðslustöðva, og markað- ur súrmjólkurvöru, af einu eða öðru tagi, því ekki til umræðu né framkvæmda milli landa á bandalagssvæðinu. Að því er smjörið snertir gera Danir sér vonir um að njóta sérstæðra kjara á mark- aði vegna þess, að allt til þessa hefur danskt smjör verið talið öllu öðru betra og því selzt í sérflokki og fyrir hærra verð en allt annað smjör. Um ostinn segir, að þar sé um að gera að framleiða til sölu þær tegundir, sem neytendur sækjast helzt og mest eftir. F R E Y R 395

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.