Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1992, Síða 32

Freyr - 15.02.1992, Síða 32
160 FREYR 4.'92 Reiknað endurgjald bœnda, maka þeirra og barna tekjuárið 1991 (skattframtal 1992)' Að jafnaði skal færa á skattframtali 1992 þau reiknuðu laun sem staðgreiðsla á árinu 1991 hefur miðast við. Séu færð lægri reiknuð laun ber að láta nauðsynlegar skýringar fylgja skattframtali. I þessu sambandi vísast til 1. mgr. 59. gr. laga nr. 75/1981, sbr. 6. gr. laga nr. 49/1987. Viðmiðunarreglur til ákvörðunar á reiknuðu end- urgjaldi bænda og maka þeirra á staðgreiðsluárinu 1991 frá 31. desember 1990 eru þessar: Viðmiðunartekjur fyrir grundvallarbúið ákvarðast þannig: 1. Viðmiðunartekjur bónda, sem stendur einn fyrir búrekstri með eða án aðkeypts vinnuafls eða í samrekstri með öðrum en maka, ákvarð- ast 534.210 kr. í 52 vikur. Mánaðarlaun kr. 44.518. 2. Vinni það hjóna sem ekki stendur fyrir bú- rekstri með maka sínum við reksturinn skal meta því endurgjald með hliðsjón af vinnu- framlagi þess, metið á sarna verði og endur- gjald bónda. 3. Standi hjón bæði fyrir búrekstrinum skal reikn- að endurgjald hjónanna samtals teljast tvöfalt endurgjald bónda eða 1.068.420 kr. sem skiptist milli hjónanna í hlutfalli við vinnuframlag hvors um sig. 4. Ákvarðaðar viðmiðunartekjur hvers bónda sem stendur fyrir búi með öðrum en maka sínum skulu miðaðar við eignarhlutdeild bóndans í félagsbúinu. Við ákvörðun viðmiðunartekna bænda skal taka tillit til þess hvort bóndi nái heildartekjum grund- vallarbúsins. í verðlagsgrundvelli landbúnaðaraf- urða er sauðfjárbúi reiknuð 400 ærgildi en kúabúi 22 kúgildi sem samsvarar440 ærgildum. í blönduðu búi skal því að öllu jöfnu reikna með 420 ærgildum. Við ákvörðun heildarærgilda bús er geldneyti reiknað 8 ærgildi og kálfur 4 ærgildi. Nái bústofn bónda ekki framangreindum ærgilda- fjölda verður að ætla að bóndinn nái ekki heildar- tekjum grundvallarbúsins og má þá lækka reiknað endurgjald í sama hlutfalli og ærgildafjöldi búsins er minni en viðmiðunarærgildafjöldi. Lækka má reiknað endurgjald skv. 1. og 3. tl. um 10.063 kr. fyrir hverja viku sem barni (börnum) er reiknað endurgjald. Samtals má þessi lækkun ekki nema hærri fjárhæð en samanlagður vikufjöldi margfaldaður með 10.063 kr. og teljast 16 vinnu- vikur á 10.063 kr. eða í heild 161.008 kr. vera hámark miðað við grundvallarbúið. Hámark reiknaðs endurgjalds sem skattstjóri getur ákvarðað skv. 1. mgr. 59. gr. laga nr. 75/1981 takmarkast við það að fjárhæð þess rná ekki mynda tap sem er hærra en sem nemur samanlögðum almennum fyrningum skv. 38. gr. og gjaldfærslu skv. 53. gr. laganna. Hjá elli- og örorkulífeyrisþeg- um takmarkast ákvörðun skattstjóra á reiknuðu endurgjaldi við það að ekki myndist tap á búrekstr- inum. Reikni bóndi börnum sínum á aldrinum 13 -15 ára á tekjuárinu endurgjald fyrir vinnuframlag þeirra skv. síðasta málslið 2. mgr. 1. tl. A-liðs 7. gr. laga nr. 75/1981, skal við mat á hámarki því sem um ræðir í 2. mgr. 59. gr. laganna og draga má frá sem rekstrarkostnað, miða við meðaltímakaup frá 234,80 kr. til 268,40 kr. eða frá 9.392 kr. til 10.736 kr. á viku. ☆ Öll lán skulu vera með hæstu leyfilega vexti eða að fullu verðtryggð. ☆ Áríðandi er að reikna fulla vexti á allar greiðslur, sem nefndar eru útborgun, nema þá upphæð sem greidd er við undirskrift kaupsamnings. ☆ Verðtrygging á lánum er miklu eðlilegri viðskiptamáti heldur en t.d. 10% vextir. ☆ Kynnið ykkur reglur um söluhagnað af jarðarsölu áður en skrifað er undir kaup- samning.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.