Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 22

Freyr - 15.02.1992, Qupperneq 22
150 FREYR 4.'92 ársins færist sú upphæð á landbúnaðarframtal sem skuld, annars sem viðskiptakrafa. Endurgreiðslu á kjarnfóðurskatti skal telja fram á tekjuhlið landbúnaðarframtals. Fram- leiðsluráð landbúnaðarins sendir út afurða- miða yfir þessar greiðslur. Búnaðarfélag Island sendir nú út launamiða vegna framlaga samkv. jarðræktarlögum. Tekjur af leigu fullvirðisréttar eru færðar til tekna á landbúnaðarframtali hjá leigusala, en til gjalda hjá leigutaka. Framlag til búháttabreytinga færist til lækk- unar á stofnverði þeirra framkvæmda, sem eru samfara búháttabreytingunni. Fyrningar- grunnur þessara eigna verður því lægri sem styrknum nemur. Sala á fullvirðisrétti. Sala á fullvirðisrétti til ríkisins skal færa til tekna, þó aðeins 20% af söluverði. Þetta gildir að sjálfsögðu aðeins um sölu en ekki leigu á fullvirðisrétti. Ríkið greiddi 5.000 kr. fyrir hverja fargaða kind ef framleiðandi afsalaði sér öllum framleiðslurétti, en annars 3.500 kr. Þessar sölur teljast að fullu til tekna en á móti kemur bústofnsskerðing þar sem bústofni fækkar. Greiðslur ríkissjóðs vegna kaupa á fullvirð- isrétti og förgunar búfjár verða inntar af hendi með fimin jöfnum árlegum greiðslum. Fyrsta greiðsla átti að vera í janúar 1992. Gefið er út skuldabréf fyrir fjórum greiðslum. Vextir eru 5%, sem reiknast frá þessum áramótum. Greiðslur eru verðtryggðar miðað við láns- kjaravísitölu 1. maí 1991. Bæði fyrsta greiðsla og skuldabréfið skal talið fram sem veltufjár- munir á nafnverði að viðbættum verðbótum, sem eiga að koma fram á afurðamiða. Sölu- verð á þessum bréfum verður væntanlega und- ir nafnverði og þá færast afföll til frádráttar, en það verður ekki fyrr en á næsta ári. Lögð skal áhersla á að 20% af söluverði á fullvirðisrétti skal telja til tekna á árinu 1991, en söluverð á bústofni telst að fullu til tekna. Bæði jarnúar- greiðslan og skuldabréfið skal telja með veltu- fjármunum á landbúnaðarskýrslu. Greiðslur fyrir ónotaðan fullvirðisrétt frá árinu 1990. Framleiðsluráð landbúnaðarins sendir nú út launamiða fyrir ónotaðan fullvirðisrétt í sauð- fé fyrir árið 1990. Ef greiðslan var talin fram í fyrra skal ekki telja hana nú. Greiðsla fyrir ónotaðan fullvirðisrétt 1991 hefur ekki verið send út og Framleiðsluráð mun ekki gefa hana upp á launamiða fyrr en við næsta framtal. Viðmiðunarreglur um reiknuð laun 1990. 1. Bóndi 534.210 kr. eða 44.518 kr. á mánuði. 2. Hjón 1.068.420 kr. 3. Barn yngri en 16 ára, 161.008 kr. Sjá við- miðunarreglur í leiðbeiningum ríkisskatt- stjóra. Vaxtabœtur Vaxtabætur verða ákvarðaðar í þriðja sinn á árinu 1992. Segja má að þær komi í stað húsnæðisbóta og vaxtaafsláttar. Rétt til bót- anna eiga þeir er bera vaxtagjöld af lánum sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota. Vaxtabætur ákvarðast þannig að frá vaxta- gjöldum í reit 87 dragast vaxtatekjur í reit 14 og 6% af tekjuskattstofni samkv. tölulið 7.9. Ef um er að ræða hjón eða sambýlisfólk, sem á rétt til samsköttunar, reiknast 6% af saman- lögðum tekjuskattsstofni þeirra beggja. Hámark vaxtagjalda sem reiknast til ákvörð- unar vaxtabóta er kr. 438.000 hjá einstaklingi, kr. 574.000 hjá einstæðu foreldri og kr. 712.000 hjá hjónum og sambýlisfólki. Hjá ein- staklingi og einstæðu foreldri skerðast þannig ákvarðaðar vaxtarbætur hlutfallslega, fari eignir samkv. reit 16 að frádregnum eignum í reit 04 og skuldum skv. reit 86 fram úr kr. 2.965.000, uns þær falla niður við kr. 5.930.000 Vaxtarbætur hjóna og sambýlisfólks skerðast á sama hátt, fari samanlagðar eignir þeirra að frádregnum skuldumfram úr kr. 4.915.000uns þær falla niður við tvöfalt hærri mörk eða kr. 9.830.000. Vaxtabætur geta aldrei orðið hærri en kr. 123.000 fyrir hvern mann, kr. 161.000 fyrir einstætt foreldri og kr. 200.000 fyrir hjón eða

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.