Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 2
Stóðhestastöðin fœr
nýtt hesthús
Nýlega tók Stóðhestastöð ríkisins í Gunnarsholti í
notkun nýtt hesthús við formlega athöfn. Húsið
rúmar 65 stóðhesta og var orðin brýn þörf á því því
garnla hesthúsið var orðið of lítið. Til byggingar-
innar hefur verið veitt 12,6 milljónir króna á
árunum 1986-1991, en það er rúmur þriðjungur
þess sent hún hefur kostað til þessa.
Magnús Sigsteinsson og Sigurður Sigvaldason
hjá Byggingaþjónustu Búnaðarfélags Islands
hönnuðu húsið 1988. Már Adólfsson á Hellu var
yfirsmiður en Vélsmiðja Guðjóns Ólafssonar í
Reykjavík smíðaði innréttingar.
GATT-samningsdrög til-
rœði við íslenskan land-
búnað
Drög að GATT-samkomulagi hafa verið til um-
fjöllunar á fundum sem bændasamtökin hafa efnt
til víða um land. Undantekningarlaust hafa bænd-
ur snúist öndverðir gegn þeim kafla samningsdrag-
anna sem fjallar um landbúnað og viðskipti með
búvöru. I uppkasti samninganna eru ákvæði sem
heimila mikinn innflutning á búvörum sem sverfa
myndi að innlendri framleiðslu og um leið atvinnu-
rekstri sem tengdur er landbúnaði.
Sjömannanefnd álítur að drögin splundri aðlög-
un þeirri og hagræðingu í landbúnaði sem nú er
verið að vinna að í samræmi við búvörusamninginn
frá í mars 1991. Ef tillögur Arthurs Dunkels fram-
kvæmdastjóra GATT um verslun með búvöru ná
fram að ganga óbreyttar, er líklegt að landbúnaður
á harðbýlum jarðsvæðum og fjallabyggðum Evr-
ópu myndi stórlega dragast saman og sumsstaðar
leggjast af með öllu. Islenskur landbúnaður kæmist
á heljarþröm. Verði samningsdrög Dunkels að
veruleika, án þess að íslendingar fái samþykkta
fyrirvara um viðskipti með búvörur, verður ís-
lenskur landbúnaður að keppa við mikið niður-
greidd matvæli frá Evrópu á sama tíma og íslend-
ingar hafa fellt niður allar útflutningsbætur á sínar
búvörur.
Verðmunur á vörum til
búrekstrar
Mikill verðmunur er á einstökum vörutegundum
til búrekstrar. Þetta kom í ljós er Verðlagsstofnun
kannaði þau mál um ntiðjan desember sl. Til dæmis
reyndist 67% verðmunur á 100 metrum af girðing-
arneti, og kostar það 4.520 kr. þar sem það er
ódýrast, en 7.545 kr. þar sem það er dýrast. Fimm
lítra brúsi af hreinsuðu fóðurlýsi kostar 535 kr. þar
sem það er ódýrast en 830 kr. þar sem það er
dýrast, sem er55% munur. Verðlagsstofnun hefur
fylgst með verði á aðföngum til bænda frá því að
kjarasamingar voru gerðir í ferbrúar 1990. I des-
ember var verð á fóðri og byggingarvörum kannað
á 27 stöðum á landinu og borið saman við könnun
frá í apríl í fyrra. Kom þá í ljós m.a. að verð á
mótatimbri hafði lækkað um 12,3% að meðaltali á
tímabilinu og verð á hreinsuðu fóðurlýsi um 5.5%
a.m.t. Hins vegar hækkuðu aðrar vörutegundir um
0,9-3,8%.
Selskinnskápur á al-
þjóðlegan markað
Það þykja nokkur tíðindi að frést hefur að allir
danskir íþróttamenn ætli að ganga í grænlenskum
selskinnskápum inn á leikvang á Vetrarólympíu-
leikunum í Albertville í Frakklandi. Er þetta for-
boði þess að koma grænlenskum selskinnskápum á
alþjóðlegan markað eftir vetrarólympíuleikana.
Grænlensk sútunarverksmiðja, Great Green-
land að nafni, er komin í samstarf við fyrirtækið
Saga Services sem loðdýraræktendur á öllum
Norðurlöndum eiga. Það leiðir til þess að sel-
skinnskápur frá grænlensku sútunarverksmiðjunni
fara á markað á Ítalíu, Spáni, í Bandaríkjunum,
Argentínu og Austur-Asíu. Það fylgir svo fréttinni
að franska leikkonan Birgitte Bardot og þýsk
umhverfisverndarsamtök hafi hótað að skemma
fyrir inngöngu dönsku íþróttamannanna í Albert-
ville.