Freyr - 15.02.1992, Page 16
144 FREYR
4.’92
að minnka tjónið af henni. Sýkt
dýr og sæði geta breitt út
sjúkdóminn, og einnig getur hann
borist með vindi.
Hœnsnapest, Newcastle veiki
Þessi veiki ræðst á alifugla og getur
orðið mjög kostnaðarsöm. Orðug-
leikum veldur að frjálsir fuglar, þar
á meðal bréfdúfur, geta borið veik-
ina ellegar náskylda sjúkdóma.
Fyrir nokkru fannst veiki sem
líktist Newcastle veiki í bréfdúfu-
hópum á Vesturlandi í Noregi og
það leiddi til sérstakra ráðstafana,
meðal annars bólusetningar, segir í
Norska dýralæknablaðinu.
Hroðalegar afleiðingar
Fjárhagstjón af þessum
sjúkdómum er svo gríðarlegt að
sjálft Tsjernobyl slysið er hégómi í
samanburði við það. Dæmi um það
er þegar afríska svínapestin kom
upp í Flollandi og Belgíu. Baráttan
ein við veikina kostaði marga millj-
arða króna (ísl.). Þar á ofan kemur
að markaður spillist í löndum sem
banna innflutning á kjötinu frá
sýktum svæðum.
Innflutningshöft
Innflutningur skepna og afurða
þeirra og annað af lifandi uppruna
er mjög greiður smitvegur. Þó að
ströngustu reglum sé beitt vofir
hættan yfir. Um það eru mörg
dæmi. Mæðiveiki barst til Noregs
með löglegum innflutningi á Tex-
elfé frá Danmörku í lok sjöunda
áratugar þessarar aldar.
Gin- og klaufaveikifaraldurinn í
Englandi 1968-1969 barst með
veirumenguðu kjöti frá Suður-
Ameríku. Það varð að slátra
500.000 skepnum út af þessum far-
aldri.
Afríska svínapestin kom til
Belgíu árið 1985 frá Spáni með
svínapulsu meingaðari af veirum
en belgískur ferðamaður hafði
hana með sér. Ut af þessu varð að
slátra 20.000 svínum í Belgíu.
Meinguð bóluefni hafa einnig bor-
ið með sér veirur til ósýktra svæða.
Embœtti ytirdýratœknis
Verð á dýralyfjum
Samkvæmt ósk ritstjóra Freys skal upplýst eftirfarandi. Lyfjaverð er
ákveðið af Lyfjaverðlagsnefnd og er gefin út lyfjaverðskrá á 3ja mánaða
fresti af Heilbrigðis- og tryggingarráðuneytinu. í henni eru upplýsingar
um verðlagningu á lyfjum fyrir dýr og menn.
I lyfjaverðskránni eru lyfin með heildsölu- og smásöluverði og virðis-
aukaskatti en án afhendingargjalds (kr. 61) og gjalds fyrir útskrift
lyfseðils (kr. 103). Um lausasölulyf gildir lítið eitt önnur regla (kr. 42).
Verð lyfjanna hér að neðan er samkvæmt lyfjaverðskrá 1. janúar 1992.
Breytingar á virðisaukaskatti og gengi breyta lyfjaverði.
Verð á nokkrum algengum dýralyfjum 31. janúar 1992:
Lyf til inndælingar eða í leg:
Penicillin Leo, 1-2-5 milljón ein . . 108-206-458 kr. glasið
Leocillin m/leysi, 5 milljón ein 508 kr. glasið
IlcocillinP.upplausn. lOOml 794 kr. glasið
IlcocillinPS, upplausn, 100ml 1112 kr. glasið
Streptocillin, upplausn 40 ml/100 ml . . . 761/1111 kr. glasið
Depomycin. upplausn 100ml 1052 kr. glasið
Streptocillinm/sulfadimidin,stílar . . 77 kr. stfllinn
Terramycin. stflar 197 kr. stfllinn
Clamoxyl, töflur 58 kr. taflan
Combelen,25 ml 848 kr. glasið
Domosedan, 5 ml 5928 kr. glasið
Finadyne, 50 ml . . 4469 kr. glasið
Rompun, 25 ml 3501 kr. glasið
Lyf í spena:
OrbenínLA.spenatúbur 106 kr. túban
Aureomycin, spenatúbur 105 kr. túban
Streptocillin. spenatúbur 110 kr. túban
N afpenzal, spenatúbur 113 kr. túban
Targot.spenatúbur 111 kr. túban
Ampiclox, spenatúbur 122 kr. túban
Vetimast, spenatúbur 221 kr. túban
Geldstöðulyf, Orbenin DC 126 kr. túban
Geldstöðulyf, Copravin 154 kr. túban
Spenastflar, lokaðir(20stk.) 560 kr. túban
Spenastflar,opnir(6stk.) 546 kr. túban
Lyf við skitu:
Aureomycinduft,225g 559 kr. túban
Terramycinduft,227g 1419 kr. túban
Sulfa-guanidine, 100töflurá0.5g . . . 470 kr. túban
Sulfa-dimidine, 100töflurá0,5g . . . 713 kr. túban
Cosumix, 10 x 10 g 665 kr. túban
Colinovina 1205 kr. brúsinn