Freyr - 15.02.1992, Page 4
LÁNVEITINGAR Á VEGUM LÍFEYRISSJÓÐS BÆNDA ÁRIÐ 1992
Á árinu 1992 veröa lánveitingar á vegum Lífeyrissjóös bænda með svofelldum hætti:
1. Bústofnskaupalán
1.1 Frumbýlingar, sem hófu búskap á árunum 1990,1991 og 1992, eiga rétt á lánum til kaupa á
bústofni (sauðfé, nautgripum og svínum).
1.2 Lánstími bústofnskaupalána er 8 ár og verðtrygging 100%. Vextir eru 7,75% í janúar 1992
og breytast eins og meðaltalsvextir Seðlabanka íslands á hverjum tíma.
2. Óbundin lífeyrissjóðslán
2.1 Það er skilyrði fyrir veitingu lífeyrissjóðsláns að sjóðfélagi skuldi eigi Stofnlánadeild
landbúnaðarins vegna bústofnskaupalána (annarra en loðdýralána vegna búháttabreyt-
inga), íbúðabyggingarlána og óbundinna lána yngri en 4 ára. Eigi er heimilt að greiða upp
slík lán í því skyni að skapa nýjan lánsrétt. Þeir sem skulda lán, eldri en 4 ára, eiga rétt á láni,
sem nemur mismuninum á láni í samræmi við áunninn lánsrétt, sbr 2.8, og eldri
verðtryggðum lánum. Óverðtryggð lán greiðist upp að fullu.
2.2 Þeir sjóðfélagar eiga rétt á láni, sem náð hafa a.m.k. 3,0 stigum í sjóðnum samkvæmt
nýjustu iðgjaldaskrá og höfðu þá verið aðilar að sjóðnum í tvö ár. Þegar lánsréttur er metinn
samkvæmt þessari grein er tekiö er tillit til allt að 70% af stigaeign íöðrum sjóðum, enda hafi
lánsréttur samkvæmt þeirri stigaeign eigi verið nýttur.
2.3 Lánsréttur fellur niður þegar sex mánuðir eru liðnir frá því að sjóðfélagi greiddi síðast í
sjóðinn. Ellilífeyrisþegar og þeir sem hættu iðgjaldagreiðslum vegna aldurs, eiga þó rétt á
láni, ef þeir greiddu iðgjöld til sjóðsins fram að lífeyristöku eða til 70 ára aldurs.
2.4 Eftirlifandi makar látinna sjóðfélaga eiga lánsrétt í samræmi við stigaeign hins látna
sjóðfélaga.
2.5 Heimilt er að sækja um yfirfærslu óbundins láns af nafni eins skuldara yfir á nafn annars,
enda sé hinn nýi skuldari kaupandi að eigninni sem er í veði fyrir láninu. Engu að síður telst
upphaflegur skuldari hafa með lántökunni nýtt lánsrétt sinn og yfirtaka lánsins hefur ekki
áhrif á lánsrétt þess sem lánið yfirtók. Stofnlánadeild landbúnaðarins tilkynnir Lífeyrissjóði
bænda um allar breytingar af því tagi sem um ræðir í þessari grein.
2.6 Eingöngu er lánað gegn veði í fasteign. Stofnlánadeild landbúnaðarins metur veðhæfi
eigna, sem settar eru að veði fyrir láni.
2.7 Lánstími er 15 ár, verðtrygging 100% og vextir verði vegnir meðaltalsvextir Seðlabanka
íslands á hverjum tíma, 10,00% í janúar 1992.
2.8 Lánsupphæð fer eftir stigaeign sjóðfélaga samkvæmt síðustu iðgjalda- skrá og eftirfarandi
töflu:
Stigaeign
3,000- 9,999
10,000-15,999
16,000-20,999
21,000 stig eða fleiri
3. Gildistími
Lánareglur þessar gilda frá 1. janúar 1992 til 31. desember 1992.
Sótt er um bústofnskaupalán og óbundin lán til Stofnlánadeildar landbúnaðarins, Laugavegi 120,
105 REYKJAVÍK, sími: 91-25444, sem sér um útborgun lánanna og innheimtu og veitir jafnframt
allar nánari upplýsingar. Upplýsingar um lán eru einnig veittar á skrifstofu Lífeyrissjóðs bænda,
Bændahöllinni, Hagatorgi 1, 107 REYKJAVÍK, sími: 91-624747, fax: 624727.
Lánsfjárhæð
800.000 kr.
900.000 kr.
1.000.000 kr.
1.100.000 kr.