Freyr - 15.02.1992, Blaðsíða 11
4.’92
FREYR 139
finnst ekki búfjáráburðurinn
skolist af á flatlendi, þó að jörð sé
frosin. Þar sem hallar reyni ég
frekar að bera á á haustin. Það er
ristarflór í fjósinu og þetta er vatns-
blönduð mykja. Haughúsið dugar
fyrir ársmykjuna.
Hvenœr hefst svo sláttur hjá
þér?
Það fer eftir tíðarfarinu, þ.e. hvort
úrkoma er nægileg fyrst eftir að
borið er á. Á það vill skorta á þessu
svæði. Oft hefst sláttur hér um 20.
júní, en t.d. sumarið 1991 hófst
hann 12. júní, en þá var spretta
mjög snemma á ferð.
Heimilisfólkið á Brakanda, Elínrós Sveinbjörnsdóttir og Viðar Þorsteinsson,
og börn þeirra Sigrún og Sigurður í aftari röð og Sesar og Sara í fremri röð.
Hvað liggur heyið lengi áður en
þú hirðir það?
Ég sný strax eftir slátt og sný 3-4
sinnum á dag. I góðum þurrki þá
hirði ég það fyrsta jafnvel eftir
sólarhring. Ég hef ágæta súrþurrk-
un en er ekki með upphitað loft.
Hvað hefur þú til marks um að
nú sé tímabœrt að fara að slá?
Því er erfitt að svara. Maður röltir
um túnin og ákveður svo á ein-
hverjum tímapunkti að fara að slá.
Ég get ekki lýst því nánar.
Mikið af túnunum hér eru gömul
tún sem hafa haldið sáðgresinu og
á meðan er maður ekki að hugsa
um að endurvinna þau. Þar á ég við
vallarfoxgras og háliðagras. Hér
eru til tún með eingöngu háliða-
gras og [ au slæ ég yfirleitt fyrst.
Þessu háliðagrasi var sáð hér um
1970 og það lifir enn góðu lífi.
Ég hef þó endurunnið töluvert
og sáð þá blöndu með vallar-
foxgrasi en það hefur ekki gengið
vel og vallarfoxgrasið rýrnað fljótt.
Ég tel að það sé fyrir það að hér er
tvíslegið og fyrri sláttur sleginn
snemma og það þolir vallar-
foxgrasið illa.
Hvenœr lýkur fyrra slœtti?
í öllu eðlilegu árferði lýkur honum
fyrri hlutann í júlí og þá ber ég á
aftur á hluta af túnunum, 4-6 poka
á ha, blöndu af Græði 9 og Kjarna,
það er á stykki sem ég reyni að fá
góða uppskeru af aftur.
Beitirðu á túnin?
Já, þau eru öll meira og minna
beitt, bæði af kúnum að sumrinu
og fénu á haustin. Það eru engin
tún sem eru alfriðuð fyrir beit
árum saman, en alltaf eitthvað af
túnum sem er hlíft við vorbeit.
Túnin hér eru alls um 40 ha og af
þeim eru tvíslegnir 20-25 ha. Heyið
af því er nú rúllað en var þurrkað
áður.
Ég hef haft þá sérvisku að gefa
kúnum út einn lítinn bagga af þurr-
heyi í stokk yfir sumarið og aukið
þessa gjöf þegar kemur fram á
haustið. Það verða þá ekki eins
mikil viðbrigði þegar þær fara á
innistöðu. Þær fá þetta á kvöldin
þegar þeim er hleypt út eftir kvöld-
mjaltir. Þetta þarf ekki að vera
neitt toppfóður, heldur jafnvel
gróft fóður með kraftmikilli beit og
það virðist vera svo að allar kýrnar
nasli í þetta og þær ungu læra af
þeim gömlu.
Kýrnar á Brakanda á beit, sér út Hörgárdal. (Myndir: Viðar þorsteinsson).