Freyr

Volume

Freyr - 15.02.1992, Page 26

Freyr - 15.02.1992, Page 26
154 FREYR 4.’92 Með þessari margföldun er verið að reyna að skrá eignir rétt miðað við upprunalegt verð. Árleg fyrning er síðan reiknuð af þessari upp- hæð. Síðan er árleg fyrning og áður fengnar fyrningar lagðar saman og sú upphæð færð í dálk 11. í síðasta dálk, nr. 12, er fært bókfært verð, sem er mismunur á upphæð í dálk nr. 5 og 11. Allar eignir á fyrningarskýrslunni eru meðhöndlaðar á sama hátt nema að því leyti að árleg fyrning er mismunandi há prósenta því að eignir endast misjafnlega lengi. Nokkur atriði til minnis. 1. Allar eignir á fyrningarskýrslu skal fram- reikna með verðbólgustuðli ársins. Hann er 1,0618 fyrir árið 1991. 2. Nýbygging færist á kostnaðarverði sam- kvæmt húsbyggingarskýrslu og byrjað er að fyrna bygginguna niður það ár, sem húsið er tekið í notkun og þá heilsársfyrningu. 3. Ekki má fyrna eignir á söluári, en hins vegar eru eignir fyrntar á kaupári og þá heilsársfyrningu. 4. Vél, sem verður ónýt, fyrnist alveg niður í 0. 5. Vél eða önnur eign í atvinnurekstri sem kostar minna en 115.000 kr. má færa til gjalda á kaupári. Petta er ekki ráðlegt nú. 6. Eignir í búrekstri fyrnast hratt niður. Vélar fyrnast á sex árum, útihús á 23 og 1/2 ári og ræktun og girðingar á 15 árum. Eftir þenn- an árafjölda standa eignirnar í 10% af end- urmetnu verði, þar til þær eru ónýtar. Af þessu má sjá að eignir fyrnast hratt niður og ekki er heimilt að fyrna þær hægar. Ég vil því ekki ráðleggja notkun aukafyrninga. Landbúnaðarframtalið. Eyðuðublöðin eru á sex síðum auk skýrslu um aðstöðugjald. Bls. 1. Bústofn. Bústofn er færður inn í ársbyrjun og árslok á skattmati ríkisskattstjóra. Fjöldi gripa í árslok 1990, þ.e.a.s. á síðasta framtali, er nú færður inn í ársbyrjun en ekki gamla matið í krónum. í stað þess er fært inn nýja skattmatið. Keyptur bústofn er ekki færður til gjalda á landbúnað- arframtalið eins og önnur gjöld, heldur er talinn með bústofni í árslok. Par með myndað- ist bústofnsaukning, sem kæmi fram sern tekj- ur. Þetta er leiðrétt með því að færa keyptan bústofn inn í ársbyrjun, sjá mynd. Ein kvíga er kýr á 70.000 kr. Hún er talin með bústofni í árslok. Skattmat á kú er 56.730. Það færist á síðuna neðst til hægri, keypt búfé á árinu, matsverð, sjá mynd. Bústofn barna yngri en 16 ára skal telja með búfé bónda. Tekjur af búfénu má færa í landbúnaðarframtal með tekjum bónda eða á skattaframtal barnsins. Sé valinn síðari kosturinn er færslan orðin flókn- ari. Fóðurkostnaðurinn færist þá bónda til tekna en barni til frádráttar. Vinni barnið fyrir fóðurkostnaðinum má barnið telja það sem laun í reit 2.1 en bóndinn til frádráttar sem launagreiðslu í 5.3 á landbúnaðarframtal. Bls. 2. Tekjur. Állar tekjur skal færa inn án virðisauka- skatts. Tekjur skal færa inn á landbúnaðarframtalið eftir afurðamiðum, þannig að bæði fjöldi gripa og magn seldra afurða komi fram ásamt greiðslum á árinu Afurðatekjur skulu færðar inn brúttó, þ.e. án frádráttar sjóða- og flutn- ingsgjalda, sem eru tilgreind sérstaklega á afurðamiðunum. Afurðamiðar eru yfirleitt þannig að taka má tölurnar beint af þeim. Greiðslur til Lífeyrissjóðs bænda færast ekki. Hámarksgreiðsla er 33.772 kr. fyrir sjóðfélaga, (fyrir hjón 67.544 kr.) en þetta er hvergi fært á framtal. Förgunarbætur færast sem tekjur. Undir liðinn „Ýmsar tekjur“ má færa t.d. leigu eftir búfé, tekjur af tamningu hrossa, tekjur af ferðamönnum og leyfi til sand- og malarnáms. í lið 12.10 skal færa endurgreiðslu kjarnfóður- gjalds. Virðisaukaskatti ber að skila af heima- notuðum afurðum.

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.