Freyr

Årgang

Freyr - 15.02.1992, Side 18

Freyr - 15.02.1992, Side 18
146 FREYR 4.’92 Námskeið á Skriðuklaustri Búnaðarsamband Austurlands með tilstyrk landbúnaðarráðuneytisins hefur áformað að efna til námskeiða á Skriðuklaustri. Námskeiðin verða undirbúin í samstarfi við bœndaskólana á Hvanneyri og Hólum, Skógrœkt ríkisins o.fl., auk þess sem þessir aðilar munu leggja til kennslukrafta ásamt Búnaðarsambandinu. Skráning á námskeiðin fer fram á skrifstofu Búnaðar- sambands Austurlands, Selási 19, Egilsstaðabæ, í símum 97-11161 og 97-11226, alla virka daga kl. 9 til 17, og þar eru veittar nánari upplýsingar um nám- skeiðin almennt heimafyrir. Varðandi útlistun á námsefni og efnistökum einstakra námskeiða er hins vegar vísað til þeirra upprunastaða, sem nefndir eru undir viðkomandi námskeiði. Hvað sjálfa skráninguna varðar er mikilvægt að þátttaka sé tilkynnt eigi síðar en þrem dögum áður en viðkomandi námskeið hefst. Viðbúið er að takmarka þurfi nemendafjölda námskeiðanna við ákveðið hámark. Á sama hátt eru takmörk fyrir því með hve fáum er fært að halda tiltekið námskeið. Námskeiðsgjald á þriggja daga námskeið er áætlað kr. 5000 á hvern þátttakanda og er ferða- og dvalar- kostnaður innifalinn með stuðningi frá Framleiðni- sjóði landbúnaðarins. Námskeiðsnúmer, heiti og aðrar upplýsingar. 1. BÆNDABÓKHALD Tími: 1.-3. aprfl. Umsjónar- maður: Jón Atli Gunnlaugsson, Bsb. Austur- lands. Uppruna- staður: Bændaskólinn á Hólum. Kennari: Þórarinn Sólmundarson, Bændaskólan- um á Hólum. Efnisþættir: Einkum ætlað þeim bændum, sem áhuga hafa á að færa eigið bókhald. M.a. verður forritið Búbót kynnt, farið í uppgjörsþætti virðisaukaskatts, skattskilahluti skýrður og farið yfir nokkra efnisþætti tölvuvinnslu eftir því sem aðstæður leyfa.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.